Færsluflokkur: Dægurmál
Fimmtudagur, 30. apríl 2020
Helmingur mannkyns án atvinnu?
Menn eru byrjaðir að giska á að eftirköst kórónuveirunnar verði að helmingur mannkyns verði án lífsviðurværis. Ég hef séð bollaleggingar um að helmingur verði án atvinnu sem mér finnst ekki eins alvarlegt. Miðað við talningu nálgast fjöldi jarðarbúa 8 milljarðana óðfluga, þrátt fyrir dauðsföll telur stöðugt upp, ekki niður. Núna er talan 7.781.208.430 manns. Samt hafa 2.503.282 börn undir fimm ára aldri dáið á árinu og 6.777 manns úr hungri Í DAG.
Hagkerfi eru ekki upphaf og endir alls. 100% starfshlutfall, 40 tíma vinnuvika ekki heldur. Það sem skiptir máli er að fólk hafi í sig og á, haldi heilsu og geti leyft sér eitthvað. Það er eðlilegt að við leggjum öll eitthvað af mörkum. Í sumum heimshlutum streðar fólk allt lífið og þannig held ég að það hafi verið á Íslandi þangað til fyrir hundrað árum eða svo. Við sem erum á dögum núna getum ekki skilið hvað lífið muni hafa verið erfitt og lítið spennandi. Mikil ferðalög Íslendinga eru tiltölulega nýtilkomin. Núna erum við mörg sem náum nokkuð góðu jafnvægi milli vinnuframlags og frítíma. Hvað ef við reyndum að jafnvægisstilla enn meira og hugsa ekki allt út frá hagvexti? Hagvöxtur eykst ef rúða brotnar, flugvél bilar eða maður fær krabbamein. Er það besti mælikvarðinn á velsæld og líðan? Auðvitað eykst hagvöxtur líka með meiri framleiðni. En hvað eru íbúar jarðar að framleiða? Skrilljón boli í þúsund litum svo við getum mætt í vinnuna í öðrum fötum í dag en í gær. Mat sem við getum ekki klárað. Lúxusskemmtiferðaskip sem byrgja okkur sýn. Svakalega mikið af einnota dóti sem safnast í skápum sem við þurfum síðan að framleiða og kaupa fleiri til að koma öllu dótinu fyrir.
Sjálf á ég alveg haug af fjölnota plastdöllum sem eru aldrei allir í notkun í einu. Aldrei.
Hvað með að skoða neyslumynstrið okkar, ferðahegðun og kauphegðun?
Það er svakalegt að fólk deyi úr hungri, vosbúð, eymd, sársauka, deyi vansælt, afskipt, deyi að óþörfu, en það er ekki svakaleg tilhugsun í mínum augum að hagkerfið hægi á sér, að kjör jafnist út, að fólk vinni eins og það þarf og getur. Mér leiðist sóun og ég held að við höfum verið dugleg að framleiða fyrir glatkistuna.
Að lokum legg ég til að betur verði samið við stéttirnar sem sinna börnum, sjúkum og gömlum en stéttirnar sem vakta peningana.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 29. apríl 2020
Atvinnuleysið er tímabundið
Ég held að við vitum öll að við komumst tiltölulega fljótt upp úr dýpsta öldudalnum vegna kórónuveirunnar. Einangrun, sóttkví og takmarkað samneyti fólks virkar og Ísland verður spennandi áfangastaður strax í sumar vegna víðáttunnar og fámennisins.
Engu að síður sýnist mér augljóst að vegna mikils útstreymis fjár úr ríkissjóði, hvort sem það var handbært fyrir eða er tekið að láni í einhverjum mæli, muni skattheimta aukast á næstu árum, minna verði byggt upp og minni þjónusta veitt. Það hlýtur að bitna á grunnþjónustu, því miður. Þess vegna er brýnt að fyrirtæki sem fá fyrirgreiðslu taki ekki upp á þeim andskota að borga sér arð eða kaupa bréf í sjálfum sér. Þetta er tekið fram í lagasetningunni en því miður er full ástæða til að óttast stóru fyrirtækin.
Við munum borga 2.000 starfsmönnum Icelandair laun í uppsagnarfresti til að tryggja afkomu þeirra og vonandi rætist fljótt úr þar en hver mun síðan eiga Icelandair þegar rofar til? Ég flaug einu sinni með Icelandair á síðasta ári og borgaði (eða stofnunin sem vildi fá mig í viðtalið) sjúklega hátt verð fyrir vont sæti en kannski var ég bara óheppin. Ég sé í mínum vinahópi mikla væntumþykju í garð félagsins og vonandi stendur það með sínu fólki þegar við erum komin í gegnum skaflinn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 27. apríl 2020
Með málfræði í augunum
Ó, ég hlustaði á svo dýrlegan þátt um málfræði, Orð af orði, í gær. Ég er ástríðufullur áhugamaður um efnið og þessi þáttur var stórskemmtilegur. Stjórnendur fjölluðu um greinarmerki af mikilli alúð og mig blóðlangar að lesa þáttinn líka, ekki bara hlusta.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 26. apríl 2020
Music appreciation
Eitt af því sem ég hef öfundað Trausta bróður minn af er að þegar hann var í þjóðfélagsfræðinámi í Bandaríkjunum fyrir margt löngu valdi hann áfanga sem hét music appreciation, einhvers konar hraðkynningu á tónlistarsögunni. Mig vantar svoleiðis af því að ég hef hvorki þekkingu né nógu mikinn áhuga á tónlist. Hins vegar finn ég alveg að tónlist er mér mjög mikilvæg og hef gaman af mörgum lögum.
Atvik höguðu því þannig á sumardaginn fyrsta að ég fór að leita að tilteknu Bítlalagi sem ég fann og allt í einu er ég orðin mikill aðdáandi Pauls McCartneys. Þvílík hlýja, þvílíkur húmor, þvílík manngæska sem stafar frá honum, að ógleymdri tónlistinni.
Og í gærkvöldi var frábært minningaferðalag í boði hjá RÚV. Ég hef aðallega sóst eftir umræðuþáttum í útvarpi, ekki síst um pólitík og samfélagsmál, en ég er að hugsa um að mennta mig í tónlist það sem eftir er. Ég á bara svo grefilli mikið ólært.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 24. apríl 2020
Bróðir minn er þorskur
Ég er ekki að segja að hann sé heimskur enda veit ég ekki hvort þorskar eru það. Þeim eru bara búin dálítið óheppileg æviskilyrði ef þeir lenda í netum sjómanna. Nei, Gummi bróðir er þorskurinn sem lifði netaveiðarnar af og hreykir sér nú eins og hann sé útgerðaraðallinn. Hann þverskallast við að endurgreiða skuld við mig sem hann og lögmaðurinn hans kalla fyrnda.
Ég ætla að rifja örsnöggt upp hvernig í landinu liggur. Árið 2008 keypti hann íbúð sem hann átti ekki fyrir og fékk lánað hjá mér handveð. Bankakonan fullyrti við hann að þetta væri formsatriði og Gummi fullyrti við mig að þetta væri formsatriði. Ég var blinduð af fjölskyldukærleik, öðru nafni meðvirk, og fannst óþarfi að bankinn hirti alls konar gjöld af svona formsatriði þannig að ég lánaði honum handveð.
Svo gat hann ekki borgað og það var enginn forsendubrestur vegna hrunsins, það er einfaldlega óráðsía manns sem kann ekki að fara með peninga, og bankinn gekk að MILLJÓNUNUM MÍNUM FIMM. Til viðbótar þessu hafði ég lánað honum tvær milljónir til að borga rekstrarreikninga vegna sjoppu sem hann átti (að nafninu til). Af hverju var ég svona múruð? Ég var nýbúin að selja íbúð og ekki búin að finna íbúðina sem ég vildi kaupa.
Hann átti ekki fyrir skuldinni fyrr en í fyrra þegar hann fékk greiddan út arf en hann og lögmaðurinn hans vilja núna ekki að Gummi borgi skuldina af því að ég byrjaði ekki að ganga eftir henni innan fjögurra ára frá lántöku.
Ég er ekki banki, þetta var ekki viðskiptakrafa, ég var ekki í áhætturekstri, ég var ekki með neina gróðavon, ég var litla systir óvirks alkóhólista að gera honum peningalegan greiða enda hefði hann annars beðið mömmu og pabba í eitt skiptið enn og ég vildi hlífa þeim.
Ég er auðvitað búin að afskrifa þennan bróður en ekki skuldina. Ég geng eftir henni í tölvupósti en á eftir að fara til hans á Sólheimum þar sem hann er garðyrkjumaður skv. símaskrá. Ég treysti mér ekki til að tala við hann í síma af því að til langrar fortíðar veit ég að hann hlustar aldrei. Ég á handskrifuð bréf sem bæði ég og mamma skrifuðum honum fyrir meira en 20 árum til að útskýra sjónarmið sem hann hlustaði aldrei á en samt var ég meðvirk með göllunum á honum til ársins 2008. Eftir það hætti ég reyndar að greiða götu hans. Hann hætti ekki að betla, hann vildi m.a. að ég keypti gamla tölvu í greiðaskyni af einhverjum ólöglegum leigjanda hjá honum til að sá gæti borgað Gumma leiguna! Ég veit að það er talað um skattsvik á Íslandi sem þjóðaríþrótt en meira að segja þar er Gummi þorskurinn í hásæti sínu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 23. apríl 2020
Þegar hótel standa tóm ...
