Miðvikudagur, 19. mars 2008
Kvef þegar maður má vera að því
Það er segin saga að eftir mikla törn súrnar manni í augum og hálsinn bólgnar. Nú eru framundan fimm góðir dagar af blautum augum og rámum hálsi. Og þegar svona viðrar er von að mann langi að skríða í híði og hitta hina bangsana:
Ég heyktist meira að segja á að fara í búðina og hundskaðist heim í híðið. Var þó nokkur sárabót að hafa snætt og slúðrað með tveimur miðbæingum í hádeginu. Ég fékk mér með kjúklingi og öðru góðu, Laufey með rúkkóla og votti af parmaskinku - en Ásgerður fékk sér pítsu með pestó - sem bakarinn sagði eftir á að hefði verið brandari ... hmmm?
Athugasemdir
Atjúúúúú og alltaf missi ég af.
Reikna með að hitta ykkur eftir augnablikk. Er komin í norðurlandið.
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 11:11
Við hringjum í þig ... ræræræ.
Berglind Steinsdóttir, 20.3.2008 kl. 11:32
ltgujlghjb hjlygtuyfghvn bjhb e56ur5irt6ot7yhukjbjkb vhgkfyitftugyugl
hb (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 13:50
Ég skil - svekkt?
Berglind Steinsdóttir, 20.3.2008 kl. 15:37
Auðvitað er maður svekktur. Ég er alltaf súr þegar ég næ ekki að hitta ykkur en er um leið meðvituð um að það er ekki hægt að gera allt :o)
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 18:37
Nei, nei, NEI - ekki svona übersvöl ... téhé. Þú einfaldlega forgangsraðar okkur út í kuldann og vínarbrauðið og situr sjálf á þínum hvammstengda tróni. Á höfuðborgarsvæðinu eru hins vegar öll veður með ágætum og ég sit í sófanum með kvefið allt í kring.
Berglind Steinsdóttir, 20.3.2008 kl. 18:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.