Vorilmur í lofti

Ég botna ekkert í þessu. Ég hef alltaf verið vandræðalega lítið næm fyrir lykt og algjörlega laus við klígju. Nú á þessu haustlega vori finnst mér allt brum svo rosalega lyktarsterkt að mér finnst næstum nóg um. Ég finn matarlykt milli húsa og allt í einu er brennisteinslyktin á háhitasvæðunum mjög sterk.

Veldur hlýnun jarðar þessu ...?

Og svo verð ég að minna sjálfa mig á að ég byrjaði að blogga fyrir akkúrat hálfu ári, hélt að ég myndi aðeins endast út þann mánuð, þ.e. til áramóta, en það er öðru nær - nú stefnir allt í að ég kaupi mér aukið myndapláss hjá Mogganum og haldi uppteknum hætti ... næsta hálfa árið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Valgarðsdóttir

Það mætti halda að þú hafir verið að hætta að reykja

Annars er ég sammála þár um bloggið, það er lúmskt gaman, jafnvel ávanabindandi. 

Vilborg Valgarðsdóttir, 10.6.2007 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband