Sunnudagur, 29. apríl 2007
Engifer
Ég ætla ekki að borða í heila viku, í hádeginu borðaði ég svo góðan mat með engifer. Í forrétt fékk ég kjúklingasalat Bláa lónsins með engifer og í aðalrétt túnfisksteik - með engifer.
Félagsskapurinn var að vísu ekki eins áhugaverður og á föstudaginn þegar ég spjallaði við breskan gáfumann um Tony Blair, breska dagblaðaútgáfu og útlendinga í Bretlandi - yfir öndinni.
Ég þakka Laufeyju fyrir að kynna mig fyrir engifer á sínum tíma.
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkur: Matur og drykkur | Facebook
Athugasemdir
Jamm jamm. Já, engifer er góður. Annars bendi ég líka á cumin. Algjör snilld. Ég er búin að komast að því að cumin í uppskriftum skal fara með eins og hvítlauk: Setja helmingi meira en uppskriftin kveður á um.
Kristín M. Jóhannsdóttir, 29.4.2007 kl. 19:51
Já, og alls ekki nota kúmen!
Berglind Steinsdóttir, 29.4.2007 kl. 21:06
Alla vega ekki í uppskriftir sem krefjast cumin. Kúmen er auðvitað æðislegt í kringlum!!!
Kristín M. Jóhannsdóttir, 29.4.2007 kl. 23:20
Ég var nefnilega næstum einu sinni búin að gera þau mistök með kjúklingarétt, téhé.
Berglind Steinsdóttir, 30.4.2007 kl. 08:17
Útstáelsi er þetta á þér!! Ræddir þú eitthvað um mig - eða bara alvöru útlendinga hér i UK ;)
Sjáumst 9. júní - Erla Englendingur
Erla (IP-tala skráð) 30.4.2007 kl. 09:27
En kannast lesendur við „engiferhvítlauk“?
Laufey Einarsdóttir (IP-tala skráð) 30.4.2007 kl. 13:50
Nei, hins vegar engifersultu og rjómapiparrót - úr uppskrift sem ég þýddi í síðustu viku ... Og soðna eggjahvítu og fáfnisgras. Hvað með ykkur?
Og Erla, auðvitað talaði ég aðallega um þig og hvað ég hlakkaði til 9. júní þegar þú mætir í brúðkaupið hennar Ingu ... uvvita. Þessi tiltekni herramaður er frá eðalbænum Rugby og þar eru ekki svo margir útlendingar að þeir verði honum fjötur um fót, téhé.
Berglind Steinsdóttir, 30.4.2007 kl. 13:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.