Færsluflokkur: Dægurmál

Átta lista val í Reykjavík

Í heita pottinum í Vesturbæjarlauginni í gær komst ég að því að hinir ágætu upplýstu pottverjar vissu ekki að í Reykjavík eru átta listar í boði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar eftir 10 daga.

Það er sífellt talað um ,,fjórflokkinn" og Jón Gnarr.

Á vefnum kosning.is þar sem maður getur m.a. séð hvar maður á að kjósa (ef maður skyldi vera í vafa) eru öll framboð um allt land talin upp, þ.m.t. E - listi Reykjavíkurframboðsins, F - listi Frjálslynda flokksins og H - listi framboðs um heiðarleika og almannahagsmuni.

Vald fjölmiðlanna er mikið. Þeir kjósa að sniðganga þessi framboð.


Á höggstokkinn

Ég kann að leggja saman, draga frá, margfalda og deila. Ég lærði hvorki diffrun né heildun og hingað til hef ég plumað mig án þess. En nú [hægra handarbak að vinstra gagnauga] veit ég ei meir, ei meir.

Ég - nú legg ég mig á höggstokkinn - hélt að þegar kyrrsettu eignirnar myndu innheimtast rynnu þær í ríkissjóð. En nú heyri ég á mér gáfaðra fólki að þær renni til kröfuhafa bankanna - og kenningu um að kröfuhafar bankanna séu skuldararnir, þ.e. þeir sem peningarnir verða teknir af.

Sum sé, sr. Jón tekur 2.400 milljarða að láni og geymir undir kodda á Falklandseyjum. Svo er honum stefnt fyrir dómstóli í einhverri Jórvík, játar sig sigraðan enda kostar milljón dollara að snerta hurðarhúninn, skrifar lista yfir eignirnar, lætur þær af hendi - og tekur svo við þeim sjálfur, óbreyttur Jón.

Ég engist á grefilsins höggstokknum. Ég sver að ég hélt að það þyrfti ekki að skera stærri möskva á öryggisnet velferðarkerfisins ef peningurinn innheimtist.


Land ösku og ísa


Skipta leiðsögumenn máli fyrir ferðaþjónustuna?

Ég hef dregist aftur úr í blaðalestri og var rétt í þessu að lesa lesandabréf í vikugömlu blaði sem ber titilinn Leiðsögumenn eða ekki leiðsögumenn. Þar er fagmenntun leiðsögumanna rómuð af einhverjum sem kallar sig hugsandi Íslandsvin. Sá undrast að ekki sé tekið fram í umfjöllun um ferðaþjónustu hvort misvitrir leiðsögumenn hafi raunverulega menntað sig til að gegna starfinu eður ei. Og oss leiðsögumönnum hlýnar um hjartaræturnar.

Ferðaþjónustan er í meira uppnámi en áður vegna þess að flugvélar komast stopult til og frá landinu. Það er í augnablikinu stærsta vandamálið en á öllum tímum er ástæða til að hafa áhyggjur af því hvort leið-sögu-menn í landinu miðla raunverulegum fróðleik af raunverulegri þekkingu og hæfilegri ástríðu.

Það finnst a.m.k. mér. 

 Leiðsögumenn eða ekki leiðsögumenn


Tvíkynja nöfn

Ég fletti reglulega upp í hinum stórfróðlega vef um beygingarlýsingu íslensks nútímamáls. Ef beyging kemur mér spánskt fyrir sjónir gái ég hvort mögulega geti verið um tvímynd að ræða. Ekki vill prófarkalesari falla í þann fúla pytt að leiðrétta það sem telst rétt.

Í texta sem ég las rétt í þessu var auður í þágufalli auð, 'státa af miklum auð' eða álíka. Og ég dreg mig hæfilega í efa og fletti upp. Auður í þágufalli er bara auði þannig að ég fékk úr þessu skorið en sá þá að karlmannsnafnið Auður er til. Sonur hans væri þá Auðsson.

Og ég er að reyna að koma honum fyrir mig, þessum Auðssyni ...


Óumbeðnar upplýsingar

Er einhver eftirspurn eftir teppastærð, skálmalit eða matseðli á Hótel Hrauni? Ekki heyrist mér á fólki í kringum mig - og finnst mér það bara býsna marktækt úrtak ...

Málsvörn

Ég skil ekki hávaðann á Pressunni, ég hef ekki heyrt hlakka í neinum yfir handtökunum. Þvert á móti fær fólk í magann og líður þrátt fyrir allt illa yfir að þetta þurfi að vera svona. Þessir gæsluvarðhaldsfangar eiga foreldra, systkini og börn, vini og kunningja, gamla skólafélaga og vinnufélaga - rétt eins og aðrir þeir sem þarf að færa í fangelsi, rétt eins og aðrir þeir sem þurfa nú að súpa seyðið af slæmu efnahagsástandi.

Gæsluvarðhaldsfangarnir liggja undir grun um að hafa framið afbrot. Þess vegna geri ég ráð fyrir að þeir séu teknir úr umferð. Þeir verða spurðir og krafðir sagna, þeir munu ekki geta borið saman bækur sínar og geta síður logið ef hugur þeirra stendur til þess. Þeir munu e.t.v. upplýsa um frekari aðkomu annarra. Peningar voru teknir ófrjálsri hendi - þrætir einhver fyrir það? Það bitnar á afkomu þúsunda fjölskyldna - þrætir einhver fyrir það?

Ég sest ekki í dómarasætið en afleiðingar glæpanna eru öllum ljósar. Er ekki eðlilegt að leita  upprunans og reyna að uppræta meinið? Er það ekki hlutverk sérstaks saksóknara? Hefur ekki verið kvartað undan að ekki gengi nóg undan honum? Af hverju ráðast þá þessir háværu að honum?

Hissust var ég áreiðanlega á pistli Jakobs Magnússonar í Fréttablaðinu í gær. Mér finnst að ég hafi stundum verið sammála honum þegar fáir hafa verið það en nú dreg ég dómgreind mína í efa. Jakob finnst mér ekki bara á hálum ís, heldur svo næfurþunnum að honum hlýtur að kólna snögglega þegar brestur undan honum. Af hverju er hann þess umkominn að meta gögn sérstaks saksóknara sem hann hefur ekki séð? Af hverju getur hann fjallað af viti hins löglærða þegar hann er það ekki? Er hann á geltinu? Borgar einhver honum fyrir að steypa sér í dómgreindarlega glötun?

Ef hann hefur einhverja skynsamlega ástæðu til að tala eins og hann gerir ætti hann að láta hana fylgja með því að hún er mér gjörsamlega hulin.

Svona er ég alltaf djöfulli varkár og geðug, læt fólk njóta vafans, bæði sérstakan saksóknara, gæsluvarðhaldsfanga og sjálfskipaða álitsgjafa sem tala út úr ...


Eitt ár enn

Ekki orð um hin forvitnilegu gistiúrræði sem nú eru mest í umræðunni. Nei, bara ein afmælismynd:

Svava Dögg 22 ára

Eftir slétt átta ár verður Svava þrítug, jamm og já, Gummi mun eldri og Kormákur litli, já, á níunda ári.


Rokk Hugleix rokkar

Sú var tíðin að ég var virk með áhugaleikfélagi sem heitir Hugleikur. Það er ekkert svo langt síðan og auðvitað mæti ég áfram á sýningar. Í kvöld sá ég Rokk, þekkti bara tvö nöfn og andlit (af 11) og hló og hló. Leikritið á að kæta þannig að það virkaði. Svo er þetta fólk svo hæfileikaríkt, syngur og spilar á allrahanda hljóðfæri. Að minnsta kosti fullyrti leikstjórinn (sem ég guðsblessunarlega þekki enn) að það væri ekkert plat.

Mig furðar ekki að sýningin hafi verið valin áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins 2010 (sjálf hef ég að vísu ekki séð hinar sem voru tilnefndar en geri ráð fyrir að valnefndin hafi gert það). Leikgleðin skein líka af öllu og öllum.

Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu

Drífa sig.


Þuluskortur

Á fjórða degi tók ég eftir að þær voru þagnaðar.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband