Sunnudagur, 17. febrúar 2013
Vorið fer fram úr sér
Ég las hjá einhverjum í dag að febrúar væri hinn nýi apríl. Mér finnst hann hitta naglann á höfuðið, a.m.k. hér sunnan heiða. Daginn lengir um sex mínútur á dag og það munar um klukkutíma á rúmri viku. Það er bjart og hlýtt að fara á fætur um sjöleytið á morgnana.
Það er byrjað að vora.
Að því sögðu leggst ég alfarið gegn öllum hrókeringum og forfæringum með landsklukkuna. Ef við færum hana fram eða aftur einu sinni verður það þá að vera í eitt skipti fyrir öll.
Mikið er gott að vita eitthvað fyrir víst á þessum viðsjárverðu og síbreytilegu tímum ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 14. febrúar 2013
Handþvotti haldið til haga
Ekki vissi ég að maður ætti að nota edik í skolinu. En þú?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 11. febrúar 2013
Ef maður slasast eða veikist
Sjálf þekki ég fáa sem vinna í heilbrigðisgeiranum og heldur ekki sérlega marga sem hafa þurft ítrekað á þjónustunni að halda. Enn sem komið er. Flestir hafa samt þurft að fara á slysó um dagana, í aðgerðir, minni eða stærri, notið sérhæfðrar þekkingar og þjónustu.
Er líklegt að heil stétt sé hæpuð upp í uppsagnir og andóf? Ég á mjög bágt með að trúa því að hjúkrunarfræðingar séu á samkeppnishæfum launum þótt allt sé talið og séu í einhverju öðru stríði en heilbrigðri kjarabaráttu.
Mér finnst forgangsatriði að leysa deiluna á Landspítalanum. Hvernig gengur?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 6. febrúar 2013
Ragnheiður Bragadóttir er ólíkt málefnalegri ...
... í Fréttablaðinu í dag.
Ekki get ég bætt neinu málefnalegu við enda ekki löglærð eins og lagaprófessorinn en mér finnst brýnt að halda þessari grein til haga, m.a. líka því að ætlun ákærða, hvatirnar, getur ekki ráðið refsinæmi verknaðarins. Sá sem verður fyrir brotinu, þolandinn, hlýtur að vera útgangspunkturinn.
Gerendur fengu nokkurra ára refsidóma fyrir brotið sem þykir sannað en það stendur í sumum að gangast við því að brotið hafi verið á kynfrelsi þolandans. Af hverju er það svo erfitt?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 4. febrúar 2013
Ætlaður glæpur
Ef lög væru óvefengjanleg þyrftum við hvorki lögfræðinga né dómstóla. Lög eru hins vegar túlkanleg - og túlkuð, þess vegna þarf stundum að skjóta álitamálum til dómstóla. Þrátt fyrir íslensk lög og Evrópulög voru menn til dæmis ekki vissir um hvernig Icesave færi á mánudaginn var. Mér heyrast flestir hafa orðið hissa á fullnaðarsigri okkar. Sem var ánægjulegur, auðvitað.
Þar af leiðandi er auðsagt að lög eru ekki hafin yfir vafa, lög eru bókstafur sem þarf að túlka. Ef lagabókstafurinn væri einn og sannur væru aldrei sérálit. Það þarf sem sagt ekki að fara fleiri orðum um það að lög eru mannanna verk, ekki sending frá guði eða öðrum annars heims.
Þess vegna gekk fram af mér þegar ég hlustaði á lögmann á Bylgjunni í morgun tala um hæstaréttardóm sem var felldur fyrir helgi. Hann er á vef Hæstaréttar.
Það sem helst hefur farið fyrir brjóstið á okkur, pöbulnum, er um það bil þetta:
Á hinn bóginn voru þau A, EV, J og Ó sýknuð af ákæru um kynferðisbrot þar sem háttsemi þeirra hefði haft þann tilgang einan að meiða A.
Margt hefur verið skrafað um dóminn og þar sem ég er hallari undir efnisleg rök en tilfinningaleg ætla ég að reyna að einbeita mér að einu í minni spekúlasjón. Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson, Gunnlaugur Claessen og Ólafur Börkur Þorvaldsson skyggnast inn í hug gerenda, túlka hann og hljóta þar af leiðandi að láta lagabókstafinn lönd og leið. Lög eru túlkuð, ég segi það einu sinni enn.
