Mánudagur, 18. desember 2006
Hiss vikunnar
Ég opna ekki munninn lengi til að þegja en ég gapti af undrun yfir ólátunum á Nørrebro í Kaupmannahöfn. Í Kaupmannahöfn! Lögreglan þaggaði niður í fólki með táragasi.
Næstu læti hljóta því að verða í ... Hafnarfirði, ha?
Athugasemdir
Ætlar þú að mæta með ávexti og önnur skotfæri í Hafnarfjörðinn?
Steinarr Kr. , 18.12.2006 kl. 14:56
þetta er ekkert alveg óþekkt fyrirbæri í kóngsins Köben - þegar ég bjó þar þá sá ég oftar en einu sinni og oftar en tvisvar óeirðalögguna í fullum herklæðum í miðbænum...
það urðu t.d. svipuð læti (eða jafnvel meiri) þegar þeir kusu um ESB á sínum tíma, maí '95 (ef ég man rétt) og síðan þá hafa alltaf verið einhver mótmæli og viðeigandi viðbúnaður lögreglu fyrir slíku. Veit reyndar ekki hvernig þetta hefur verið síðan árið 2000 þegar ég flutti aftur heim
emsin (IP-tala skráð) 21.12.2006 kl. 12:24
Ég trúi þessu, en varla samt! Þegar ég sá fréttirnar í sjónvarpinu hélt ég að þær væru í Langtíburtistan. Þetta getur sem sagt átt eftir að henda mann á göngu á Nørrebro. Hinir sakleysislegu frændur ... og þetta hefur ekki einu sinni neitt með Jón Ásgeir að gera, heldur ungmennahús.
Berglind Steinsdóttir, 22.12.2006 kl. 15:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.