Sunnudagur, 3. febrúar 2008
Heildræn tjáhvarfasýki, veðurgremjuröskun, spaugröskunarheilkenni, þetta reddast-röskun og starfslokaoflæti
Þemað svínvirkaði í Spaugstofunni. Gestaleikarinn Jóhann G. Jóhannsson var líka frábær, ekki síst þegar hann reyndi að tala Þorgeir Ljósvetningagoða undan feldinum og nýta sér starfslokaoflæti Sigtryggs.
Að þeim skuli takast þetta á svona stuttum tíma er nánast óskiljanlegt. Ég sé ekki eftir þessum peningum. Hvað kostar þetta annars ... í samanburði við eitthvað annað?
Athugasemdir
Sammála. Þetta kostar pottþétt minna en einn íþróttapakki.
Lára Hanna Einarsdóttir, 3.2.2008 kl. 11:35
Já, íþróttaviðburður er einmitt góður samanburður. Án þess að ég amist við einum og einum handbolta ... Svo rifjast líka upp heimildaþættir um Halldór Laxness þegar umsjónarmaðurinn fór í öll heimsins skúmaskot til að elta slóðina hans, hmm. Og fann aðallega kommur, hehe.
Berglind Steinsdóttir, 3.2.2008 kl. 11:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.