Þriðjudagur, 19. janúar 2021
Tryggingar
Tryggingafélagið mitt sendi mér póst um tryggingaiðgjöld næsta árs. Fyrir sömu tryggingar, sömu þjónustu, sömu eignir eiga nú tryggingar að hækka um 9,3%. Er það verðbólgan? Eru það launahækkanir? Nei, ég held ekki. Ég held að svarið sé:
FÁKEPPNI.
FÁMENNI.
VIÐSKIPTASIÐFERÐI (eða skortur á því).
ANDVARALEYSI (m.a. mitt).
Ég sendi póst í fyrra og nei, því miður, félagið gat ekki lækkað iðgjaldið sem hækkaði þá líka ómaklega milli ára. Ef ég fer með viðskiptin annað lækkar einn liður en annar hækkar. Mér er misboðið en úrræðin eru engin.
Athugasemdir
Í morgun fékk ég þetta svar:
Ég er með þá kenningu að afskriftasjóðirnir séu, sem fyrr, feitir hjá tryggingafélögunum (kannski ekki öllum) og þess vegna eru nytsömu sakleysingjarnir látnir borga fyrir bruðlið. Ég trúi ekki á öll þessi tjón en get ekkert sannað.
Berglind Steinsdóttir, 20.1.2021 kl. 19:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.