... og fólk er heimilislaust mætti kannski samþætta lausn að einhverju leyti frekar en að margir tapi öllu. Hótel eru ekki heimili og lausu hótelherbergin eru langtum fleiri en heimilislaust fólk á Íslandi en er ekki hægt að hugsa aðeins skapandi í þessum málum? Ég tek fram að ég las þessa hugmynd en fékk hana ekki sjálf, þ.e. að heimilislausu fólki yrði boðin langtímagisting á annars tómu hóteli.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 21. apríl 2020
Efnahagslegt kul
Vegna þess að allt hrökk fyrirvaralaust í lás án þess að við fengjum svigrúm til að skipuleggja góða nýtingu á dauðum tíma er fyrirsjáanlegt að á næstu árum muni skattbyrði aukast, innviðir veiklast og þjónusta minnka. Það er leiðinlegt en það er ómögulegt að horfa framhjá því.
Ég fæ lítinn skell en ég mæti tjóni mínu með glöðu geði ... ef fyrirtækin sem hafa fengið geðveika fyrirgreiðslu á minn kostnað og annarra skattgreiðenda undanfarna áratugi stíga fram og gangast við ábyrgð sinni. Er ekki einhver blaðamaður til í að spyrja framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins hvort stöndugu fyrirtækin séu ekki til í að hlaupa undir bagga af samfélagslegri ábyrgð frekar en að skara fyrst og fremst eld að eigin köku? Allir talsmenn allra málaflokka virðast fyrst og fremst væla fyrir hönd þeirra sem hafa það allra verst og enginn nema Margrét Kristmannsdóttir hjá Pfaff virðist til í að horfa í eigin barm.
Ég þigg alveg uppbyggilegar áminningar um jákvæða einstaklinga í framvarðasveit atvinnulífsins. Ég man eftir einum og það er Kári Stefánsson.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 21. apríl 2020
Punktur, punktur, komma, strik
Ríkisútvarpið fær stundum hjarta mitt til að slá örar. Í nýjasta þættinum af Orð af orði tala stjórnendur um greinarmerki af mikilli umhyggju og ástúð. Ég þyrfti eiginlega að komast í handritið því að mig blóðlangar að hafa dæmin fyrir augunum líka.
Punktur, komma, depilhögg og íslenskar gæsalappir ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 17. apríl 2020
Ferðaþjónustan á heimsvísu
Ég hef samúð með þeim sem eru verkefnalausir, verklausir, iðjulausir, tekjulausir, leiðir, framlágir, blankir og lúnir. Ég skil að höggið sem féll fyrirvaralaust á ferðaþjónustuna um allan heim var óvænt, einmitt fyrirvaralaust. Sjálf ætlaði ég til Riga í maí en nú er búið að blása þá ferð af og einhver tekur skellinn, annað hvort við sem ætluðum í ferðina eða ferðaþjónustan í því landi, sem sagt skattgreiðendur.
Ég hef samúð með þeim sem ganga um eirðarlausir og hungrar í eitthvað að gera, eitthvað skapandi, gjöfult, merkingarbært og tekjuaukandi. Biðstaða er alltaf vond, það er alltaf vont að sjá ekkert fram í tímann.
Við erum örugglega öll sammála um þetta.
Hins vegar finnst mér undarlegt þegar tjónið er metið á 330 milljarða núna en hagnaðurinn hefði aldrei verið metinn svo hátt í góðu árferði.
Ég var viðloðandi ferðaþjónustuna í 12 sumur og veit alveg að framlínufólkið í greininni hafði almennt ekki gott upp úr sér. Ef tjónið er núna 330 milljarðar hefur einhvern tímann verið gróði og ég spyr: Hvert rann hann? Bjuggust menn aldrei við mögru ári? Geta fyrirtæki ekki rekið sig eins og heimili sem leggja fyrir?
Ég veit alveg um dæmalausa tíma og skil að róðurinn er þungur fyrir marga. Marga en ekki alla.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 16. apríl 2020
Ég sakna kommanna
Það er svo erfitt að segja þetta án þess að vera eða virðast vera að nöldra en ég skil ekki af hverju fólk notar ekki greinarmerki þegar það skrifar athugasemdir hér og þar. Ég er auðvitað farin að venjast því og misskil ekki það sem fólk skrifar en það er samt hvimleitt. Ég man eftir svari fyrir nokkrum árum sem byrjaði á að viðmælandinn var taggaður og svo kom sögn sem er eins í 1. og 3. persónu og ég hélt að sá sem skrifaði væri að tala um mig en hann var að skrifa um sjálfan sig. Þetta verður best skýrt með (tilbúnu) dæmi:
Einar Einarsson reyndi að komast inn hjá þér á sunnudaginn.
Athugasemdina skrifaði Óskar Óskarsson og var að tala um að hann hefði ætlað að koma í heimsókn til Einars á sunnudeginum, ekki að Einar hefði verið á leiðinni til mín. Flókið? Það er aðeins minna flókið þegar maður hefur upphaflega innleggið og sér taggið.
Hér sést að komman skiptir öllu:
Einar Einarsson, reyndi að komast inn hjá þér á sunnudaginn.
Og ég sé þetta því miður meðal vina minna í málfræðingastétt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)