... því næst ráðist á brotaþola meðal annars með því að sparka í höfuð hennar, skera í fingur hennar með hnífi og slá hana með leðurkylfu, svo og með því að ákærði Elías Valdimar, sem hulið hafði andlit sitt, hafi stungið fingrum upp í endaþarm og leggöng brotaþola og klemmt þar á milli ...
Æ, hann ætlaði bara að meiða hana.
Fram er komið að þessi háttsemi þeirra hafði þann tilgang að meiða brotaþola og þegar litið er til atvika málsins telst hún ekki til samræðis eða annarra kynferðismaka ...
Einn gerandi fær samt fimm og hálft ár í fangelsi, hinir þrír fá fjögur ár.
Ingibjörg Benediktsdóttir var með sérálit (af því að dómar segja sig ekki sjálfir):
Með lögum nr. 40/1992 og nr. 61/2007 var ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga um kynferðisbrot breytt þar sem gildandi lög um þau brot þóttu ekki veita þolendum brota nægilega réttarvernd. Var áhersla lögð á að tryggja friðhelgi, sjálfsákvörðunarrétt, kynfrelsi og athafnafrelsi brotaþola. Markmiðið var meðal annars að færa reglurnar til nútímalegs horfs og auka vernd barna og kvenna gegn kynferðisbrotum.
Og þá er ég komin hring því að ég hlustaði sem sagt á lögmanninn í útvarpinu í morgun. Honum fannst dómur karlanna eðlilegur af því að, þið vitið, gaurinn ætlaði bara að meiða fórnarlambið. (Sá sem rænir banka og fótbrýtur einhvern óvart í leiðinni ætti með sömu rökum bara að fá dóm fyrir auðgunarbrot ef hann næst. Og ef hann hafði byssu til að skjóta í viftuna en hitti óvart manneskju og varð að aldurtila - hann ætlaði bara að komast undan.) Tilgangur brotamannsins ræður túlkun dómaranna, ég get ekki skilið lögmanninn öðruvísi. Dómurinn snýst um gerandann af því að það er verið að dæma hann.
Svo spurði Kolla hvort lögmanninum þætti ástæða til að breyta lögunum.
Nei, það fannst honum ekki. Það er vegna þess að hann tekur afstöðu með brotamanninum. Held ég. Hann segir að það sé verið að gera veður út af engu. Ég skil lögmanninn svo að honum finnist mótmælendur sýna ofstæki. (Ég held að túlkun mín sé rétt hér.)
En er ekki nauðgun alltaf ofbeldisbrot?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 3. febrúar 2013
Þetta er aldrei búið ...
Nú er dómur fallinn og við sýknuð. Frábært. En hvað kostaði biðin? Hvað kostuðu allar löngu ræðurnar sem voru fluttar vikum saman? Var ekki allt í frosti á meðan?
Hvað kostar orðsporið? Og erum við alveg saklaus? Var kannski rétt að fara af stað með innlánasöfnun í Bretlandi og Hollandi á sínum tíma? Eru Björgólfur og Sigurjón klókir viðskiptamenn? Þurfti Seðlabankinn ekkert að leggja út? Tapaði ég ekki sparifé? Hækkuðu ekki skuldir heimilanna? Eru ekki gjaldeyrishöft? Var Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ekki með lögheimili hér árum saman?
SpKef, Íbúðalánasjóður, verðbólga, gengi, matvælaverð - það fer svo mikill hrollur um mig við tilhugsunina um að við höldum að allt sé í himnalagi að ég held helst að ný ísöld sé runnin upp.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 2. febrúar 2013
11.30
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 1. febrúar 2013
Löggilding, ha?
Sem leiðsögumaður mætti ég á Dag menntunar Samtaka ferðaþjónustunnar á Hótel Natura í morgun. Þar voru margir færir fyrirlesarar og morgunstundin var skemmtileg í góðum félagsskap. En auðvitað hjó ég mest eftir því að aðalfyrirlesarinn talaði fjálglega um gildi menntunar, sagði marga sjálfsagða hluti um fyrirtækjarekstur (en meðvitaður um það og gerði það mjög skemmtilega) en lagði sem sagt mikið upp úr menntun, já, og framkomu, stöðugri bætingu í starfi, metnaði í rekstri og betri afkomu sem tengist öllu framantöldu.
Framkvæmdastjóri SAF sat þarna og hlýddi á eins og ég og nú hlýtur hún að fara að átta sig á nauðsyn þess að leiðsögumenn fái löggildingu starfsheitis. Hæft fólk flýr stéttina, með eða án menntunar ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 28. janúar 2013
Hafði Davíð rétt fyrir sér?
Ég las aldrei yfir mig um Icesave. Ég fylgdist ekki nógu vel með frá degi til dags til að fá ógeð á umræðunni. Og nú er henni líklega allri lokið, eða verður það þegar menn hafa hælst nógu mikið um.
Dómurinn í dag er vissulega ippon. Við Frónverjar hljótum öll að fagna henni. Ég geri það. En ég er mér samt meðvituð um að ég vissi aldrei nóg. Hver var gerandinn og hver þolandinn? Hvert var fórnarlambið? Voru Bretar og Hollendingar gráðugir? Voru boðnir vextir í London frámunalega háir? Voru það óreiðupésar einir saman sem lögðu fé inn á Icesave-reikninga?
Sigurjón Árnason og Björgólfur Björgólfsson kættust í dag, að vonum. Þýðir það að fullt af fólki hafði þá fyrir rangri sök? Voru þeir alltaf bara góðu gæjarnir í eðlilegum viðskiptum? Er til peningahimnaríki? Fór framliðna féð þangað og beið eftir að gírugu útlendingarnir kæmu að sækja það?
Ég leit inn á vefútgáfu Guardians og sá meðal annars þetta:
"We have decided that we are not going to pay the foreign debts of reckless people," David Oddsson, then head of Iceland's central bank, told Iceland in a televised address.
Ég man eftir þessu Kastljósi þegar þáverandi seðlabankastjóri var á því að útlendingar fylgdust ekki með íslenskum spjallþáttum.
Ég fagna, já, en ég hef samt samúð með innstæðueigendum sem voru í góðri trú og töpuðu, sumir, miklu af ævisparnaðinum. Ég tek undir með Skúla Magnússyni, við getum ekki júbilerað eins og um vel heppnaðan handboltaleik væri að ræða.
Við viljum áfram vera siðuð þjóð meðal siðaðra þjóða. Er orðsporið óskaddað? Erum við hvítskúraðir englar og svömlum um í himnaríki fjárfestanna? Erum við bráðum laus við gjaldeyrishöftin? Njótum við trausts vandalausra?
Hafði Davíð rétt fyrir sér? Erum við skuldlaus og kvitt við alla dauðlega menn? Er allt hinum að kenna?
- Ég held að Icesave-umræðan sé ekki alveg búin. Þegar til stykkisins kemur snýst hún ekki bara um aura og sent.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 27. janúar 2013
Blaðamennska kostar
Jón Trausti bloggaði um orð á dv.is í gær. Ég hef lífsviðurværi mitt af því að rýna í orð og þykjast hafa vit fyrir öðrum. Ég veit vel að mér getur skjöplast og stundum fæ ég gagnrýni fyrir að sletta en fari Jón Trausti rétt með staðreyndir í pistlinum, og ég leyfi mér að trúa honum, er eitthvað alveg stórkostlega mikið að í orðafari Hæstaréttar (reyndar er Hæstiréttur varla nefndur í pistlinum).
Á morgun ætla ég að gerast áskrifandi að DV þótt ég geti lesið blaðið annars staðar. Fólk sem stígur réttlætishjólið af svo mikilli ákefð á að minnsta kosti það skilið að ég snúi pínulítilli sveif með því.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 25. janúar 2013
Þöggun í samfélaginu
Samkvæmt upplýsingum frá kynferðisbrotadeild lögreglunnar hefur brotamálum rignt yfir deildina síðustu vikurnar. Og nú ríður á að menn bregðist rétt við. Ekki veit ég hvernig á að gera það en alveg áreiðanlega er það ekki með því að þegja málin í hel og ekki heldur með því að fjargviðrast of mikið.
Ég held að þetta sé spurning um forvarnir og upplýsingagjöf.
En það er ekki eins og það sé eitthvað einfalt. Ekki má hræða börn og unglinga frá því að umgangast allt fólk. Fjölskylduvinir geta líka verið háskalegir, það kemur á daginn aftur og aftur. Væntanlega verður aldrei hægt að komast fyrir svona brot með öllu. Fleiri starfsmenn en færri þar sem börn eru samankomin gætu samt verið góð byrjun. Eða hvað?
Annars rifjaðist upp fyrir mér í gær að þegar DV-forsíðan um ísfirska kennarann birtist, var það ekki 2005, var hálfþrítugur karlmaður sem ég þekkti á þeim tíma svo hneykslaður á DV (eins og ég fleiri, ég veit) að hann neitaði að lesa blaðið. Af þessari ástæðu einni saman. Og hann vildi forða öðrum frá blaðinu. Ég þakka þó mínum sæla fyrir að ég fordæmdi ekki boðbera illra tíðinda.
Og nú er ég að velta fyrir mér hvort það fólk sem bregst illa við tíðindunum, ekki atburðanna vegna heldur fréttanna af þeim, sé annars konar en það fólk sem verður sorgmætt yfir miskunnarleysi mannanna. Sjálf er ég svolítið meðvirk, þegar ég sé vesalinga teymda inn í lögreglubíla vorkenni ég þeim fyrir að vera vesalingar og aumingjalegar og held að brotaviljinn sé ekki einbeittur.
Já, og ég velti enn fyrir mér hvort við þyrftum ekki öll að vera aðeins meira vakandi fyrir sjúkdómseinkennunum og táknunum. Erum við ekki fullmeðvirk og jafnvel aðeins of löt til að sjá það sem gerist í kringum okkur? Og þá er ég ekki bara að tala um okkur Íslendinga ... Hvað voru Bretar að hugsa? Já, af hverju segir fólk ekki frá?
Þegjum aðeins minna um það sem skiptir máli.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 24. janúar 2013
Kuldi Yrsu
Það voru nokkrir góðir sprettir í bókinni en aðalvandinn er að hún segir svo miklu meira en hún sýnir. Hún útskýrir hvers vegna Rún hryllir sig og Óðinn sniðgengur Diljá og slær svo úr og í. Óðinn vill allt fyrir dóttur sína gera, líður illa heima en vill helst ekki fara út. Þetta gæti virkað hér eins og eðlileg þversögn en er það ekki.
Endirinn kom mér þó á óvart, hann má eiga það, en draugaleg er bókin ekki og í engu til þess fallin að vekja með mér kulda. Samt er enginn hlýlegur ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 23. janúar 2013
1.55
Það er kominn 23. janúar. Ég ætla nú ekki að þykjast muna þessa stund fyrir 40 árum en það er samt ekki laust við að mér finnist ég hafa lifað söguna. Manni er hollt að staldra við á svona tímamótum og hugsa til þess að Ísland er eldfjallaeyja, síkvikt náttúruafl, og við hin bara meinleysisleg peð, stjórnlaus og áhrifalítil.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 20. janúar 2013
Lífið er tilgangslaust (í eðli sínu)
Við fæðumst og við deyjum, það er segin saga. Þar á milli er tími sem við getum varið að vild. Að minnsta kosti höfum við eitthvert val um stefnu og strauma í eigin lífi. Nám, vinna, fjölskylda, frí, metnaður, átök, álag, markmið, fréttaflutningur, fréttamat.
Jaríjarí hjá mér núna, heimspeki, geimspeki.
Undir helgi náði Vilborg Arna Gissurardóttir merkilegu markmiði sínu með þrautseigju og góðan undirbúning í vopnabúrinu. Jákvæðni, áræðni og hugrekki eru gildin sem hún hefur valið sér. Hún ögrar sér og virðist vita hvað hún vill. Ég get ekki betur séð en að hún hafi þegar haft áhrif á aðra sem vilja taka sér dugnað hennar og einurð til fyrirmyndar.
Það þarf ekki að vera tveggja mánaða ganga á ísbreiðu. Ekki einu sinni eitt fjall. Við gætum sennilega öll byrjað á því að vera aðeins jákvæðari, bjartsýnni, upplitsdjarfari, kannski vinnusamari (þá meina ég ekki að vera lengur í vinnunni alla daga), óhræddari við nýjungar, samvinnufúsari, gjafmildari - lífið er í eðli sínu tilgangslaust þannig að við ættum sennilega að hafa gaman af því og reyna að vera sæmilega skikkanlegar manneskjur.
Og RÚV lét undir höfuð leggjast að segja frá þessu ótrúlega afreki hennar Vilborgar á föstudaginn. Það er fréttamat sem ég skil ekki en til að taka jákvæða pólinn í hæðina verð ég að lýsa yfir skilningi á því að VAG hafi ekki passað inn í 22 mínúturnar sem fréttastjórinn Óðinn Jónsson, vaktstjórinn Ingólfur Bjarni Sigfússon, útsendingastjórinn Ragnar Santos og tæknistjórinn Sæmundur Sigurðsson höfðu til ráðstöfunar ...
Stuð sé með oss.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. janúar 2013
Þegar Google er spurður (spurð?)
Ég er búin að gúgla alls konar mat upp á síðkastið, nota reyndar Google alla daga í alls konar, og upp á síðkastið er mér í sífellu vísað inn á bland.is. Ætli sú síða hafi gert eitthvað sérstakt til að tengja sig inn á leitarsíður?
Nei, þetta veit enginn ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 14. janúar 2013
Að nefna eftir eða láta skíra í höfuðið á
Ég er að reyna að læra þetta. Ef barn er nefnt nafni einhvers á lífi er það skírt í höfuðið á þeim einstaklingi, annars heitir það eftir (hinum látna). Eða hvað?
Ég er búin að kynna mér að þetta er mörgum tamt á tungu en ég hef enga sérstaka tilfinningu fyrir þessu. Er það ekki ábyggilega þannig að maður skíri á höfuðið á þeim sem lifir en eftir hinum látna?
Ojæja, þetta dugir kannski ekki til að ég leggi það á minnið ef ég er enn í vafa ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 11. janúar 2013
Japönsk hrísgrjón, hrár fiskur - og umbúðir
Ég ákvað að bjóða upp á hráan fisk í kvöld. Hvað heitir hann? Sushi? Súshí? Sushi? Sússí? Kemur ekki fram í orðabók. Fyrst var hugmyndin að kaupa tilbúið hjá Tokyo í Glæsibæ en svo ákváðum við að græja hann sjálf. Já, er það hægt? spurði ég. Og svo: Fjúff, ég þoli ekki allar þessar umbúðir, allt þetta plast sem nýtist ekki í neitt annað, sojasósa í aggalitlum flöskum og svona.
Og ég fór í Nóatún og fiskbúðina og keypti fisk og alls konar og allt margpakkað í plast og frauð og pakka og pappa og umbúðir og fleiri umbúðir. Vasabí og ediksleginn engifer í plasti og pakka. (Ofnota ég nokkuð orðið og?)
Þetta var athyglisverð tilraun og kannski get ég þetta síðar meira sjálf (ég ofsauð og vansauð hrísgrjónin smá) en djö eru miklar umbúðir í samfélaginu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 7. janúar 2013
Tekur kirkjan of langan matartíma?
Ekki amast ég við góðverkum, göfugri hugsun eða örlæti. Ég fetti ekki einu sinni fingur út í markaðssetningu eða ímyndarherferð. Það er ekki nóg að hlutirnir séu réttir, þeir verða líka að líta út fyrir það. Góður og agaður launamaður getur þurft að taka tvöfaldan matartíma stöku sinnum á móti þeim skiptum sem hann hefur ekki komist í mat og þá reynir hann að gera það þegar vel stendur á fyrir báða aðila. Sá sem verður þessa eina matartíma var sem er langur gæti ranglega haldið að framkoman væri gagnrýnisverð.
Ég fylgist ekki nógu mikið með kirkjunni til að meta matartímana hennar. Ég þekki (auðvitað) til presta sem eru áhugasamir, fullir af náungakærleik, vaktir og sofnir yfir sóknarbörnunum, ýta öllu frá sér til að sinna starfinu/kölluninni. Já, þá getur það bitnað á einhverjum öðrum, t.d. fjölskyldulífinu ef heimilið er undirlagt heilu sunnudagana af syrgjendum, hinum leiðu. Þetta þekkja flestir foreldrar, þessa togstreitu milli einkalífs og starfslífs.
