Fimmtudagur, 31. mars 2011
Sama hvaðan gott kemur?
Ég sá ekki allt Kastljósið í gærkvöldi en ég fæ samt hroll við tilhugsunina um að 10 loðnir um lófana renni hýru auga til íslenska ríkisborgararéttarins. Alltaf þegar harðnar í ári hjá smáfuglunum eru langtímamarkmiðin látin fyrir róða, s.s. varðandi jafnrétti og náttúru, og hugsunarhátturinn um að það sé sama hvaðan gott komi skýtur sterkt upp kollinum.
Það er ekki allt falt ef gjaldið er nógu hátt. Þar að auki er gjaldið ekki einu sinni svo öruggt eins og dæmin sanna. Kannski er það tungumálið sem skilst, það er alls óvíst að gróðinn skili sér þótt honum sé lofað hástöfum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 27. mars 2011
Ég er hjólisti
Ég hjólaði úr miðbænum í gær upp í Grafarvog af því að ég þurfti að nálgast bók í Foldasafni. Þótt ég sé hjólisti er ég ekki virkasti hjólisti Reykjavíkur þannig að þetta voru svolítil átök. Þegar ég kom að Bílabúð Benna var ég orðin svo leið á mótlætinu að ég ákvað að hvíla hjólstigið og gekk einn rúnt á planinu.
Vá, hvað Chevrolet er fallegur bíll.
Á leið upp brekkuna rakst ég á bíl með kerru sem var lagt á gangstéttina. Öllu heldur hefði ég átt að rekast á hann, en auðvitað steig ég af hjólinu og lempaði það framhjá bílnum sem vel að merkja var þar enn þegar ég kom aftur niður eftir þannig að þetta var greinilega ekkert skyndistopp.
Ég skil illa að Sundabraut sé ekki komin sem væri afar mikil og góð samgöngubót, en ég skil alls ekki að ekki sé einhvers konar göngu- og hjólaleið úr Grafarvoginum niður í bæ. Hjólamenn þurfa virkilega að fara stofnbrautir bílanna til að komast hverfa á milli. Ég þurfti sem sagt að hjóla meðfram Grafarvoginum tvisvar í stað þess að hjóla yfir hann.
Ég var að vísu verðlaunuð með fallegum æðarfuglum.
Á leiðinni til baka hjólaði ég Bryggjuhverfismegin við stórbrautina og þá var ég afvegaleidd sem lengdi leiðina aðeins. Á leið upp brekkuna kom svo á daginn að hjólastígurinn er fráleitur.
Harðir áhugamenn um bíllausan lífsstíl geta alveg linast í borg bílanna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Föstudagur, 25. mars 2011
Laugardagsfár á föstudegi
Mér finnst það eiginlega fyndið að RÚV skuli ætla að sýna myndina sem John Travolta skein svo skært í í kvöld - öðru sinni á tæpu ári. Myndin sú er náttúrlega ekki nema 34 ára. Og dagskrárstjórinn virðist aftur ekki hafa séð hana því að hefði hann horft (eða fengið álit) væri á henni hóflegt bannmerki. Það eru nefnilega býsna fjandsamlegar senur í þessari mynd sem flestir muna sem hugljúfa dansmynd.
Þetta man ég aðeins af því að í hið fyrra sinni (á síðasta ári) urðu umræður á Facebook um ljótu senurnar og mannfjandsamlegu sem enginn mundi eftir úr bíó.
Nei, annars, þetta er ekki fyndið. Þetta er lélegt og ófaglegt af RÚV.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 21. mars 2011
Tek áminninguna til mín
Í gær voru Fjöruverðlaunin veitt í fimmta sinn. Á vef Rithöfundasambands Íslands er þennan nokkurra ára texta að finna um verðlaunin:
Þær raddir verða sífellt háværari sem segja að jólabókaflóðið og þær markaðsaðferðir, sem þá ráða ferðinni, gefi ekki rétta mynd af þeirri fjölbreyttu flóru rita sem gefin er út á Íslandi. Margar áhugaverðar bækur nái sér ekki á flot í flóðinu og drukkni jafnvel með öllu. Telja ýmsir að bókum eftir konur sé sérlega hætt við þessum örlögum.
Verðlaunin eru sem sagt veitt konum sem hafa tilhneigingu til að fara með veggjum. Ég er áhugamaður um bókmenntir en þessi verðlaun hafa farið framhjá mér þangað til núna. Ástæðan fyrir því að ég fór var að Marín, vinkona mín og langömmubarn Guðrúnar frá Lundi, var búin að lofa að flytja erindi um langömmu sína.
Hún gerði það líka, og hún gerði það vel. Fyrsta bók Guðrúnar frá Lundi kom út þegar hún var 59 ára. Hún þóttist ekkert vilja af skriftunum vita, reyndi að fara laumulega með þetta þráláta áhugamál sitt og þegar blaðamaður hringdi að sunnan til að grennslast fyrir um hana og ritstörfin gerði hún hvað hún gat til að stytta í samtalinu og draga úr öllu. Hún reyndi að þagga niður í sjálfri sér.
Nú er ég búin með tvö bindi af Dalalífi og þótt ég eigi 1600 síður eftir ætla ég samt að treina mér lesturinn og lesa ekki 3. bindið fyrr en ég fæ útgáfuna frá 2000 á bókasafninu. Ég lagði fyrir skemmstu út af bókunum og ætla ekki að endurtaka það hér.
Næst bar Guðrún Jónsdóttir, bókmenntafræðingur og bóka(vörður?) úr Borgarfirði, saman Guðrúnu og Indriða G. Þorsteinsson. Það var fróðlegt að rifja upp hvernig Guðrún hefur verið töluð niður fyrir meint kaffiþamb en Indriði upp. Samt er enn eftirspurn á bókasöfnunum eftir Dalalífi. Já, að sönnu er ekki alltaf best það sem meirihlutinn vill og velur, en Dalalíf er enn í pöntun á sumum bókasöfnum 60 árum eftir frumútgáfu.
En kannski er hugarfarið að breytast og Guðrún að fá sinn réttmæta sess. Guðrún Jóns sagði að Jón Yngvi, bókmenntafræðingur og háskólakennari, hefði einhverju sinni í tíma hafið Dalalíf á loft og beðið nemendur að hafa hugfast að það væri rangt að kalla þessar bækur ekki bókmenntir. Þetta sat í Guðrúnu og varð til þess að hún valdi bækurnar sem umfjöllunarefni í lokaritgerð.
Síðan voru verðlaunin veitt og það var hlý stund.
En nú kemur að þeim hluta sem gaf mér sinn undir hvorn. Tek aftur fram að ég kýs að taka áminninguna til mín þótt skipuleggjandi hafi gert sig seka um þöggun, óbeina kannski en samt sláandi. Þegar Ingunn tók dagspartinn saman í lokin og þakkaði gestum fyrir komuna tók hún fram að Árni Matthíasson á Morgunblaðinu ætti þakkir skildar fyrir að hafa vakið athygli á verðlaununum, fyrstu árin hefði verðlaunahafanna varla verið getið og þá ekki fyrr en talsvert var liðið frá athöfninni. Þá ræskti sig Jórunn Sigurðardóttir frá RÚV (Okkar á milli) og benti á að hún hefði fjallað um verðlaunin frá upphafi en líklega þætti Ingunni ekkert til þess koma að kona á Rás 1 hefði fjallað um þau, athyglina fengi karlinn á blaðinu.
Ég man ekki nákvæmlega hvernig orðin féllu og verð að hnykkja á því að ég tek áminninguna sem fólst, nei, opinberaðist í hógværri gagnrýni Jórunnar líka til mín. Ég held að konum hætti líka til að þagga niður góð verk kvenna. Við eigum enn langt í land og verðum að varast að reyna að falla í fjöldann - því að hann hefur ekki alltaf rétt fyrir sér.
Og nú ætla ég að halda áfram með Ljósu. Reyndar veit ég ekki hvernig Kristínu ætti að takast að skáka bókinni Sólin sest að morgni sem ég las um daginn og dáleiddi mig alveg.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 19. mars 2011
... engu til sparað?
Ég var að hlusta á hinn mæta þátt Kviku og þar sagði maðurinn að engu hefði verið til sparað. Hvernig verður svona málbreyting? Maður sparar peninga eða mikið eða lítið - eða ekkert. Er það ný þágufallslenska að segjast spara engu? Spara engu til?
Það er ekki Sigríður Pétursdóttir, umsjónarmaður þáttarins, sem sagði þetta heldur maður sem veit mikið um þýskar kvikmyndir og nú veit ég ekkert lengur hvað hann sagði.
Auðvitað fæ ég heilbrigðar efasemdir um sjálfa mig og málkennd mína. Þá fletti ég upp í google sem þekkir svo marga og margt. Á málfræði.is segir þetta:
Spara ekkert til
Orðasambandið kosta e-u/miklu/litlu/öllu til (e-s) vísar til þess er menn kosta fé/peningum til e-s og er það allgamalt í málinu. Orðasambandið spara ekki/ekkert til (e-s) er eldfornt, jafngamalt elstu heimildum. Í Íslensku hómilíubókinni stendur: vísar oss til þess fagnaðar er vér skyldum ekki til spara að vér næðum. Í nútímamáli gætir þess nokkuð að þessu tvennu sé ruglað saman svo að úr verður spara engu til, t.d.: Tyrknesk yfirvöld ætla engu til að spara í þeim ásetningi sínum (11.10.07); Engu er til sparað [til að gera tónleikana sem best úr garði] (16.8.07) og verður engu til sparað til að hafa upp á hinum seku (8.7.05).
Þá get ég haldið áfram að spyrja: Hvað veldur svona tilgangslausum málbreytingum?
Að svo mæltu verð ég að láta þess getið að mig rak í rogastans þegar ég las bls. 468 í Dalalífi Guðrúnar frá Lundi:
Um miðbikið stendur (byrjar aftast í línu): Þóra var sízt að skilja, hvað þær gætu verið að tala saman, og fékk heldur aldrei að vita það.
Málbreytingin að vera ekki að skilja eitthvað er örfárra ára gömul. Þess vegna kemur þessi lína mér spánskt fyrir sjónir. Ég er ekki að skilja þessa bók er engin merkingarbreyting frá því að segja: Ég skil ekki þessa bók, bara málbreyting. Og mér finnst hún ljót og tilgangslaus og fyrst og fremst fletja tungumálið út og gera það einsleitara. Ég er ekki að gera eitthvað merkir nákvæmlega á þeirri stundu. Ég er að tala í símann NÚNA. Ég var að hlusta á útvarpið.
Dalalíf er merkileg bók, falleg og hrífandi saga um Jón á Nautaflötum og Þóru í Hvammi (ég er bara búin með fyrstu tvö bindin) en ekki síður er hún tíðarandalýsing, saga um útjaskaðar vinnukonur og aðra sem vinna í sveita síns andlitis, muninn á búsældarlegri sveitinni og sólríkari ströndinni, um gæði og vangæftir, útþrá, dauða og uppeldi. Kannski dálítið melódramatísk inn á milli en aðallega mjög trúverðug saga af breysku fólki sem á misgóðar stundir.
Allir líta upp til Lísibetar en hún dröslaðist með sitt þungbæra leyndarmál allt lífið. Jakob var gæfur og blíður og lagði öllum gott til en þjáðist áreiðanlega í hljóði fyrir útlitið. Jón sonur þeirra er miðdepillinn sem allir þrá og allir þrá að líkjast. Honum leiðist það ekki en þegar sorgin bankar á er hann óviðbúinn og ræður illa við mótlætið.
