Mánudagur, 8. mars 2021
1,2 milljónir á mánuði?
Hvað kostar að reka einstakling? Hvað kostar matur, lyf, húsnæði, rekstur þess og annað það sem veikburða fólk á efri árum þarf? Víglínan hefur eftir forstjóra Grundarheimilanna að það séu 1,2 milljónir króna. Á mánuði.
Ég hefði viljað sjá sundurliðun og kannski verður hún í boði ef einhver spyr Gísla Pál Pálsson.
Hvað kostar maturinn? Lyfin? Húsnæðið? Laun umönnunarfólksins? Launin hans Gísla? Laun annarra millistjórnenda? Er greiddur arður og þarf að fjármagna hann? Ég er ekkert að fullyrða, ég spyr bara.
Ef rekstur eins einstaklings er verðlagður á 1,2 milljónir ímynda ég mér að hægt sé að hagræða án þess að þjónustan skerðist. Á Hrafnistu var þvotturinn sendur i Fönn þótt fullbúið þvottahús væri á staðnum. Á Hrafnistu var sirka helmingi matarins hent þegar ég fylgdist þar með. Á Hrafnistu var umboðsmaður sjúklinga sem var ekkert nema elskulegheitin. Þá meina ég ekkert annað. Hvernig er það á Grund? Eru þar starfsmenn upp á punt?
Og í hvað fara skattarnir sem við borgum alla starfsævina? Velferðarkerfið, ekki satt? Erum við þá aldrei búin að leggja inn fyrir kostnaðinum af okkur þegar við verðum minna sjálfbjarga?
Ef þessi reikningur yrði að veruleika myndu flestir koma sér í skuldir til að þurfa ekki að borga reikninginn. Ég hef metnað til að vera skilvís en ég hef engan metnað til að láta arðræna mig.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)