Færsluflokkur: Dægurmál

Aragrúi tómra íbúða í úthverfum Reykjavíkur

Ekki man ég nákvæmar tölur en á fundi um húsnæðismál á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi kom fram að mikill fjöldi íbúða er tómur, margar íbúðir eru líka í byggingu og búið að steypa grunn að nokkuð mörgum til viðbótar. Á sama tíma eru einhver brögð að því að fólk sé borið út úr íbúðum sem það ræður ekki við að borga af því að allar reikniforsendur þess brugðust. Páli Gunnlaugssyni, fyrrum formanni Búseta, fannst þetta órökrétt og vitnaði í forsetafrúna.

Og svo kemur fáránleg frétt um litla raunlækkun íbúðaverðs. Á hverju er hún byggð? Örfáum sölum þar sem makaskipti hafa áreiðanlega oft komið við sögu. Og það þarf hvorki snilling né bragðaref til að átta sig á að trúlega eru notuð efri mörk í sölusamningum, m.a. út af lánum, notaðar tölur sem ekkert er að marka. Og fyrir utan það að fullt af fólki heldur að sér höndum í þessu árferði og reynir að þrauka frekar en að sætta sig við ... óásættanlegt verð. Það er næsta lítið að marka markaðinn. Síst af öllu þegar spádeildir fjármálastofnana losa sundur reiknistokkinn.

Verðið átti auðvitað aldrei að hækka svona skart en ég spáði þessu haustið 2004 þegar helvítis bankarnir byrjuðu eyðileggingarstarfið með íbúðalánunum sínum.

Fína íbúðin í Skuggahverfinu sem ég ætlaði að kaupa fyrir slikk af einum stórbankamanninum er seld. Hana keypti einn af hinum nýju eigendum Moggans, Þorsteinn Már Baldvinsson. Hver segir svo að menn raki ekki saman fé á að veðsetja óveiddan fiskinn?

Er þetta nýja, óspillta Ísland?


Minnishegri

Í dag var kynnt fyrir mér orðið minnishegri fyrir litla stykkið sem maður stingur í þar til gerða rauf á tölvu. Á/Í þessum minnishegra geymir maður myndir og texta og flytur auðveldlega með sér. Sumir hafa svona minnishegra á lyklakippunni sinni.

Minnishegri skírskotar til óminnishegra í Hávamálum vegna þess að óminnishegri rænir mann minninu en minnið geymir maður á/í minnishegranum. Sumir nota víst styttinguna hegri.

Ég glöggvaði orðið til að sjá hvort einhverjir hugvitsmenn væru farnir að nota það. Viti menn, einhver reifaði málið á Málefnunum þegar fyrir rúmu ári. Einhver gestur á Baggalút líka í fyrra. Guð blessi netið ...

Myndina fékk ég af keyghost.com

Affarasælla að stela frá fátækum, sagði Halldór Laxness

Fyrir skemmstu heyrði ég mann í útvarpinu lesa nokkrar línur úr Heimsljósi. Því miður hefur mér þótt Ólafur Kárason Ljósvíkingur ofmetinn (sem töffari) þannig að ég las Heimsljós með hangandi haus  og sennilega lokuð augu á sínum tíma og man næsta lítið. Brotið sem maðurinn las í útvarpinu var um það að skynsamlegra væri að stela frá fátækum því að sá sem ætti bara eitt stykki væri jafn fátækur þótt hann yrði af því. Sá ríki sem ætti 100 stykki yrði æfur ef einu stykki væri stolið og væri vís með að eyða mörgum stykkjum til að endurheimta þetta eina.

Sannast hér hvers vegna Halldór fékk Nóbelinn og ég ekki.

Því miður tók ég ekki eftir hverjum var eignuð þessi hugsun í bókinni en mér finnst hún eiga fjandi vel við. Eða kannast menn ekki við að nú sé verið að rífa eignir af þeim sem fáar og litlar eiga? Og bolmagn þeirra til að endurheimta sínar fátæklegu eigur er lítið.

http://www.fva.is/harpa/ljod/thu_ert_sjalfur_laxness.html

Myndin af skáldinu er fengin af síðu fva.is 


Fjölmiðlungar

Nú er búið að kaupa/selja/gefa Moggann. Hann var/er stórskuldugur. Glitnir Íslandsbanki afskrifar þær skuldir í stórum stíl. Og svo á ég að trúa því að Mogginn sé hlutlaus og upplýsandi fjölmiðill. Af hverju tókst honum ekki að reka sig réttu megin við núllið? Hverjum er í hag að kaupa skuldir?

Og allt í einu lýstur því ofan í höfuðið á mér að Björgólfur sem keypti Landsbankann fékk Landsbankann gegn hlutabréfum í sjálfum sér vildi kaupa DV um árið til að leggja það niður. Hann skóf ekki einu sinni utan af því.

Er ekki orðið tímabært að fá fjölmiðlalög í stað þeirra sem var rifist mest um fyrir næstum fimm árum?

Og er ekki öruggt að verði bankarnir seldir aftur verður eignarhaldið dreift?


Enron = Glitnir?

Ég horfði á bandarísku myndina um bandaríska fyrirtækið Enron sem fór flatt á græðgi stjórnenda sinna - og ég sá Bjarna Ármanns. Ég skil ekkert í þessu ... Heitir hann ekki Stilling sem stóð upp og fór frá fyrirtækinu ári áður en allt hrundi? Og af hverju dettur mér Bjarni í hug ...? Ég er að reyna að koma þessu heim og saman.


B-dagur

Ég verð að halda því til haga að í dag eru liðin 20 ár frá því að menn gátu höndlað með bjór á íslenskum knæpum í stað bjórlíkis. Ég hef svo oft ruglast á árum - og þetta er meðal þess fánýta fróðleiks sem maður dembir stundum yfir saklausa farþega í ferð um Ísland. Ef ég man rétt samanstóð bjórlíkið af vodka og pilsner.

Nú erum við aftur komin með gjaldeyrishöft, skyldi bjórinn svo hverfa á næstunni?


Hver eru þessi 4% sem bera mikið traust til bankakerfisins?

Alveg er ég uppfull af óvissu og er ég þó - og kannski ekkert þó með það - í viðskiptum við sparisjóð. Ráðamenn hafa keppst við að segja í fjölmiðlum að innistæður séu traustar. Þeir hafa ekki alltaf reynst hafa rétt fyrir sér. Ef ríkissjóður þverr fýkur í síðasta skjólið. Sögur berast af fjármálastofnunum sem leysa til sín eignir og ofreikna skuldir sem þær skilja eftir hjá fólkinu sem áður átti eignirnar. Hvað er SP-fjármögnun og hver á það fyrirtæki? Það lánar, er það þá ekki banki þótt það sé ekki einn af viðskiptabönkunum?

Eru það skilanefndirnar sem treysta bankakerfinu? Kvótaeigendur? Opinberir starfsmenn? Unglingar sem eru rétt komnir á kosningaaldur og hafa ekki fylgst með?

Ég skil þessi 96% sem vantreysta bankakerfinu. Því miður.

Huggunin er að nú getur leiðin ekki legið nema upp.

 


Aðalfundur Félags leiðsögumanna

Á Kaffi Reykjavík fimmtudaginn 26. febrúar 2009 kl. 20
  1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu.
  3. Tillögur um lagabreytingar teknar til afgreiðslu.
  4. Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs teknar til afgreiðslu.
  5. Drög að fjárhagsáætlun lögð fram og tillaga um stéttarfélagsgjald.
  6. Kosning til stjórnar, varastjórnar og trúnaðarráða, sem og í aðrar nefndir og trúnaðarstöður.
  7. Kosning eins félagskjörins skoðunarmanns reikninga og varamanns.
  8. Önnur mál.

Leiðsögumenn fjölmenni - auðvitað. Þórhildur? Magga? Virpi? Auður?


Fyrsta frétt

Ég samgleðst manni sem missir vinnuna þegar hann fær nýja vinnu, en myndu ekki sumir kalla þetta eins konar persónugervingu? Er RÚV að reyna að senda þeim langt nef sem vilja skipta um forystu í íslenska seðlabankanum sem mörgum finnst hafa tapað öllu trausti? Þetta var fyrsta frétt, kom á undan ... öllum öðrum fréttum.

Eða er mín áunna tortryggni að troða skynsemi minni um tær?


Ofvaxið skilningi mínum

Hvað eiga bloggsíður Gísla F., Gísla M., Hjartar og Ólafs sameiginlegt?

Hvað eiga síður Friðjóns, Gunnars og Stefáns sameiginlegt?

Og hvernig er bloggsíða Vilhjálms A. Kjartanssonar sér á báti?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband