Mikið að borga og lítið að fá

Ég hef ekki brjálæðislega sannfæringu fyrir þessu en finnst ég skulda sjálfri mér að hugsa upphátt um meðlög eftir að hafa boðað slíkt vers.

Einhverra hluta vegna þekki ég engar einstæðar mæður (nema reyndar eina en það er svo nýtilkomið) þannig að ég veit ekki úr nærumhverfi mínu hvernig mæðrum reiðir af eftir að þær skilja við barnsfeður sína.

Ég þekki hins vegar feður sem ekki hafa forsjá með börnum sínum. Og þeim finnst þeir borga of mikið. Greiðslan með barni til 18 ára aldurs er 18.300 á mánuði (námundað). Á ári eru það þá 220 þúsund, og ef við bætum við sama framlagi frá móður kostar rekstur barnsins (viðskiptalegt orðalag en það verður að hafa það) 440 þúsund kr. á ári, eða það er framlagið öllu heldur.

Og hvað kostar að ala upp barn? Það er sko ekki sama hvort við tölum um 2ja ára eða 12 ára. Fæði og fatnaður, alltaf. Leikskóli eða dagmamma hjá börnum að grunnskólaaldri. Stærri íbúð svo að barnið hafi sérherbergi. Frístundastarf. Sumarfrí. Rekstraraðili barns (les: uppalandinn) þarf að vera til staðar um kvöld og helgar eða útvega pössun. Það foreldri getur ekki unnið eins mikla aukavinnu og það vill og aflað þannig meiri tekna.

Svo skiptir máli hvort einstæða foreldrið annast eitt eða fleiri börn. Með fleiri börnum fylgir magnafsláttur af tímanum sem fer í matseld og innkaup. Börn á svipuðum aldri geta samnýtt eitthvað af fötum, kerrum, leikföngum og tækjum. Meðlag með tveimur börnum er þá 440 þúsund og afkoman kannski bærilegri.

Vitaskuld reyni ég ekki að leggja hið minnsta mat á þau gæði að eiga börn enda eru þau aldrei metin til peninga.

Ég held bara enn að 18.300 sé mikið að borga og lítið að fá.

Og verð æ hrifnari af hugmyndinni um skattkort barna sem foreldrar njóti til 18 ára aldurs barnanna. Við erum bara 307 þúsund í þessu stóra landi, okkur vantar fleira fólk, okkur vantar fleiri börn til að vinna fyrir okkur sem eldumst á undan þeim.

Annars er ég sannfærð um að einhverjir minna góðu vina myndu vilja láta setja barneignir á markað ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

Sammála þessu (það er að segja með skattkort barna sem foreldrar njóti til 18 ára aldurs barnanna en ekki hitt, að setja barneignir á markað!) Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 28.1.2007 kl. 13:28

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Og samræmisins vegna höfum við þá kosningaaldurinn áfram í 18 árum, ehemm, ekki satt, Hlynur? Nei, ég er sjálf reyndar ekki alveg sannfærð. Hins vegar er dálítið órökrétt að vera barn til 18 ára aldurs, mega keyra frá 17 ára aldri, gifta sig 18 ára en ekki kaupa freyðivín handa gestunum fyrr en 20 ára. En þetta eru ekki ný rök.

Berglind Steinsdóttir, 28.1.2007 kl. 20:57

3 Smámynd: Ingibjörg Stefánsdóttir

Eins og talað út úr mínu hjarta mín kæra!

Ingibjörg Stefánsdóttir, 28.1.2007 kl. 23:29

4 Smámynd: Hlynur Hallsson

Já og svo má maður bjóða sig fram sem forseta 35 ára!

Hlynur Hallsson, 30.1.2007 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband