Færsluflokkur: Dægurmál

Í Fréttablaðinu er vegið að leiðsögumönnum

Ég er ekki sérlega hörundsár og veit að oft eru menn bara ónákvæmir. Engu að síður finnst mér ekki í lagi að kalla starfsmenn ferðaskrifstofu sem keyra um drukknir á hálendinu leiðsögumenn. Ölvunarakstur er alltaf vítaverður, en drukkinn leiðsögumaður undir stýri væri skuggi á stéttinni. Ég frábið mér hann.

Leiðsögumaður ranglega sagður hafa keyrt um drukkinn á hálendinu


Ég bý í 101 Ásgarði/Goðagarði

Að því komst ég á miðborgarfundinum 1, 2 og Reykjavík í dag. Ég hélt hins vegar að ég byggi í Þingholtunum.

Á fundinum var margt gott fólk samankomið með góðar og gagnlegar fyrirspurnir. Og húmor. Alltaf gott að finna að fólki er ekki sama.

Miðborgarkort

Sjálf hefði ég viljað tala um flugvöllinn, Hringbrautina og bílamergð - en allt komst það á dagskrá án íhlutunar minnar.


Grafið hvað?

Í afmæli Ásgerðar var boðið upp á grafið gúmmulaði - af hvaða skepnu?

Og hér er afmælisbarnið sjálft.Afmælisbarnið sjálft gerir sér eigin veitingar að góðu

 


Og kostar kr. 58.820 til 72.660 fram og til baka þennan mánuðinn

Ef það er frétt að flugleið sé bætt á lista Flugleiða ætti líka að koma fram hvað hún kostar. Ég skoðaði fyrst og fremst dagsetningar í maí en sá hærri tölur í júní.

Mig langar til Vancouvers, er mbl.is til í að finna fyrir mig hagstæðar dagsetningar og kannski þá tengiflug?


mbl.is Fyrsta flugið til Toronto á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Diskóið er ekki dautt

Ég man Hollywood (í iðnaðarhúsnæði í Ármúlanum), ég man legghlífar, glansgalla, hliðartagl og grifflur. Ég hélt að þetta væri hluti af gengnum tíma, en í kvöld sá ég í Þjóðleikhúsinu að Hallgrímur Helgason er hvorki á því að láta diskóið né pönkið verða fortíðinni að bráð.

Hann hefur samið söngleik þar sem þessum tveimur heimum er teflt saman. Sannast sagna er ég ekki alveg viss um hvað mér fannst. Ég hló og klappaði, dillaði mér og stappaði - en ég held að stemningin í salnum hafi að hluta til hrifið mig. En þetta er flott fagfólk og þótt ég sé ekki sérlega ginnkeypt fyrir söng og þaðan af síður söngleikjum hríslaðist stundum um mig í söngvunum. Pönkið kom sterkt inn.

Sagan fannst mér ekki sérlega sterk, en sum tilsvörin voru æði. Kvöldinu vel varið, ekki síst við að læra nöfnin á Þóri Sæmundssyni og Söru Marti Guðmundsdóttur. Ég ætla að fylgjast með þeim næstu misserin.


Hafnarfjarðarbær að verða 100 ára

Undanfarið hef ég verið að lesa próförk að stiklum um sögu Hafnarfjarðar. Það hefur verið stórskemmtileg lesning. Eins og með öll skrif litast þau af þeim sem þau skrifa, það er ekkert sem heitir rétt sjónarhorn. Og það sama á við um fréttaskrif auðvitað en það er önnur saga.

Fyrir utan að fá staðfestingu á því að Hafnarfjörður er ógurlegur íþróttabær og vinur vinabæja sinna (og í eilífu kappi við Vestmannaeyjar) sá ég athyglisverða skýringu á tilurð hringtorganna, að lögreglan þakkaði þeim fækkun umferðarslysa og gott ef ekki fækkun afbrota. Hugsanlega er þetta lítils háttar hártog ...

Bókin verður í öllu falli glæsileg með myndum þá og nú. Og mér verður ábyggilega boðið í útgáfupartíið einhvers staðar í kringum 1. júní sem er sjálfur afmælisdagurinn. Tilhlökkunarefni.


Óvænt útspil

Ég er a.m.k. pínulítið hissa á staðfestu hjúkrunarfræðinganna. Að vísu finnst mér eðlilegt að þegar fólk segir starfi sínu lausu hugi það að öðru starfi samhliða, sé búið að ráða sig eða sé með eitthvað í sigtinu. Kannski eru hjúkrunarfræðingarnir á leið í aðra vinnu á föstudaginn, hérlendis eða erlendis.

Þó að eftirspurn sé eftir kröftum hjúkrunarfræðinga víða um lönd er ekki sjálfgefið að rúmlega 100 slíkum henti að pakka öllu sínu saman þannig að ég hefði kannski haldið að sumum kæmi vel að þurfa ekki að slíta sig frá öllu sem jarðbindur þá.

Ég tek ofan fyrir þeim. Þetta hlýtur að þýða ógnarsannfæringu, ekki satt?


Samið til eins árs

Eftir trúnaðarráðsfundinn geri ég mér í besta falli vonir um að við leiðsögumenn semjum upp á smotterí til eins árs og notum þann tíma til að skoða vel stöðu okkar - og huga.

Vinnutímatilskipanir og hvíldartímar

Ég hef miklar og háværar skoðanir á vörubílstjórauppreisninni en læt mér nægja að varpa fram spurningunum:

Er ekki ástæða til að endurskoða vinnutíma lækna og hjúkrunarfræðinga? Er það ekki enn svo að læknar (eða aðstoðarlæknar) standa stundum eins og hálfs sólarhrings vaktir? Hvaða skynsemi er í því? Er það fólk ekki hættulegt umhverfi sínu, sjúklingum og öðrum nærstöddum?

Ég hitti jeppabílstjóra í gær sem minntu mig á þessa hugsun.


Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Ég á bara ekki til orð yfir hvað hann er málefnalegur, fróður og vandaður fræðimaður, góður gestur hjá Agli. Ég hef heyrt í honum oft áður og hann slær hvergi af, aldrei, í fagmennskunni. Megi borgaryfirvöld taka mark á því sem hann segir um Reykjavíkurborg. 

mynd


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband