Færsluflokkur: Dægurmál

Spá - hvað?

Ágiskunardeild Glitnis er byrjuð að spá - og hvernig skyldin spekin hljóða? Spáir helmingslækkun á raunverði íbúða til ársins 2011! Verðlaunum strákinn fyrir að sjá hið augljósa. Tekur hann fram hvert markaðsvirðið er núna? Nei, enda er það ekki til. Við hvað miðast þá lækkunin? Raunvirði í júlí 2008? Eða kannski júlí 2007?

Hefur einhverjum spekúlant dottið í hug að skoða hvernig makaskipti héldu uppi verðinu á árinu sem er að hverfa?

Hefur einhverjum rannsóknarblaðamanni dottið í hug að kanna hvort einhverjir verktakar hafa keypt hver af öðrum að nafninu til bara til að halda uppi verðinu?

Datt einhverjum í hug að á þeim tíma þegar Hannes keypti tvær dýrustu göturnar í matadorinu hafi eigendur í nærliggjandi götum viljað gera eins góða sölu og það, með öðru, átt sinn þátt í bólunni?


Hvar er Gallup?

Er til of mikils mælst að einhver fái Gallup til að gera ítarlega skoðanakönnun?

Ég les bloggfærslu eftir bloggfærslu, athugasemd eftir athugasemd þar sem stuðningsmenn allra flokka, fólk úr flestum stéttum og flestum störfum hrópar á aðgerðir gegn óréttlætinu og þjófnaðinum, kallar eftir viðurkenningu á því að rangt hafi verið haft við, biður frómt um sjálfsagða sanngirni og hreingerningu, að kaupahéðnarnir skili ránsfengnum - og þá heyrist holur hljómur að ofan um að við séum ekki þjóðin.

Er þá ekki ráð að fá fram vilja þjóðarinnar, t.d. með 3.000-5.000 manna úrtaki?

Það mætti spyrja:

Viltu láta kjósa til Alþingis í síðasta lagi 1. júní 2008?

Viltu láta Jónas Fr. Jónsson taka pokann sinn?

Viltu láta komast til botns í meintri millifærslu margra milljarða hjá Kaupþingi skömmu fyrir yfirtöku?

Viltu láta ráðamenn svara því hvers vegna þau vissu að í óefni stefndi og gerðu ekkert í því? Viltu spyrja ráðamenn að því hvort þau hafi virkilega ekki vitað 1. apríl að efnahagskerfið hefði tekið kúrsinn lóðbeint niður? Viltu spyrja ráðamenn að því hvers vegna þau rápuðu um allan heim með kaupahéðnunum og auglýstu besta kerfi í heimi, kerfi sem engin innistæða var fyrir, kerfi sem er gjörsamlega gjaldþrota tæpu ári síðar?

Viltu láta kyrrsetja eignir kaupahéðnanna?

-Eins og gefur að skilja er listinn ekki tæmandi og ekki hirði ég heldur um aðferðafræðina að svo komnu máli.

Ég held að til marks um ofsann sem hlaupinn er í marga endurspeglist m.a. í grimmdarlegri umræðu um flugeldasölu. Mér finnst fráleitt að þeir sem ekki kaupa flugelda séu á móti starfi björgunarsveitanna eins og menn láta að liggja. Ef menn hafa áhyggjur af starfinu og eru aflögufærir er þeim í lófa lagið að leggja inn hjá þeim. Persónulega vona ég að ekki dragi of mikið úr flugeldasprengingum og sendi kannski sjálf, aldrei þessu vant, einn kaupahéðin til andskotans vegna þess að áramótagleðin hefur líka aðdráttarafl á útlendinga og ekki megum við við því að letja ferðamenn. Og ég bendi á að undanfarin ár hafa ýmsir aðrir en hjálparsamtök selt flugelda þannig að ágóðinn sem margir hafa áhyggjur af að verði of lítill hefur því miður alls ekki allur runnið til verðugra málefna, heldur beint í vasa lítilla kaupahéðna.

Ætti ekki Gallup að spyrja þeirra spurninga sem brenna á okkur? Á kannski einhver Gallup sem vill þetta ekki? Er Gallup e.t.v. ekki treystandi?

Gagnrýni er holl, aðhald er nauðsynlegt en sífelld tortryggni er mannskemmandi. Því miður er okkur helst boðið upp á tortryggnina og hún er farin að hafa skelfilegar afleiðingar í því upplýsingamyrkri sem leggst yfir okkur.

-Og hér sit ég uppi um miðja nótt eins og vúdústunginn grís og ungbarn með eyrnaverk og SKIL EKKI AF HVERJU ÞETTA GERÐIST OG HELDUR ÁFRAM AÐ GERAST. Ég er hætt að geta sofið almennilega í þessu myrkri.


Glæpasaga sem gerist á Grænlandi

Ég veit um a.m.k. einn mann sem vill segja í Grænlandi. Hehe. En ég tala líka um að hlutir gerist á Íslandi. Tungumálið er ekki alltaf rökrétt enda segi ég að eitthvað gerist í Englandi sem er líka stór eyja.

Mér fannst Aska eftir Yrsu Sigurðardóttur ekki sérlega beysin þegar ég las hana um daginn og lofaði sjálfri mér því að ég skyldi ekki lesa frekari bækur eftir hana. Hins vegar rak Auðnina á fjörur mínar (og aðrar nýjar skáldsögur ekki) og ég verð að segja að hún var slöttungsmeira spennandi en hin síðasta. Mér finnst framvindan samt stirðbusaleg og ég get ekki skilið af hverju ritari eins og Bella er höfð áfram á dekkinu.

Ég vildi vita hvort lýsingin á litla grænlenska þorpinu er einhvers staðar nálægt lagi. Líf fólksins í þorpinu var verra en dauðinn. Einangrunin dauðadæmir líf þess, tilgangsleysið, doðinn, vonleysið, eymdin - hvað er satt í þessu?

Til að næra málfarspúkann í mér verð ég að halda því til haga að ljótasta villan var á síðustu síðu. Mér finnst eðlilegt að samþykkja ný orð inn í tungumálið, sum staldra stutt við en önnur setjast að. Hins vegar samþykki ég ekki aðfinnsluverðar kerfisbreytingar án tilgangs. Þóra verður hugsi þegar Eyjólfur tala um að spá í einhverju (316) en aldrei áður hef ég staðið Þóru að því að velta fyrir sér orðum, eðli þeirra eða réttmæti. Allt í lagi með það. Á síðustu síðunni segir svo að þær hlakkaði til að fá tækifæri til einhvers. Sögnin að hlakka er persónuleg og eltir frumlagið. Þannig hlakka þær (eða hlökkuðu í þátíð) til hvers sem vera skal. Tilhneiging í þessa átt heyrist vissulega í mæltu máli en við hin íhaldssömu streitumst enn á móti.

Mynd af: Auðnin


Frá hverju er afslátturinn gefinn?

Ég þykist vita að margir verslunareigendur í Bretlandi líti svo á að þeir rói aðeins lífróður til að geta haldið verslun sinni gangandi. En mig rekur alltaf í rogastans þegar talað er um 90% afslátt (þótt hann væri bara 50-70%). Hvert var innkaupsverðið, hver var annar kostnaður - og hver var álagningin? Ef söluverðið er 10% af eðlilegu verði hlýtur að vera eins gott að setja bara allt í gám út á götu og leyfa fólki að gramsa og hirða.

Mér gefst trekk í trekk gott tækifæri til að rifja upp gamla sögu úr Andrésblaði:

Jóakim aðalönd, hinn gírugi, opnaði kjólaverslun og setti skilti í gluggann með þeirri áletrun að kjólarnir kostuðu 115 (danskar) krónur. Frúrnar fúlsuðu við þessu í stórum stíl þangað til honum hugkvæmdist að setja annað skilti sem á stóð: Áður 215 krónur, núna 170. Og kjólarnir ruku út.


mbl.is Debenhams með 70% afslátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf ég að styrkja Milestone?

Þar sem allt bendir til þess að ég þurfi að leggja Milestone til hluta af sparifé mínu fór ég að grúska í því hvaða þurfalingar þiggja af mér fé. Á síðu félagsins sé ég að það verður 10 ára á næsta ári en frá því í janúar 2008 hefur líklega ekkert gerst sem eigendur eru hreyknir af, a.m.k. hættir afrekaskráin þá.

Karl og Steingrímur Wernerssynir sitja í stjórninni og sjálfsagt er starfsfólkið stolt af því að vera í þessu teymi. Ég vissi ekki um þennan forstjóra Milestones sem var ritari í einkavæðingarnefnd um sölu bankanna:

 
Guðmundur Ólason  -   CEO
Guðmundur Ólason, CEO, was born in 1972. He earned a BA degree in political science from the University of Iceland and MS degree in political economy from Aarhus University in 1997.

In 1997–2002 Mr. Ólason worked in the Ministry of finance as a secretary of the Executive Committee on Privatization for the same period. In that role Mr.Ólason participated in the dramatic changes of the Icelandic financial system with the implementation of new regulatory environment and privatization of the state-owned banks.

In 2002 he took over a post as Vice president in the Nordic Investment Bank in Finland where he worked until he started his current job as CEO of Milestone ehf. Mr. Ólason is a member of the Board in several companies among others Sjóvá, Lyf og heilsa and Merlin A/S.

gudmundur@milestone.is

Karli Emil finnst gaman að leika á trompet. Gaman að því. Steingrímur lyfjafræðingur var byrjaður að byggja sér roknavillu í Fossvoginum fyrir rúmu ári. Ekki minna gaman að því. Í Sirkus segir að þau hjónin séu að byggja rúmlega 700 fermetra einbýlishús við Árland 1 og ég hef nýverið heyrt því fleygt að bílaflotinn sé slíkur að í bílskúrnum sé bílalyfta svo hægt sé að stafla. Ég heyrði líka að Steingrímur hefði fimm sinnum þurft að sækja um leyfi til að auka byggingarmagnið úr 230 fermetrum - húsið sem áður stóð þarna og var rifið var víst svo tíkarlega lítið - og það hafi ekki fengist fyrr en í byrjun þessa árs.

Annars átta ég mig ekki á af hverju Sirkus ýkir svona, Árland 1 er samkvæmt Fasteignamati ríkisins bara 540 fermetrar.

Ég er svo óendanlega fegin að spariféð mitt rennur svona til þeirra sem þurfa mest á því að halda.

mynd


Sjokk með VR

Ég var að reyna að finna út hverjir sætu í stjórn Mjólku og rakst þá á þau sláandi tíðindi að Gunnar Páll Pálsson væri einn í framboði til formanns Verslunarmannafélags Reykjavíkur. Hvað á þetta að þýða? Þetta var ekki í sjónvarpsfréttum.

Og hvernig er stjórn Mjólku skipuð? Vefurinn er í vinnslu. Ég er að reyna að átta mig á hvaða fyrirtæki skuli varast. Ég vil ekki versla við Vífilfell en heyrði einhvers staðar að Vífilfell ætti (í) Mjólku. Ég man þegar ég ákvað að versla frekar við Mjólku til að veita MS aðhald og styrkja Ólaf Magnússon sem hafnaði beinstyrkjunum. En nú finn ég ekki neitt gagnlegt um fyrirtækið.

Mér er smám saman að lærast að það er ekki allt sem sýnist í þessum verslunarbransa. Og enginn heldur vöku minni nema ég.


Hver ákvað að leyfa bíla á Laugaveginum í desember?

Síðunni barst bréf frá dagfarsprúðum miðbæingi:

Þú mátt endilega blogga um helv... bílana á Laugaveginum nú í jólaösinni. Hver í  andsk... ákveður það að hafa Laugaveginn opinn fyrir bílaumferð um helgar í desember? Í fyrra gáfumst við upp á því að ganga um Laugaveginn á Þorláksmessu vegna andsk... bílanna. Veðrið var stillt og yndislegt en ekki hægt að labba um vegna bílaútblásturs. Ef þú nennir ekki að blogga um það veistu kannski hver stjórnar opnun/lokun Laugavegar og mátt þá gjarnan segja mér það og ég ætla að hringja.

