Færsluflokkur: Dægurmál
Mánudagur, 14. apríl 2008
Ætlaði ekki Björgólfur að gera Fríkirkjuveg 11 að safni?
Fékk hann ekki húsið keypt með því fororði? Ég man ekki betur. Af hverju ætti hann þá að vilja loka garðinum til að tryggja öryggi tignargesta? Ég geng iðulega í gegnum þennan garð og mér finnst mikið frá mér tekið ef Björgólfur Thor fær að loka honum.
Mér leist hins vegar vel á að hann nýtti húsið sem safn. Ég hélt að hann ætlaði að gera sem mér líkaði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 14. apríl 2008
Um refsingar fyrir umferðarlagabrot
Síðunni barst bréf frá fyrrverandi framhaldsskólakennara á fertugsaldri:
Ef ég tæki nú upp á því að aka ... tja, við skulum segja of hratt eða undir áhrifum áfengis/lyfja, mundi ég missa bílprófið. Ég fengi líka sekt og punkta í umferðarlagakerfið. Ef ég (réttindalaus) stuttu seinna tæki svo upp á því að keyra (þrátt fyrir réttindaleysið) og væri tekin (edrú og á löglegum hraða en bara svona óheppin að lenda í úrtaki löggunnar) gæti ég lengt þann tíma sem ég er réttindalaus. Þannig var það a.m.k. einu sinni. En unglingur, sem ekki er kominn með ökupróf, sem stelur bíl foreldra sinna og er tekinn þegar aksturslagið er eitthvað óvenjulegt, fær ekki frestun á bílprófsleyfi og ekki punkt í kerfið! Hann fær bara 10 þús. kr. sekt og spjall við einhvern frá barnaverndarnefnd! Það er refsingin! Er það nema von að fólk brjóti aftur og aftur af sér í umferðinni á Íslandi þegar refsingarnar eru svona. Refsingin fyrir þetta brot unglingsins hefði átt að vera 100 þús. (en ekki 10 þús.), margir punktar í kerfið og frestun á bílprófi í a.m.k. hálft ár. Vissulega má segja að foreldrum sé í sjálfs vald sett hvernig þeir refsa börnum sínum en kerfið á líka að refsa brotafólki ... og þá helst með háum peningasektum því peningar eru það eina sem Íslendingar skilja. Hnuss!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 13. apríl 2008
Krossgötuþáttur Hjálmars Sveinssonar á laugardögum
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 13. apríl 2008
Hið meinta atvinnuleysi framundan
Hvað byrjar fólk að skera niður í hugsanlegri kreppu? Hvar missir fólk vinnuna? Ég giska á að nú leiti ýmsir fasteignaráðgjafar að annarri vinnu en margir þeirra hljóta að búa að digru árunum þegar þeir tóku fulla þóknun þótt vinnuálagið við marga söluna hljóti að hafa verið lítið og vinnan nánast áreynslulaus. Menningarlíf blómstrar oft þegar harðnar á dalnum þannig að ég hugsa að listamenn þurfi ekki að kvarta.
Ef ég þyrfti að skera niður munað myndi ég trúlega byrja á hárgreiðslustofunni og veitingastöðunum, kannski líka nautnanuddinu. Er ekki fullmikið að borga 5.500 kr. fyrir klippingu sem tekur korter? Enn frekar þegar næsti kúnni stendur á línunni og bíður eftir að komast í stólinni? Og klipping og strípur á 15.000? Ef kúnninn fer fjórum sinnum á ári er hægt að spara 60.000, a.m.k. 30.000 ef hann fer annars í annað hvert skipti.
Frænka mín ein sem fermist á næsta ári var á leið í ljós nýlega. Ég rak upp stór augu, hélt í alvörunni að ljósabekkir heyrðu sögunni til. Hverfa þeir þá ekki a.m.k. í hallærinu?
Vinafólk fór nýlega með 20.000 kr. gjafakort á veitingastað í miðbæinn. Hún dæsti áður en þau fóru af stað og hafði áhyggjur af að þau gætu aldrei klárað inneignina. Það endaði hins vegar með að þau borguðu aukalega nokkra þúsundkalla. Er eðlilegt að magafylli kosti vel yfir 10.000 á mann á skikkanlegum veitingastað á laugardagskvöldi? Óhjákvæmilegt? Mun sá staður pluma sig í hallærinu framundan?
Er hægt að sleppa utanlandsferðum í þrengingum? Stórum jeppum, hjólhýsum? Mun starfsfólk í þessum geirum annars kveðja starfið sitt? Hvert fer það þá?
Mikið væri gaman ef óháður fjölmiðill velti þessu fyrir sér. Annars hef ég 0 trú á spádómum fólks sem hefur hagsmuna að gæta. Spádómar um mannlega breytni hafa ekki forspárgildi, þeir hafa áhrif!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 11. apríl 2008
Unicef að missa það
Af örlæti mínu læt ég 1.000 kr. af hendi rakna til Unicefs í hverjum mánuði. Ég veit að þetta er ekki há tala en manni er alltaf sagt að smáupphæðir geri gæfumuninn í þeim löndum sem peningurinn rennur til.
Þegar ég sé þessar yfirmátahallærislegu auglýsingar frá Unicef um vatn og vatnsviku langar mig mest að afturkalla lítilræðið. Kjánahrollurinn gerir næstum því út af við mína góðu vitund. Öll myndbrotin sem ég hef séð eru hörmuleg; þegar Ilmur hneykslast á stúlkunni sem veit ekki að Þröstur Leó grettir sig fyrir góðan málstað en sýnu verst er þegar Bjarni Ármanns fær unaðshroll yfir vatninu.
Það er unnið gegn góðum málstað.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 10. apríl 2008
Er þorskurinn skotinn í síldinni?
Miðvikudagur, 9. apríl 2008
Miskunnsami Samverjinn lifir enn góðu lífi
Gummi bróðir stendur í flutningum og ég er svo góð litlasystir (af því að hann er svo góður stóribróðir) að ég rétti honum stundum hjálparhönd. Í kvöld reyndi ég að rétta honum litlafingur við flutning á þvottavél. Sem við stóðum fyrir utan heimili hans í miðborginni, kannski dálítið rotinpúruleg og uppburðarlítil, bar að ungan karl og unga konu. Sá var ekki að tvínóna þegar hann sá aumingjaskapinn og bauð fram aðstoð við þvottavélarburð.
Ekki bara var hann mjög snöfurmannlegur við þetta í alla staði, heldur stóðum við að burði loknum á hjali lengi kvölds. Riddaramennska er sko ekki liðin undir lok.
Mig langaði að skrásetja með mynd - en feimnin aftraði mér.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 8. apríl 2008
Er nokkur kreppa?
Mér fannst endilega að það væru alveg sérlega fáar auglýsingar í Silfri Egils á sunnudaginn. Ég minnist þess að það barst í tal á heimilinu. Og maður hugsaði að þarna sæi kreppunnar stað.
Í dag frétti ég að góðvinur minn hefði ráðið sig á auglýsingastofu á föstudaginn og eytt allri helginni í að semja texta að óljósri sjónvarpsauglýsingu. Og við rifjuðum upp kreppuna sem var talað um árið 2002 sem gekk yfir meðan við depluðum augunum snöggvast. Sér maður bara kreppuna útundan sér þar sem sjónsviðið er hvað lélegast?
Ekki ætla ég þá að kvarta yfir því.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 7. apríl 2008
Man einhver Guðna læks?
Þegar Guðna Kolbeinssyni hafði orðið á, þegar Guðni Kolbeinsson beygði í útvarpi nafnorðið lækur í eignarfalli læks og sá svo, reyndar ranglega, að sér hefði orðið á í messunni hætti hann með útvarpsþættina. Honum varð svo um mistökin að honum þótti sér ekki lengur sætt.
Var það ekki snarboruleg hegðun?
Mánudagur, 7. apríl 2008
Hver er þessi Leroy?
Í myndbandinu kennir hann alls kyns einföld dansspor, alls kyns ...:
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)