Ég á heil þrjú bindi eftir, best að skrifa ekki frá sér allt vit um ólesin hundruð blaðsíðna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 15. mars 2011
Hver reykir gangandi í frosti og fjúki?
Svar: Ótrúlega margir.
Undanfarna daga hef ég vart getað þverfótað fyrir fólki sem hangir á sígarettunni þrátt fyrir vonskuveður. Er ekki ráð að hækka pakkaverðið á einu bretti um hálfan annan helling til að gera fólki það auðveldara að hætta? Langar ekki alla að hætta að reykja?
Ef það er mótlæti (sem ég skil ekki) skal ég á móti hætta að borða lakkrís og normalbrauð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 13. mars 2011
Dávaldurinn er tvöföld saga
Nú er ég búin að eyða nokkrum klukkutímum á hálfum mánuði í að lesa Dávaldinn eftir Lars Kepler, sögu sem lofsorði var lokið á fyrir góða þýðingu. Og ég er alls ekkert svikin, hún er spennandi og hún er vel þýdd.
Mér finnst það samt galli á sögunni hvað hún dettur í tvennt um miðbikið. Rammasagan er um lækninn og dávaldinn Erik og rannsóknarlögregluna Joona sem reyna í sameiningu að komast að því hvaða kaldrifjaði morðingi drap heila fjölskyldu af viðbjóðslegri grimmd.
Fljótlega virtist alveg liggja í augum uppi hver hinn seki væri og þá horfði ég á 400 ólesnar blaðsíður og velti fyrir mér hvað þar væri fjallað um. Það var alveg skemmtilegt að þá var farið út í alls kyns sálfræðilegar bollaleggingar - en þá kom hliðarsagan um leitina að syni Eriks. Og þar er sumt óleiðinlegt en sumt alveg hrútleiðinlegt, alltof ævintýralegt og minnti mig á leðurblökumyndina sem George Clooney lék í, mynd sem var ágæt fram í miðbikið og varð svo hvínandi óskiljanleg og leiðinleg eftir því. Dávaldurinn minnir mig líka dálítið á Da Vinci lykilinn sem er með ofmetnari bókum. Sú bauð upp á gátu sem höfðaði til mín og svo voru langir og hrútleiðinlegir kaflar með eftirför, byssuhríð, konu hlaupandi á háum hælum, þyrluflugi og öðru svona yfirgengilega hraða-spennutengdu. Dan Brown ætlaði að heilla alla markhópa í einni bók en tryggði sér um leið að ég hef ekki lesið fleiri bækur eftir hann. Og fæ enn kjánahroll við tilhugsunina um lykilinn hans.
Núna eru tveir dagar síðan ég kláraði Dávaldinn og ég er strax byrjuð að gleyma endinum. Það þarf ekki að spilla upplifuninni því að þegar til stykkisins kemur er það eiginlega sagan af Lydiu og uppvexti hennar, dáleiðslunni og úrvinnslunni sem sagði mér eitthvað. Unglingurinn Josef sem er næstum dáinn í byrjun rís af sjúkrabeði, hleypur uppi fólk og ratar á ólíklegustu staði - ótrúverðugt bull sem er komið í glatkistu minnisins. Og þótt ég sé byrjuð að gleyma kjánalega söguþræðinum þori ég næstum að hengja mig upp á að hann var ekki hnýttur alveg í lokin.
Best að lesa með væntingastuðulinn lágt stilltan.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 10. mars 2011
Hvert stefnir í skólamálum?
Sá megnið af fínum þætti um menntamál í sjónvarpinu í gærkvöldi. Vinnuskylda kennara er gríðarlega viðkvæmt mál og vissast að tala varlega. Síst langar mig að kasta rýrð á góð störf góðra kennara. Reyndar held ég að flestir góðir kennarar njóti virðingar og aðdáunar bæði nemenda og foreldra þeirra þannig að orð mín mættu sín líklega hvort eð er lítils ...
En hvað er góður kennari? Í mínum augum er góður kennari áhugasamur um starfið, vel að sér í faginu og umhyggjusamur. En góður kennari getur átt erfitt uppdráttar í fjandsamlegu umhverfi og ég held, já, ég held að skólastarf á Íslandi takmarkist sums staðar, kannski víða, af of mikilli rammasetningu. Ég held að þeir sem gagnrýna að skólastarf taki fullmikið mið af kjarasamningum kennara hafi nokkuð til síns máls.
Sif Vígþórsdóttir hreif mig í þættinum í gær og ekki í fyrsta skipti. Í mars 2008 las ég um starfið í Norðlingaskóla og hugsaði það sama og núna, að hún væri frumkvöðull og að of fáir væru á þessari vegferð. Kannski binda sumir skólastjórar viðveru kennara meira, kannski vinna kennarar meira saman, kannski fara fleiri kennarar í vettvangsferðir en áður og og meira en ég endilega veit um, en meðan ég kenndi fannst mér ansi mikið mér gert af því að staglast í því sama. Áhugi nemenda er frumkraftur en það að reyna að virkja hvern og einn gerir öðruvísi kröfur til kennara. Meiri kröfur.
Ég vona að skólastarf stefni fram á við eins og öll umræðan í þættinum í gær lofaði. Ekki kenna meðaltal og orðflokkagreiningu bekk eftir bekk eftir bekk og gera bæði áhugalausa og áhugasama nemendur leiða.
Kennarinn minn í stjórnsýslufræðum er skýr í framsetningu, orðar hlutina af skynsemi og hlustar eftir röddum nemenda - en sem háskólanemar verðum við fyrst og fremst að hafa eigin innri aga. Hvort sem ég spreyti mig samt á prófinu eða ekki finnst mér ég skilja vanhæfi, málsmeðferðarhraða, andmælarétt o.fl. betur en ég gerði 5. janúar.
Lifi framsækið skólastarf á öllum skólastigum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 6. mars 2011
Bloggarafyrirkomulagið á dv.is
Bloggarar, sem eru ekki einsleitur hópur heldur hópur fólks með mismunandi þekkingu og mismunandi sýn, eru mér í sumum tilfellum mikilvægari fréttamiðlar en hinir meintu fréttamiðlar. Ef við ætluðum að byggja alla okkar þekkingu á bloggum yrði hún þó grágötótt, ég geri mér alveg grein fyrir að fréttir af ýmsu berast bara um eiginlegar fréttagáttir, en sýn bloggara er sem sagt mikilvæg viðbót og á köflum miklu skarpari en fréttamannanna. Ég hef þó samúð með fréttaflutningi því að hann á allur að vera byggður á staðreyndum og hinu óhrekjanlega en bloggarar geta leyft sér að leggja út af, túlka og spekúlera út og suður.
Já já, ég er farin að hljóma eins og Ragnar Reykás en mér finnst í alvörunni samhengi í þessu hjá mér, fréttir eiga að vera hlutlausar og yfirvegðar og eru fyrir vikið oft bitlausar og svo taka bloggarar fréttirnar og gefa þeim bit. Stjórnmálamenn geta líka leyft sér að segja að eitthvað sé það besta/versta í sögunni en t.d. sagnfræðingar verða að finna heimildirnar og geta þeirra.
Ég skil samt engan veginn þessa frétt um að JÁJ ávirði SH með vísan í greinargerð. JÁJ leggur augljóslega út af orðum í greinargerð sem fylgir ekki fréttinni og mér verður fyrst fyrir að hugsa að hann leggi, vísvitandi, ranglega út, beiti háði sem fréttavefurinn sannreynir ekki. Eitthvert árið gæti mér m.a.s. dottið í hug æsifréttamennska en ég held að þetta sé einfaldlega vangá BO sem virðist fyrir vikið ganga erinda JÁJ.
Þetta er það fyrsta sem ég hugsa þegar ég les fréttina. Veit ekki hið sanna. Finn ekki sambærilega frétt á Vísi og veit ekki með aðra miðla.
En það sem ég ætlaði að segja var að fínir bloggarar á DV blogga sumir hverjir aðeins of oft fyrir minn smekk og þess vegna gæti það farið svo að sama bloggaranafnið væri 10 sinnum í beinni línu niður. Nýjasta blogg bloggarans ætti að ýta eldri bloggum þess bloggara út af listanum, listinn yrði miklu áferðarfallegri og meira aðlaðandi. Það gerir Moggabloggið og sjálfsagt fleiri.
Það finnst mér. Jónas, Jenný og Teitur eru nú í margriti en áður var Eiríkur með stöku línurnar oft eftir nánast endilöngum listanum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 5. mars 2011
Var Howard Davies kjörinn rektor LSE?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 4. mars 2011
Starfsmenn í úthringingum
Ég hjó eftir því í vikunni að níu starfsmönnum Símans sem unnu við að hringja í fólk og bjóða aðrar áskriftarleiðir var sagt upp vegna þess að þeir hökuðu við viðskiptavini án þess að hringja.
Það segir RÚV og það er eina ljósvakafréttin sem ég man eftir um málið.
Þá undraðist ég að upplýsingafulltrúinn virtist hafa samúð með starfsmönnunum sem höfðu brotið af sér en vék ekki aukateknu orði að þeim óþægindum sem viðskiptavinirnir höfðu hugsanlega orðið fyrir, sagði jú eitthvað um að viðskiptavinir hefðu fengið betra boð. Á þeirri stundu fannst mér að alls konar fólk hefði fengið upphringingu en það mun aðeins hafa verið hringt í viðskiptavini Símans.
Í gær heyrði ég á göngu minni um borgina að líklega hefði starfsfólkið verið skikkað til að gera þetta en hefði þurft að taka skellinn þegar einhver kvartaði. Og það er tónninn í Pressunni sem virðist hafa talað við báða aðila.
Ekkert veit ég - annað en það að ég vann einu sinni við símsölu á tryggingum tvö kvöld í viku og fannst það svívirðilega erfitt. Þegar kom að líftryggingum eftir áramót fannst mér að ég væri að boða ótíðindi, gat það ekki og hætti. Ekki held ég að nokkrum manni hafi dottið í hug að haka við einhvern sem sagði nei eða svaraði ekki.
Svo finnst mér endilega að Síminn hafi verið í fréttunum fyrir nokkrum mánuðum vegna einhvers leiðindamáls. Það kann að vera misminni en ég er samt fegin að vera annars staðar í viðskiptum. Ég vona að ég sé ekki eins andavaralaus og tugir símnotenda voru alveg áreiðanlega þar sem sagan segir að hakað hafi verið við 500 manns. Hversu margir kvörtuðu? Og fengu allir hinir betri áskrift?
Tortryggna Berglind er öll gengin efasemdunum á hönd.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 3. mars 2011
10 tonn af þorski syndandi í héluðu grasinu
Það er ekki gott að hugleiða almennt út frá óhappi einstaklings, það er eins og maður geri út á óhappið, en ég gat ekki að mér gert að hugsa um ástand veganna þegar ég heyrði um flutningabílstjórann sem lenti út af veginum í Kelduhverfi í vikunni, skarst og tókst svo að brjótast út úr stýrishúsi bílsins og komast á næsta bæ þar sem hringt var eftir sjúkrabíl.
Ég hef mikla samúð með manninum og held alls ekki að hann hafi gert neitt vitlaust en er þetta ekki skýr vísbending um að a) vöruflutningar ættu ekki að vera á vegunum og b) það ætti að vinna þorskinn þar sem hann er dreginn á land?
Annað hvort ætti að flytja vörur sjóleiðina eða koma upp lestakerfi sem vörur eru fluttar eftir. Og er ekkert frystihús á Raufarhöfn?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)