Sunnudagur, 20. september 2020
Eplaedik
Fyrir nokkru keypti ég eplaedik sem kvað vera meinhollt og sá þegar ég kom heim að á upplýsingamiðanum stóð með míkróletri: Geymist í kæli eftir opnun og neytist innan 5 daga. Samt eru neysluleiðbeiningarnar: Setjið 1-2 msk af eplaediki í 1 dl af vatni ... og í flöskunni eru 750 ml sem ættu að duga í margar vikur á venjulegu heimili. Þetta er ekki drykkur sem maður stelst í, þið vitið, hann er mjög beiskur og bragðvondur en á sem sagt að vera hollur.
Ég sendi framleiðandanum fyrirspurn um geymsluþolið og hann sagði að það væri meira en fimm dagar eftir að innsiglið er rofið (geymsluþolið er annars gefið upp til maí 2022). Nú er ég í heila viku búin að fá mér slurk úr flöskunni daglega, auðvitað blandaðan við heilt vatnsglas, og er rétt komin niður í axlir. Og ég er öll orðin grettnari en ég var ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)