Laugardagur, 26. maí 2007
Jöklaferðir takmörkuð auðlind
Í þeirri von að viðskiptalögfræðingurinn ógurlegi detti einhvern tímann aftur inn á síðuna mína ætla ég að skrifa þessa tillögu:
Hvernig fyndist mönnum að setja jöklaferðir með túrista í kvóta? Það mætti úthluta kvótanum eftir ferðareynslu, þeir sem þegar hafa starfað í faginu í x ár fá daga í samræmi við söguna. Eftir einhvern tíma, hálfan mánuð eða hálfan áratug, gæti ferðaþjóninum dottið í hug að draga sig í hlé og selja dagakvótann sinn hæstbjóðanda.
Hver vinnur?
Hver tapar?
-Spyr Berglind sem er rjóð í gegn eftir vel heppnaðan dag á Langjökli. Ég fór að vísu ekki á sleða að þessu sinni en spilaði jöklagolf og renndi mér á slöngu.
Athugasemdir
Þetta er góð spurning og hefur komið til tals í okkar röðum sem erum að læra ferðfræði. Það gæti verið gott að setja kvóta á jökla og hálendisferðir til að takmarka fjölda þeirra sem sækja á þessa staði. Þessir staðir meita ekki vera fjöldaferðamannastaðir og því þarf að stjórna ferðamönum á þessum stöðum. En ef til kvóta kæmi þarf að hugsa vel hvernig það er útfært.
Þórður Ingi Bjarnason, 27.5.2007 kl. 13:28
Og ég sem hélt að ég væri frumkvöðull! Án þess að finnast hugmyndin samt sérlega góð - og þó, kannski er núna kvóti í reynd vegna þess að menn þurfa að hafa komið sér upp aðstöðu á jökli, vera þar með sleða o.þ.h. ef þeir ætla að selja svona ferðir. Seljendur eru náttúrlega með leyfi og allt það.
Þórður, þú veist að það er kominn nýr ferðaþjónusturáðherra ...
Berglind Steinsdóttir, 28.5.2007 kl. 09:03
Já og ég held að þessi nýi ráðherra geti verið góður þegar snýr að ferðamálum. við skulum allavega vona það.
Þórður Ingi Bjarnason, 28.5.2007 kl. 09:12
Humm.... Ekki er ég nú alveg sammála þessari skoðun. kvóti á jöklaferðir :)
Ertu búin að gera þér grein fyrir því hvað jöklarnir á íslandi eru stórir?
Kvótinn er í raun sjálvirkur því að það er svo erfitt að komast á suma af þessum stöðum.
Við erum með aðgengi upp á Sólheimajökul, Jaka og Skálpa á Langjökli og svo Jöklasel á Vatnajökli. Þessi rekstur er nú ekki svo stór í sniðum að jöklar íslands séu að kippa sér upp við þetta lítilræði.
Hitt er svo annað mál með Landmannalaugar, Kjöl, Hveravelli, Sprengisand, Kverkfjöll, Ásbyrgi, Þórsmörk og fleirri góða staði. Margir af þessum stöðum fá nú samt góða hvíld frá ferðamönnum í 8-9 mánuði á ári.
En annars var ég á Langjökli sama dag og þú og tók þá þessar myndir:
http://www.photo.is/07/05/4/index_3.html
og svo flaug ég yfir Langjökul næsta dag og tók þá þessar myndir:
http://www.photo.is/07/05/7/index_3.html
og þar sést vel hvað víðátturnar eru miklar þarna inni á hálendinu.
Spurning um að búa til nýjar leiðir frekar fyrir þá aukningu sem orðið hefur á ferðamönnum til landsins. Nú þegar taka Kárahnjúkar við fullt af fólki og svo mætti virkja önnur svæði betur. Ekki láta alltaf alla ganga t.d. Laugarveginn.
Kjartan
Kjartan Pétur Sigurðsson, 28.5.2007 kl. 17:16
Já neinei, ég var heldur ekki að meina þetta, Kjartan. Ég var undir rós að rífast um kvóta yfirleitt - greinilega hálfgerðum runna, hahhha, og sannur ásetningur minn sást ekki, téhéhé.
Hins vegar er auðvitað full ástæða til að hugsa fram í tímann. Meðan Sturla var ferðamálaráðherra fór hann einhverju sinni til Kína til að kynna landið en hugsaði víst ekki fyrir því að ef Kínverjarnir kæmu hingað þyrftu þeir að fá þjónustu við hæfi, t.d. á tungumáli sem þeir skildu.
Það er spennandi tilhugsun að stækka yfirferðarsvæðið, fjölga leiðum og ekki síst lengja tímabilið. Sístækkandi hópur fæst við ferðaþjónustu allt árið, eða vill fást við hana allt árið, og þá er vert að auka fjölbreytni.
Hvernig skyldi Össur ferða- og byggðamálaráðherra taka sendinefnd?
Að lokum, Kjartan, lýsi ég eftir mynd af þér á síðunni þinni. Ég þykist búin að átta mig á að þú hafir útskrifast 2005, þekki Herbie, Sólmund og Ásu úr hópnum þínum en kem þér ekki fyrir mig.
Berglind Steinsdóttir, 28.5.2007 kl. 17:29
Sorry - sé það núna
Hér er grein sem sýnir vel hvernig kvótakerfið er orðið
http://kristinnp.blog.is/blog/kristinnp/#entry-223449
Ég er nú meira fyrir að taka myndir af öðrum en hér var ég í miðnæturgöngu upp að fossinum Glym fyrir nokrum dögum og tók þá félagi minn þessar myndir:
http://www.flickr.com/photos/aagelorange/491777410/in/set-72157600195941050/
og þetta með Kína, þá er ég að reyna að bæta þau samskipti eins og sjá má :)
Kjartan Pétur Sigurðsson, 29.5.2007 kl. 07:23
Hahhaha, Glymur á hvolfi, nokkuð gott. Og ég set þá allt mitt traust á þig varðandi Kína líka!
Berglind Steinsdóttir, 29.5.2007 kl. 12:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.