Ég hef haldið að kirkjan væri stofnun, m.a.s. ríkisstofnun á fjárlögum án þess að hafa gaumgæft þau. Ég setti þjóðk í leitarorð í nýju lögunum og fann þetta:
7.4 Að semja um afhendingu kirkjulóða og kirkjugarða á ríkisjörðum til þjóðkirkjunnar. (bls. 12)
Undir innanríkisráðuneyti er þetta:
06-701 Þjóðkirkja
Þar má skilja að almennur rekstur á biskupi Íslands sé upp á 1.676 milljónir en vegna sértekna sé kostnaður ríkissjóðs 1.439 milljónir.
Aðeins neðar er liðurinn:
06-735 Sóknargjöld
Og neðst í honum:
Greitt úr ríkissjóði . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.994,0
Liðurinn 06-736 Jöfnunarsjóður sókna fær 310,8 milljónir.
Á bls. 174 er séryfirlit um hagræna skiptingu gjalda í A-hluta 2013 og þar er liðurinn
Framlag til þjóðkirkjusafnaða og skráðra trúfélaga .......................................... 2.545,0
Mér finnst mér töluverð vorkunn þótt ég hafi haldið að kirkjan væri á forræði ríkisins. Og nú væri vel þegið að rannsóknarblaðamenn, eða bara blaðamenn, færu á stúfana og kæmust að því, fyrir mig, af hverju kirkjan á svo margar og stórar jarðir, m.a. skilst mér Garðabæ og Seltjarnarnes, af hverju gerður var eilífur samningur árið 1996 um að ríkið hafi afnot af kirkjujörðum en greiði í staðinn laun presta, af hverju ríkið innheimtir sóknargjöld (eins og hver annar banki), heldur 20% eftir og skilar kirkjunni bara 80%. Eða leiðrétti mig hafi ég tekið skakkt eftir eða fengið rangar upplýsingar úr nærumhverfi mínu.
Ég ber ekki traust til kirkjunnar sem stofnunar þótt ég viti um margt gott fólk innan vébanda hennar. Það kemur mér fyrir sjónir sem skinhelgi þegar hún ætlar að safna fyrir Landspítalann - nema hún skeri verulega niður eigin útgjöld og láti það fé af hendi rakna til þess sama Landspítala.
Næst reikna ég með að kirkjan safni fyrir Rauða krossinn nema Rauði krossinn safni kannski fyrir þjóðkirkjuna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 6. janúar 2013
Ein af bókunum
Þvílík vonbrigði. Þegar ég byrjaði á Unu var ég full eftirvæntingar og var þá ekki einu sinni búin að sjá þetta myndbrot sem ég hlekkjaði hér í. Tryllir, spennusaga, Óttar, flinkur penni, bráðskemmtileg saga hafði einhver sagt. Ó, en dapurlegt að vera svo á öndverðum meiði.
Sagan byrjaði ekkert illa. Fyrstu 20 blaðsíðurnar lofuðu frekar góðu. Það er að hluta til smekksatriði hvernig manni finnst takast til með bókmenntir en ég trúi ekki að nokkur myndi deila í fyllstu alvöru við mig um það að í bókinni Unu er alltof mikið útskýrt, tilfinningar túlkaðar, lesandanum sjálfum látið of lítið eftir af upplifuninni.
Söguþráðurinn er ótrúverðugur en það er allt í lagi, hann á að vera draugalegur og skáldsagnakenndur. Una er tæplega þrítug og á son á fimmta árinu sem hún týnir í skyndilegum snjóbyl á Reykjanesi. Næsta árið gerir hún næstum ekkert annað en leita hans, fer iðulega á staðinn og skoðar gjótur og sprungur í kring, fer á lögreglustöðina með nýjar upplýsingar og spyr um nýjustu upplýsingar lögreglunnar sem eru aldrei neinar, er vakin og sofin - já, ekki síst sofandi einmitt að leita Péturs.
Það er víst byrjað að kvikmynda söguna og sýnishornið lofar góðu. Kvikmyndir geta verið lélegar en þær geta ekki gengið eins langt og skrifaður texti í að mata áhorfandann á tilfinningum þannig að ég held enn að myndin geti orðið spennandi.
Æ, ég er eitthvað svo sorrí yfir að hafa ekki kunnað að meta Unu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 4. janúar 2013
Grúppía Johnsdóttir - Ingimaría Öndólfsdóttir - Þúfa Mekkinósdóttir - Stefanía Elvisdóttir
Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Þetta síðasta er augljóst smekksatriði og það er ekki hægt að deila um smekk. Er það nokkuð?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)