Ég? Ég veit ekki hver stjórnar þessu. Guð? Hugh Grant? Sandra Bullock?


Stattu upp en sittu á meðan

Ef maður skyldi verða atvinnulaus og alls ekki fá aðra vinnu gæti hann reynt að nýta tímann til að endurmennta sig. Hann gæti líka nýtt tímann til að horfa á Skjá1 og sjálfsagt fleira. Ef Ísland gengur t.d. í Evrópusambandið gæti snögglega orðið brýn þörf fyrir þýðendur.

Nú berast þau boð að framlög til menntamála skuli skert, fólki þannig ekki gert kleift að nýskrá sig í t.d. Háskóla Íslands og á sama tíma er einhver sem hvetur fólk til að skrá sig ekki atvinnulaust og þiggja (held ég) 136.000 á mánuði til varanlegrar eignar heldur mennta sig frekar til framtíðar og þiggja endurkræf námslán.

??

Hlustaðu með eyrnatöppum. Sofðu meðan þú vakir. Lestu autt blað. Borðaðu það sem úti frýs - og smjattaðu á góða bragðinu!

Já, mér finnst þversögn í því að hvetja fólk til að mennta sig um leið og alls staðar er dregið úr öllum möguleikum til þess.


Maður ársins

Í mínum augum er Vilhjálmur Bjarnason maður ársins, a.m.k. í viðskiptalífinu. Vilhjálmur talar fyrir minn munn (þótt hann sé reyndar fagfjárfestir) og á þessum síðustu árum þegar viðskiptalífið hefur yfirtekið annað líf hefur Vilhjálmur haldið sjó af yfirvegun og kurteisi. Hann hefur talað fyrir daufum eyrum og ef hann knýr fram réttlæti á fyrrum bankastjóra Glitnis, bráðum Íslandsbanka aftur, er stór björn unninn í réttlætisstríðinu.

Áfram Vilhjálmur!


Ég játa sekt mína

Ég hélt lengi vel að Bónus væri vinur litla launþegans. Og ég held reyndar að Jóhannes hafi farið af stað með sæmilega göfugan ásetning um að lækka vöruverð.

Samt átti ég að hafa vitkast fyrir löngu, ég vissi nefnilega að Bónus neyddi suma framleiðendur til að selja sér vöru undir kostnaðarverði. Já, Bónus kom sér í þá stöðu að geta það. Það leiddi til þess að minna forhertir kaupmenn keyptu sömu vöru á langtum hærra verði og selja okkur hana þar af leiðandi á mun hærra verði.

Það getur vel verið að Kaupás sé líka ósvífið fyrirtæki eins og einhverjir segja. Ég veit bara að það er mikil raun að þurfa að fara út í búð vegna þess að hér er nánast engin alvörusamkeppni. Og hvernig ætti það líka að vera, við erum fákeppnismarkaður. Rúmlega 300.000 manna (mál)samfélag stendur ekki undir mörgum bönkum, mörgum þjónustufyrirtækjum, mörgum matvöruverslunum, mörgum fjölmiðlum. Þess vegna þarf að standa við bakið á samkeppninni með dreifðu eignarhaldi og virku aðhaldi/eftirliti.

Ég er líka nýbúin að rifja upp verðstríðið um mjólkina sem Bónus og Krónan háðu. Hahh, hvernig gat fólki dottið í hug að það bætti stöðu þess að geta keypt mjólkurlítra á 1 krónu í nokkra daga? En umræðan var á þann veg, eins og þetta væri sending að ofan frá hinum góða sjálfum. Þetta snerist hins vegar allt um að reyna að hanka viðskiptavininn.

En nú hef ég vitkast, ég er hætt að kaupa inn í Bónus og ég mun hætta að versla við Baug jafnóðum og ég veit hvaða búðir hann á.

Það þarf að treysta samkeppnina.


mbl.is Kemur ekki á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband