Þriðjudagur, 21. ágúst 2012
Töskugjald hjá Icelandair
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 20. ágúst 2012
Smáhelvítislán
Mér finnst ég ekki þurfa að rökstyðja andúð mína á smálánum sem gera út á neyð fólks og bera miklu meira en glæpsamlega okurvexti.
Djö.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 15. ágúst 2012
Virðisaukaskatturinn úr 7% í 25,5%
Umræðan um hækkun verðlags í ferðaþjónustu hefur verið hávær síðustu dagana. Ég hef á tilfinningunni að margir hafi hátt án þess að þekkja vel til.
Hótelrekendur segja að gisting í tveggja manna herbergi muni hækka um 17%, úr rúmlega 21 þúsundi í tæp 25 þúsund. Ég myndi vilja vita hver skattstofninn er, þ.e. hvaða liður hækkar svona mikið. Þegar gistiverð er reiknað út hlýtur að koma inn í stofnkostnaður, þ.e. kaupverð og/eða lán, og svo rekstrarkostnaður, hiti, rafmagn, þrif, efni og laun, og mig langar að vita hvar hækkunin verður. Fara tæpar 4 þúsund krónur af hverri gistinótt í ríkissjóð? Kemur eitthvað af upphæðinni fram í launum hótelstarfsmanna? Þau eru fáránlega lág og hafa lengi verið. Þau eru samt skattstofn því að menn borga tekjuskatt.
Mér finnst óverjandi að hækka skatt fyrirvaralaust því að auðvitað eru menn búnir að selja inn á næsta ár í einhverjum mæli, e.t.v. miklum, en að öðru leyti finnst mér vel athugandi að hækka þetta gjald. Hins vegar gæti vantað meiri breidd í gistimöguleika, og ekki bara í átt að meiri lúxus.
Ég er leiðsögumaður en mér hefur aldrei fundist sem Samtök ferðaþjónustunnar ynnu fyrir mig, hvorki persónulega fyrir stéttina mína né fyrir fagið. Það eina sem ég verð vör við er kvein þegar þau halda að verið sé að þrengja að einhverjum einstaklingum í faginu. Það er tilfinningin.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 14. ágúst 2012
Camilla Läckberg - Ástandsbarnið
Það er góð skemmtun að vera í sumarfríi og geta legið í bókum. Ég ákvað að gefa Camillu annað tækifæri eftir að hafa jesúsað mig í bak og fyrir eftir Ísprinsessuna sem ég las fyrir sex árum.
Ástandsbarnið minnir dálítið á Grafarþögn eftir Arnald (nei, ég er ekki að segja að annað hafi stolið frá hinu) og skilaboðin eru skýr: Forðumst stríð.
Ég hef aldrei verið vinur stríðs og vopnaburðar en manni er hollt að heyra aftur og rifja upp þær helvítis hörmungar sem stríð leiðir yfir fólk. Af hverju geta menn ekki lifað í sátt og samlyndi?
Andsk.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 11. ágúst 2012
407 milljónir
Það yrði mér ofviða að borga allan hallarekstur Hörpu og það þótt við tölum bara um eitt ár, 407 milljónir króna, en ég man ekki betur en að einstaklingar eða fámenn fyrirtæki hafi á undanförnum mörgum árum fengið afskrifaða milljarða. Einstaklingar hafa fengið árlegan taprekstur Hörpu til láns mörgum sinnum og ekki verið borgunarmenn fyrir láninu.
Þegar hin ógurlega skuldastaða Hörpu kemst til tals fæ ég á tilfinninguna að ekki sé einu sinni talið henni til tekna að hún hefur kannski aukið og mun kannski auka ferðamannastrauminn sem menn vilja svo gjarnan auka. Tekjur ferðaþjónustunnar eru ekki alls staðar beinar heldur einmitt óbeinar. Fleiri tónlistardiskar eru seldir, fleiri hringferðir, meiri hótelgisting, meiri ís, fleiri flugferðir koma til vegna þess að menn komast hingað á ráðstefnur og segja frá heima hjá sér.
Hversu margir kaffibollar eru seldir ferðamönnum? Eða hversu margir skammtar af skötusel sem ég þreytist ekki á að mæra við mína túrista? Seeteufel, ljótur en svo dásamlega bragðgóður.
Þessir útreikningar eru ekki allir einfaldir en væri ekki hægt að hætta við að afskrifa hjá einu sjávarútvegsfyrirtæki og hætta að væla yfir taprekstrinum á Hörpu? Hins vegar trúi ég á betri rekstur og minni halla, t.d. með því að slökkva ljós og prenta færri efnisskrár fyrir ruslafötuna. Þetta er bara gisk út í sortann, ég þekki ekki reksturinn á Hörpu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 10. ágúst 2012
Hans í Koti - Helgi hvíti
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 8. ágúst 2012
Ferstikla - fullt hús
Get ekki látið undir höfuð leggjast að hæla Ferstiklu. Ég kom þar við í dag sossum fyrir tilviljun. Vertinn stóð í gættinni og sló á létta strengi. Fyrir utan er mynd í raunstærð af langreyði og inni eru bæði ljósmyndir og kvikmyndir í gangi. Allt var svo snyrtilegt að túristarnir mínir frá Þýskalandi dásömuðu staðinn hátt og lágt. Í hjónabandssælunni var heimagerð rabbarbarasulta unnin úr rabbarbara á næstu grösum. Og Hvalfjörðurinn var aukinheldur svo vinsamlegur að skarta sínu fegursta áður en það byrjaði að rigna (í Borgarfirði).
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 7. ágúst 2012
Vegagerð - forgangsröðun
Í dag keyrði ég upp að Laugarvatnshelli/-hellum á því almesta þvottabretti sem um getur. Það var ekki viðlit að heyra mannsins mál. Áfangastaðurinn er merktur sem merkilegur en vegurinn er hvorki heflaður né vatnsborinn. Seinna í dag keyrði ég svo framhjá Raufarhólshelli (sem hefur verið leyndarmálið mitt) og þar er verið að merkja og verandarleggja í bak og fyrir.
Í gær sá ég á Snæfellsnesi að búið er að leggja timburstíg á tvo vegu í kringum Djúpalón (sem mér finnst óþarfi).
Forgangsröðunin í ferðaþjónustu er stórskrýtin. Það þýðir ekki að stefna á milljón ferðamenn ef þeir eiga allir að hokra á sömu þúfunni og hún ekki einu sinni steypustyrkt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 6. ágúst 2012
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull
Snæfellsnesið er tiltölulega lítið sótt. Það var fjarskalega heppilegt í dag þegar ég fór hringinn með 27 þýska túrista. Vissulega voru nokkrir á gönguleiðinni milli Arnarstapa og Hellna og ýmsir við Djúpalón en hvergi bið eftir afgreiðslu eða þung umferð á vegunum.
Ég fór í Kaffi Prímus með þau í hádeginu og þar var ljómandi gott að koma. Gestastofan við hliðina styður náttúrlega vel við því að þar er líka frábær myndasýning. Verra var að geta ekki lagt rútu þar en mér skilst að bílastæðamál standi til bóta.
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull var stofnaður 2001 en núna eru allt í einu komnar alls kyns góðar merkingar, t.d. tengdar Bárði Snæfellsási og svo er búið að merkja Þúfubjarg. En mér til depurðar var búið að breyta niðurgöngunni að Djúpalónssandi (sem ég hef yfirleitt kallað Dritvík í asnaskap mínum) þannig að sumir farþega minna misstu af aflraunasteinunum.
Passa mig betur næst ... nema ég verði ekki send á Snæfellsnesið fyrr en ég er tryggilega búin að gleyma öllu því nýja sem ég lærði í dag.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 5. ágúst 2012
Lundar í Dyrhólaeyju
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 1. ágúst 2012
Leiðsögumenn og dagpeningar - eða ekki
Netútgáfa DV er ekki sú sama og prentútgáfa. Ég er bara búin að sjá þá skemmri um frían mat handa leiðsögumönnum og þykist vita að það vanti helling í fréttina sjálfa.
Sem leiðsögumaður vildi ég allra helst að svona umræða leiddi til frjórri umræðu um þessi mál almennt. Af hverju fá leiðsögumenn ekki dagpeninga þegar þeir eru langt að heiman og kaupa matinn sinn sjálfir? Hversu mikið er um að leiðsögumenn hafi pissustopp þar sem ekkert er skilið eftir annað en óþrifnaður? Ég hef ekki sagt við mína farþega sem fara ókeypis á klósettið hingað og þangað að það sé kurteisi að kaupa eitthvað í staðinn en reynsla mín er að þeir geri það. Og ég veit að sumir leiðsögumenn vekja athygli á þessu. Það er vel. Af hverju ætti sjoppueigandi að vilja fá 30 pissandi túrista sem vinka í þakklætisskyni? Vildir þú vera í sporum þess manns?
Á mörgum fundum í Félagi leiðsögumanna eru klósettmál rædd af því að það er hluti af grunnþörfum fólks að koma frá sér umframefni. Víða erlendis er rukkað fyrir klósettferðir enda þarf að kaupa pappír og hreinsiefni, borga rafmagn og laun - og þetta er ekki vinsælasta starfið í stéttinni.
Ég stoppa aldrei með farþega mína einhvers staðar af því einu saman að ég fæ eitthvað í staðinn. Ég sver það. Þótt launin séu lág finnst mér þetta ekki leiðin til að heyja kjarabaráttu. Þetta er þjónustuhlutverk og þegar starfið fer að snúast um mig fer ég annað. Og ég hef samt ríka stéttarvitund.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 31. júlí 2012
Vatnsveður í bók Auðar Övu
Sumt getur maður ekki útskýrt með öðrum rökum en tilfinningalegum. Mér var bent á rithöfundinn Auði Övu Ólafsdóttur sem ég hafði meðvitað sniðgengið vegna þess að ég hélt að listfræðingurinn í henni væri of yfirgnæfandi fyrir minn smekk. En eftir þessa ráðleggingu ákvað ég að lesa Rigningu í nóvember og ég varð trekk í trekk að leggja bókina frá mér og hlæja upphátt. Ég átti alls ekki von á því. Söguþráðurinn gefur heldur engin sérstök fyrirheit um það; kona á fertugsaldri flosnar upp úr barnlausu hjónabandi, fær vinning, tekur að sér fjögurra ára son vinkonu sinnar og fer á heimaslóðir.
En sagan var grípandi og meinfyndin.
Og mér fannst tiltakanlega áberandi að vegna veðurs tók af eina brú við hringveginn á Suðurlandi og ferðaþjónar hrósuðu happi ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 30. júlí 2012
Ferðaþjónusta hátt uppi
Ég viðurkenni að ég hef ekki borið mig eftir neinum gögnum um meinta ferðauppbyggingu á Grímsstöðum en ég get ekki ímyndað mér að sú viðskiptahugmynd sé góð sem felur í sér að byggja upp ferðaþjónustu þar sem ferðaþjónusta hefur þegar verið í boði og ekki nógu vel nýtt. Af hverju ættu menn að vilja koma í skítakulda og almyrkur núna ef þeir hafa ekki viljað það fyrir? Er það af því að það verður sérlega öflug hárþurrka sem má borga meira fyrir? Vegna þess að það verður gufubað inni? Úrvalsmatur? Norðurljós út um gluggann? Háhraðanet með erlendum fréttum? Golfvöllur!?
Ég hafði efasemdir um Kárahnjúkavirkjun á sömu forsendum, trúði ekki á viðskiptahugmyndina.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 29. júlí 2012
Laugavegurinn 26.-29. júlí
Ég hlakkaði til að ganga Laugaveginn, 57 kílómetra, í fyrsta skipti síðan ... síðast. En ég man ekki hver laug því að mér að þegar liði á sumarið væri farið að sjá mikið á honum, allt vaðandi í rusli meðfram stígnum og það mjög sóðalegu rusli. Engu slíku var til að dreifa, þvert á móti var bæði snyrtilegt og fámennt. Og ég fór enn að hugsa um markaðssetningu á landinu. Við hittum vissulega marga útlendinga á leiðinni, fólk frá Noregi, Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi, Tékklandi og Rússlandi, en aðallega Íslendinga.
Gönguleiðsögumenn eru útskrifaðir í löngum bunum (ég er sannarlega ekki í þeim hópi enda á ég nóg með að koma sjálfri mér klakklaust á milli staða) - af hverju eru ekki fleiri svona skipulagðar ferðir fyrir útlendinga?
Þarna er litadýrð, skógleysi og ólýsanleg víðátta sem margir útlendingar fara á mis við í þéttsetnu borgunum sínum. Skáparnir í Bláa lóninu stíflast vegna mannmergðar á sama tíma og víða er vannýtt auðlind aðeins fjær höfuðborginni.
Og auðvitað ætti ég sjálf að passa að rápa um allt áður en ritaðar hugsanir mínar verða að áhrínsorðum.
Ætli það verði þá ekki Fimmvörðuhálsinn næst? Ég á miðbikið eftir, Morinsheiði, Kattarhryggi og nýju eldfjöllin.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 25. júlí 2012
Sjósund
Í gær lét ég loks verða af því að vaða út í 15°C heita Nauthólsvíkina. Það var ekki hlýtt en ekki sjokkerandi kalt eins og ég bjóst við. Ég var hvorki í blautsokkum né með vettlinga en óð samt upp að hálsi ... Svo synti ég bringusund eins og svanur til að komast aftur í land.
Á ekki vanda til að veikjast en geri ráð fyrir að verða minnst 186 ára ef ég held uppteknum hætti.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 24. júlí 2012
Driss og Philippe
Ekkert hafði ég heyrt um Intouchables annað en að hún væri fyndin. Ég vissi eiginlega ekki að auðmaður réði sér aðstoðarmann og ekki að lífsgleðin væri svona svakalegur drifkraftur.
Þess vegna ætla ég ekki að rökstyðja það að mér finnst myndin óborganlega skemmtileg en mér heyrðist allur A-salurinn í Laugarásbíói sömu skoðunar. Samt verð ég að nefna að myndin er óður til þess að vera dálítið á skjön við hið viðtekna. Vona að lesandinn fyrirgefi mér það og sjái svo myndina. Og við mættum öll stíga aðeins út fyrir rammann endrum og eins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 22. júlí 2012
Der Feuerlöscher
Maður verður að hafa úti allar klær til að stækka orðaforðann sinn. Í dag var ég leiðsögumaður með þýska skipafarþega þar sem bryddað hefur verið upp á þeirri nýbreytni að láta mann segja frá öryggisþáttum, s.s. hvar útgönguleiðir eru, hvar hamrar til að brjóta rúður ef eldur yrði laus - og hvar slökkvitækið er. Ég er ekkert altalandi á þýsku og í dag rann upp fyrir mér það ljós að ég vissi ekki hvernig slökkvitæki væri á því mæta máli. Skömm mín er mikil, einkum þar sem ég hafði látið undir höfuð leggjast að lesa öryggisleiðbeiningarnar áður en ég mætti á kajann. Í þeim stóð nefnilega að maður ætti að benda á Löschzeug, eiginlega þá slökkvidótið.
Og nú ætla ég að læra þetta nýja orð, Feuerlöscher, alveg eins og ég lærði þýska orðið Sarg af fyrsta túristahópnum mínum.
Svo ætla ég í hógværð minni að skora á SAF að MÓTA STEFNU Í FERÐAÞJÓNUSTU til næstu 15 ára eða svo. Í Bláa lóninu var svo mikil teppa að um tíma var engum hleypt ofan í af því að skáparnir voru uppurnir. Ef yfirvaldið í ferðaþjónustu ynni með ferðaþjónum væri kannski hægt að stýra traffíkinni betur. Bláa lónið er með einkarekstur og getur gert það sem það vill, ég skil það, en dagurinn í dag var hvorki því né okkur hinum til sóma. Hæstráðendur í SAF geta ekki bara fabúlerað í fjölmiðlum þegar þeir hringja þangað með slys og óhöpp.
Það vantar stefnumörkun í ferðaþjónustu. Um það vorum við fleiri sammála í Bláa lóninu í dag.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21. júlí 2012
Einsleitni í mat þar sem ferðamenn koma saman?
Ég er að hlusta á Vikulokin þar sem hinn margnotaði Gunnar Smári er meðal gesta. Nú er hann hins vegar ekki að tala um SÁÁ og kannski ræða þau ekki um áfengissölu á Hrafnistu. Nei, hann kom með þann ágæta punkt að þegar 60% gesta í 101 Reykjavík eru útlendingar verður matur einsleitari og dýrari, veitingastaðirnar stíla inn á einskiptiskaup.
Þetta er meðal þess sem við ættum að hafa áhyggjur af og velta fyrir okkur þegar við hlökkum yfir því að eftir nokkur ár telji gestaflaumurinn hér milljón manns. Ágangurinn er víða orðinn svo mikill að við önnum ekki fjöldanum en samt er gefið í.
Fáum færri, fáum þá til að staldra lengur við, fáum þá til að koma utan háannar - og borgum ferðaþjónum betri laun. Hættum að reka ferðaþjónustuna með lokuð augu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 19. júlí 2012
Gýs Katla?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 17. júlí 2012
Jo Nesbø
Nú er ég búin með Snjókarlinn og þurfti að hafa mig alla við að vera ekki afundin við fólk sem truflaði mig við lesturinn. Hún kom út í Noregi 2007 en hér 2012 í þýðingu Bjarna Gunnarssonar. Útgáfufélagið er Undirheimar.
Ég ætlaði að nota flæðið og greip Hausaveiðarana sem kom út á norsku 2008 en hjá Uppheimum 2011 í þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur. Á blaðsíðu 45 gafst ég upp. Bæði fannst mér James Bond vera í bakgrunni að renna sér berhentur eftir stálvír eftir að hafa brotið saman Monu Lisu og sett í innri vasann á jakkanum og svo truflaði textinn mig nógu mikið til að ég nennti ekki meir.
Og útgáfufélagið er það sama, heitir bara tveimur líkum nöfnum.
Undarlegur andskoti.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)