Mánudagur, 31. ágúst 2009
Er Gylfi hættur?
Gylfi er með litla símabúð í Mjódd. Ég sá hans fyrst getið á lista dr. Gunna yfir þær verslanir sem gerðu vel við kúnnann og væru með vörur á sanngjörnu verði. Þá var Gylfi í Grafarvogi. Svo flutti hann sig milli hverfa í vetur. Og svo var frétt í sumar um það hvernig hann endurynni síma og gæfi þeim framhaldslíf.
Það var mikil vinna í kringum þetta, skildist mér, en hvatinn var að endurnýta hluti sem fólk hafði tilhneigingu til að skilja eftir í glatkistunni. Og nú spyr ég: Gafst Gylfi upp á limminu - eða fékk Síminn bara sömu snilldarhugmyndina tveimur mánuðum síðar?
Gott að menn vilja endurvinna, endurnýta og gefa hlutum framhaldslíf í stað þess að farga þeim. Og ég ætla sannarlega áfram að versla við Gylfa þegar mig vantar eitthvað símatengt.
![]() |
Notaðir farsímar öðlast framhaldslíf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.