Tryggðarpantur

Ég las Draumalandið í fyrrasumar og uppveðraðist ógurlega, lánaði hana svo og hef ekki séð aftur. Því miður, ég væri alveg til í að glugga í hana til upprifjunar. Ég fagna því að Andri Snær hafi verið metinn að verðleikum (þótt ég gefi lítið fyrir þessi huglægu bókaverðlaun sem forlögin geta keypt sig inn í). Hagvöxtur er ekki eign einnar stéttar manna - þótt hagfræðingar geri hann svolítið að sínum - og mér vitraðist t.d. þegar ég las Draumalandið að hagvöxtur minnkar þegar einhver hættir að vinna og fer í skóla.

Ég hef sagt þetta áður en skv. útreikningum eykst hagvöxtur líka við það að maður slasast og fer á spítala. Og líka þegar rúða er brotin. Og enn fremur þegar stríð eru háð, sbr. Íraksstríðið sem þessi Forbes þarna er svo hlynntur af því að hann eykur hagvöxt Bandaríkjanna. „Blessað stríðið sem gerði syni mína ríka.“

En ég er sem sagt byrjuð að lesa bókina hennar Auðar Jónsdóttur (var hún ekki líka tilnefnd?) og eftir 70 blaðsíður er hún ekki búin að ná mér. Inntakið er stúlka sem lifir í vellystingum praktuglega af því að amma hennar arfleiddi hana að múltí en svo allt í einu er múltíið uppurið og hún þarf að grípa til einhverra ráða. Og hún velur að leigja herbergi frá sér í stóra húsinu sínu. Dettur manni þá Leigjandi Svövu Jakobsdóttur í hug. En ekki meðan ég les ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hún er ekki hjá mér.

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 6.2.2007 kl. 13:12

2 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Nei, ég veit þannig lagað séð alveg hvar hún er .. kem bara ekki klónum í hana að svo stöddu.

Berglind Steinsdóttir, 6.2.2007 kl. 18:46

3 Smámynd: Ingibjörg Stefánsdóttir

Hvernig gengur með Tryggðarpantinn? Ertu búin og hvernig fannst þér þá?  Ég varð fyrir svolitlum vonbrigðum, þarf kannski að lesa hana aftur. Nú og svo væri líka gaman að ræða bókina í litlum hópi.

Ingibjörg Stefánsdóttir, 7.2.2007 kl. 10:47

4 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Úff, nei, ég hef orðið fyrir töfum ... Hún heillar mig ekki en ég ætla að klára hana.

Berglind Steinsdóttir, 7.2.2007 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband