Færsluflokkur: Dægurmál

Nú fær mozzarellan hvíldina

Þessi náhvíti bragðlausi ostur hefur fengið öll hugsanleg tækifæri á heimilinu. Væri ekki hægt að setja út í hann vott af msg ...?

Ef vel á að vera verður að krydda hann og bæta með ólífum, tómötum og öðru kruðeríi. Eins gott að fá sér bara almennilegan brauðost, huhh.


Og bréfið lak

Hefur Sigurður ekki áhyggjur af innihaldi bréfsins til FME sem lak í Fréttablaðið og hefur að geyma umkvartanir hans yfir leka?

Með þyrlu á Langjökul?

Í dag var ég beðin um að vera leiðsögumaður Breta um helgina. Því miður var ég búin að ráðstafa tíma mínum, annars hefði ég farið á laugardaginn í mitt fyrsta þyrluflug. Svolítið skondið eftir mörg ár í hvataferðum að hafa bara farið tvisvar eða þrisvar í flúðasiglingu og ALDREI tekist á loft. Í þyrlu.

Ég hefði auðvitað hringt beint í Ólól til að fá tilsögn í hvernig ég ætti að bera mig. En það reynir sum sé ekki á.


Flug í leggjum

Ég er með mikil innkaup á flugmiðum í vinnslu - þekkir einhver þá reglu að flug til t.d.  London sé hlutfallslega ódýrara ef maður kaupir báðar leiðir í sama pakka? Getur miðinn út kostað 20.000 og heim 20.000 en samtals 34.000 ef maður kaupir báða leggi í einu? Skiptir máli hvort maður kaupir flugið heima eða í útlandinu?

Er fáokun??


Vaxtaákvörðunardagur á fimmtudaginn

Ég spáði því í gær að stýrivextir færu ofan í 5% fimmtudaginn 19. mars. Ég ætla að standa við þá spá. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn var kátur þegar hann kvaddi landann í gær. Og hjá mér er þetta valkvæð bjartsýni, vextirnir verða að húrra niður.

Sem smásparifjáreigandi vil ég líka að vextirnir lækki. Mér finnst fráleitt að verðtryggð innistæðan hækki óeðlilega og atvinnulífið fái ekki nauðsynlegt lánsfé til að halda sjálfu sér rúllandi. Ef atvinnulífið hægir meira á sér bitnar það líka á mér. Gefur augaleið að allir tapa með sama áframhaldi.

Allra hagur að lækka stýrivexti og bankavexti auðvitað í framhaldinu, inn og út. Niður í 5%, takk.


Kranar blaðanna - 8% af hverju?

Hvað ætlar HB Grandi að gera? Ætlar hann virkilega og í fúlustu alvöru að greiða arð til hluthafa á sama tíma og hann kemur sér hjá því að standa við gerða samninga?

Eyjan, Mogginn og Bæjarins besta spyrja engra spurninga, ekki hvort raunverulegur hagnaður hafi orðið, ekki hvert eigið fé er og ekki einu sinni af hvaða upphæð eigi að greiða 8% hagnað. Hverjar eru arðgreiðslurnar? Hvernig eru þær til komnar? Hafa stjórnendur ekki einu sinni viðskiptavit? Það þarf engan meðalhálfvita til að sjá að þetta muni hleypa illu blóði í fólk. Og Vilhjálmur Birgisson virðist einn af fáum verkalýðsforkólfum sem stendur með fólkinu sínu þannig að varla kemur HB Granda á óvart að hann hafi opnað munninn.

En hvað er að þessum fréttaflytjendum? Líklega hefur Jónas 100% rétt fyrir sér þegar hann talar um kranablaðamennsku. Og það merkilegasta er að þrátt fyrir umræðuna um og gagnrýnina á fjölmiðla hafa þeir ekki tekið sig á í raun. Í fljótu bragði virðist þó Vísir horfa á fréttatilkynningu gagnrýnum augum:

Stjórn HB Granda leggur til að hluthöfum verði greiddur arður, sem myndi duga til að greiða öllu fiskvinnslufólki félagsins launahækkun, sem tekin var af því um mánaðamótin, í átta ár. Stjórnarmenn í HB Granda eru einnig stærstu eigendur fyrirtækisins, sem skilaði ríflega tveggja milljarða hagnaði í fyrra.

...

Það eru um sex hundruð hluthafar í Granda, en örfáir aðilar eiga þar stærstan hlut, eða Vogun hf með 41 prósent, sem er aftur í eigu Árna Vilhjálmssonar stjórnarformanns HB Grands og Kristjáns Loftssonar stjórnarmanns í HB Granda. Annar stjórnarmaður er svo Ólafur Ólafsson en Kjalar hf, félag hans, á 33 prósent í HB Granda. Stjórnarmenn eru því að ákveða sjálfum sér arð.

Vilhjálmur Birgirsson segir að fyrir arðgreiðsluna mætti greiða öllu fiskvinnslufólki HB Granda launahækkunina sem það fékk ekki í þessum mánuði eins og til stóð næstu átta árin.

Gat verið að Ólafur Ólafsson skyti upp kollinum í von um ósanngjarnan gróða. HFF.


Lýðræðisdaginn lengir

Ég man hvar ég var þegar ég heyrði að nýr formaður hefði verið kosinn í VR. Ég skeiðaði eftir Vesturgötunni og hlustaði á útvarpsfréttir í símanum mínum. Ég var svo illa áttuð að ég var ekki með á hreinu að kosningunni væri að ljúka (er ekki í VR þannig að mér fyrirgefst) en ég æpti af gleði. Ungur maður hinum megin við götuna hrökk við og dreif sig á Rauðhettu og úlfinn í klippingu.

Ég viðurkenni að ég þekki hvorki Kristin né Lúðvík, hinn nýja frambjóðandann sem þó var ekki kosinn. Eymingja Gunnar Páll er bara fulltrúi svo gamalla og þreyttra gilda, svo mikið 2007, að hann varð að taka pokann sinn. Sem léttastan.

Og ekki spillti fyrir að hinn ötuli Ragnar sem hefur kafað djúpt ofan í lífeyrismálin var kosinn í stjórnina.

Undir kvöld var dagurinn þannig orðinn góður.

Svo fór ég á borgarafund í Iðnó og vel að trúa því að pallbyrðingar ætli að gera allt sitt til að ná til baka milljörðunum úr skálkaskjólunum. Réttlæti, takk.

Allt á réttri leið.


Rauð paprika - kílóverð

Ekki veit ég hvort rauð paprika er í matarkörfunni sem er notuð í almennum útreikningum á matarkörfu landsmanna. Hitt veit ég að rauð paprika http://www.freefoto.com/preview/09-11-51?ffid=09-11-51virðist vera tíður gestur í matarkörfunni minni. Til gamans fór ég í gegnum strimlana yfir matarinnkaup síðan í október og mér til mikillar furðu komst ég að því að verð á rauðri papriku er afskaplega rokkandi, mest allt í kringum 400 kr. á kílóið - upp í 598 kr. Það merkilega var að hún var dýrust í október - í Bónus - á 598 kr. Lægsta verðið, hvað? Það var líka um svipað leyti og Guðmundur í Bónus hvatti landsmenn til að hamstra þar sem hann sæi fram á vöruskort. Þarf ég að orðlengja þetta?

Ég er ágætlega verðmeðvituð en greinilega dálítið löt að skoða kílóverð og það þori ég að hengja mig upp á að kaupmennirnir vita mætavel. Annað sem ég kaupi gjarnan er mangó og það verð er líka eins og þeytispjald. Næst þegar ég nenni að skoða verðstrimlana ætla ég að skoða tímasetningar - er verð hærra síðla dags?

http://fridjon.blog.is/blog/fridjon/month/2008/3/


Bankinn þinn?

Hvaða banka munar um 107 milljarða? Hvaða banki hótar núna að ganga að húseignum útlenskra viðskiptavina sinna í Lúxemborg? Hvaða banki lánar eða gefur eða gleymir 500 milljörðum? Hvað kemur þetta okkur við ...?

Opinn borgarafundur í Iðnó á miðvikudagskvöld kl. 20. Frummælendur verða þingmennirnir Atli Gíslason og Bjarni Benediktsson og svo Björn Þorri Viktorsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrum formaður Félags fasteignasala ef mér skjöplast ekki.

Hvað kemur þetta ÞÉR við?


Hver er Bilderberger-grúppan?

Nafnið flýgur sífellt fyrir og ég held að þessi hópur samanstandi af klíku háttsettustu manna heims. En af hverju er ég alltaf að heyra þetta nafn núna og aldrei áður? Hvað skrafa menn á þessum fundum? Hver stjórnar? Hver býður? Hverjum er boðið? Tala menn dulkóðað?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband