Agaleysi samfélagsins

Ég var að hlusta á Sprengisand og umræður um rafmagnsleysið sem varð vegna veðurofsans í vikunni. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, er ómyrk í máli og vandar þeim ekki kveðjurnar sem hefðu getað búið sig – okkur – betur undir það sem vitað var að yrði. Ég held að hún segi ekkert nema sannleikann í málinu og taki svolítið að sér að benda á klæðlausa keisarann. Með síhækkandi aldri mínum er ég nefnilega loks farin að sjá og viðurkenna magnað agaleysi í íslensku samfélagi. Ég get líka kallað það meðvirkni því að ég held að ég hafi verið illa haldin af henni.

Sá sem gagnrýnir er líka útsettur fyrir gagnrýni. Sá sem bendir á gallana og mögulegar úrbætur verður fyrir því að sá sem gagnrýnin beinist að vill ná sér niðri á þeim sem gagnrýnir. Er ekki uppljóstrarinn Jóhannes Stefánsson alveg ótrúlega gott dæmi?

Við gætum öll haft það gott á Íslandi. Ég skal ekki segja með allan heiminn en Ísland býr svo vel að auðlindum að hér þyrfti enginn að líða skort. Það þýðir ekki að við eigum að ala á leti eða því að fólk hafi ekki fyrir hlutunum, mér finnst eðlilegt að við leggjum öll okkar af mörkum. En meðan varsla fjár er miklu meira metin en gæsla barna og umönnun sjúkra og aldraðra er ekki von á góðu. Og öruggt rafmagn er klárlega grundvallaratriði í lífsgæðum okkar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

 

 Sveitarstjóri Húna þings hefur talað svo eftir er tekið, enda full þörf á.

Varðandi aga leysi, þá hef ég lengi haldið því fram að hér eig að stofna íslenskan her. Til þess hers væri sérstaklega stofnað til í þeim tilgangi að kenna ungu fólki að sinna skildum sínum og hlíða.

Þarmeð gæti þetta orðið til þess að ungt fólk kynntist landi sínu og þjóð öllum til hagsbóta. Takist vel til þá gæti mögulega orðið til hæfileika ríkara fók til alþingis en nú er.

Um þetta má margt segja en læt þetta duga að sinni.

 

 

 

 

 

Hrólfur Þ Hraundal, 15.12.2019 kl. 21:05

2 identicon

Agaleysi er vandamál þar sem ekki er herskylda en her kallar á vopn og það hefur sýnt sig í ríkjum þar sem vopn eru að þau eru oft misnotuð til þess að halda aftur af kröfum almennings til betra lífsviðursværis, en hérlendis mætti hugsa sér að viss skylda væri að yngra fólk væri í björgunarsveit einhvern árafjölda á því myndi lærast hjálp og aðstoð til samfélagslegra þarfa sem er hverjum einstaklingi einungis til góðs, því að hjálpa öðrum í neyð er hverjum til aukins þroska og er gefandi.Vopnaburður er aldrei neinum til góðs og sýnir sig best í öfgum Bandaríkjamanna,þar má segja að vopn séu orðin klikkun.

Sigurgeir Árnason (IP-tala skráð) 16.12.2019 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband