Sunnudagur, 30. maí 2021
Ljótu hálfvitarnir
Vá! Ég horfði á heimildarmyndina um Ljótu hálfvitana níu á RÚV í fyrrakvöld. Þeir semja og spila af ástríðu, metnaði og brjálaðri spilagleði. Ég er svo lánsöm að þekkja sex þeirra í gegnum leikfélagið Hugleik sem ég dandalaðist með í sjö ár og hefur markað mig fyrir lífstíð. Ég var reyndar upptekin í fyrrakvöld þannig að ég horfði ekki fyrr en í gær og ég hugsa að ég horfi aftur á bæði heimildarmyndina og tónleikana frá 2019 áður en tíminn rennur út eftir þrjá mánuði.
Og svo er myndin í línulegri dagskrá núna kl. 15:20.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 27. maí 2021
Hver eru þá launin í ferðaþjónustunni?
Fyrirtækjum í ferðaþjónustu tekst víst ekki að ráða til sín fólk. Það kom fram í Kastljósi kvöldins og ég sá það líka á löngum þræði á Facebook-síðu sem er kölluð Bakland ferðaþjónustunnar.
Ég get sagt það einu sinni enn að laun leiðsögumanna eru frámunalega lág og hafa verið lengi. Hæsta dagtaxtagjald er 2.530 kr. og mörg ferðaþjónustufyrirtæki þykjast ekki geta boðið betur. Samt á leiðsögumaðurinn að fræða og skemmta, hugga og stumra yfir fólki ef eitthvað er að og í langferðum er hann í raun alltaf til staðar. Ég var leiðsögumaður í 13 sumur en hætti 2013 þegar innviðirnir sprungu framan í okkur.
Ef ekki tekst að manna störfin núna þrátt fyrir mikið atvinnuleysi verð ég að spyrja: Hvað eru ferðaþjónustufyrirtæki að bjóða í laun fyrir vinnuframlagið? Ef þau eru ánægð með sig hljóta þau að geta svarað því.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 25. maí 2021
Eingöngu konur á þingi?
Þessi fyrirsögn trekkti mig inn á viðtalið við Arnar Pétursson:
Væri til í að hafa eingöngu konur
á Alþingi nokkur kjörtímabil
Arnar ofurhlaupari segir: Einu sinni réðu karlar öllu. Af hverju eru menn ekki brjálaðir þegar þeir lesa söguna frá 1930? Af hverju fá þeir ekki reiðitilfinningu þá? Þeir fá hana þegar þeir hugsa um 100% konur á þingi, að það sé galið.
Ég veit ekkert hvort honum er 100% alvara. Ég gæti sem best trúað að hann vildi hrista upp í fólki. En er útilokað að 63 konur væru besta val á Alþingi í 12-16 ár meðan verið er að rétta hallann?
Ég er aðeins málkunnug Arnari og veit að hann kemur úr réttsýnni baráttufjölskyldu. Hann býðst í raun til að stíga til hliðar og eftirláta mömmu sinni og systur sviðið.
Þessi hluti viðtalsins hefst eftir rúman klukkutíma.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 24. maí 2021
ASÍ gegn Play / Play gegn ASÍ ... eða íslenskt flug eða ekki
Forseti ASÍ og forstjóri Play áttu útvarpsfund í gegnum Sprengisand í gærmorgun. Miðað við málsvörn hvors um sig í þessum þætti mun ég ekki kaupa mér miða með Play á næstunni.
Það er ekki sama hvaðan gott kemur. Ef starfsfólkið fær lúsarlaun liði mér ekki vel með flugmiðann á 20.000. En hvernig er miðaverðinu haldið lágu hjá Wizz og Smart Wings? Íslenskur flugiðnaður er í erfiðri samkeppni. Mig langar nefnilega heldur ekki að kaupa miða með Icelandair sem er með trygga lánalínu frá íslenska ríkinu ef eitthvað fer úrskeiðis. Svo hefur Icelandair margsinnis fellt niður flug í vetur og sameinað öðrum flugleggjum og sent farþega sína landleiðina til annarra landa ef þeir ætla að ná flugi til Íslands með Icelandair.
Hvert er aftur öryggið í því að hafa íslenskt flugfélag versus að hafa það ekki?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 21. maí 2021
2020-2021
Þessi Covid-vetur var ekki alvondur. Ég fékk mér gráðu í blaða- og fréttamennsku og allar einkunnirnar voru 8,5. Nú er ég líka í stuði fyrir allt mögulegt, já, eins og að fá MA-ritgerðina mína til baka frá leiðbeinanda í þýðingafræðinni. Sú gráða hefur verið alltof lengi í vinnslu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 15. maí 2021
Snerting
Ég er bara hálfnuð með bókina sem margir mæra og mér finnst hún enn sem komið er flatneskjuleg og leiðinleg. Mér skilst þó að hún fjörgist þegar líður á þannig að ég mun lesa til enda.
Ég skil samt ekki hvernig meinleg villa getur komið fyrir tvisvar í útgefinni bók frá manni sem er klappaður upp sem meistari íslenskrar tungu.
Ekki ófá > tvöföld neitun > fá. Varla er hann að meina að hann hafi sjaldan sest með stjúpdóttur sinni til að hjálpa henni með námið.
Kiljan var yfir sig hrifin af bókinni ... og stílnum ... þannig að ég vonast eftir betri seinni helmingi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 13. maí 2021
Fossvogslaug
Hugmyndin um Fossvogslaug hljómar vel í mínum eyrum. Ég stundaði sund í laugunum í mörg ár en undanfarið í sjónum. Aðstaðan í Nauthólsvík er sprungin og það hefur líka sýnt sig að eftirspurn eftir sundlaugum er mikil, ekki bara í Reykjavík en alls ekki síst í Reykjavík. Þetta er lýðheilsumál og félagsmál.
Ég hélt að allir fögnuðu hugmyndinni um Fossvogslaug en svo sé ég að menn hafa áhyggjur af almennu aðgengi og landi sem verður lagt undir bílastæði.
Þá er lag fyrir áhugasama að tala og þá sem taka ákvörðunina að hlusta.
Ég er enn áhugasöm um Fossvogslaug og get næstum lofað að ég fari þangað sjálf á hjóli, til vara í fullum bíl af sundlaugargestum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 10. maí 2021
Lögmaður er ekki skjólstæðingur hans
Ég á bróður sem stal miklum peningum af mömmu og pabba, þ.e. hann fékk lánaðar 10,5 milljónir til viðbótar við helling sem þau gáfu honum en þegar þau dóu fyrir tveimur og þremur árum neitaði hann einfaldlega að borga peninginn til baka. Pabbi hafði í sakleysi sínu skráð allt niður en ekki þinglýst eða látið hann skrifa undir skuldina. Með hjálp lögmanns komst Gummi upp með þetta gagnvart okkur systkinunum þremur. Ég var í miklum samskiptum við lögmann Gumma og hann margsetti upp svip hins saklausa og sagði að ég mætti ekki samsama hann skjólstæðingi sínum.
Síðan hef ég margheyrt formann Lögmannafélagsins segja það.
Af hverju vissi lögmaður Sölva ekki af þessu sem lögmenn klifa á?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 9. maí 2021
Mæðradagurinn
Ég er ekki spennt fyrir þemadögum og ekki heldur hástigslýsingarorðum. Mamma mín var einfaldlega besta mamman fyrir mig. Nú eru þrjú ár og fjórir mánuðir síðan hún dó og ég sakna hennar stöðugt. Ég tek aldrei upp símann og byrja að hringja í hana sem er skrýtið af því að við töluðum saman í síma á hverjum einasta degi en ég hugsa mjög oft að mikið vildi ég tala um þetta eða hitt við hana.
Mér finnst gott og heilbrigt að geta sagt að hún var gallagripur eins og við flest en hún var mikill grallari og húmoristi og alltaf raungóð. Hún hafði ýmsa fjöruna sopið áður en ég fæddist, yngsta barn foreldra minna, og hún bar sem betur fer ekki harm sinn alltaf í hljóði en hún var ekki týpan sem sífraði eða heimtaði. Hún bað mig að lifa lífinu og alltaf þegar ég skemmti mér vel, geri eitthvað nýstárlegt eða næ árangri í einhverju veit ég að hún myndi kinka kolli af sérstakri velþóknun. Hún kunni sannarlega að samgleðjast og gerði það svikalaust.
Þótt ég sakni hennar og hefði viljað hafa hana lengur er ég líka þakklát fyrir að hún þurfti ekki að búa við covid-takmarkanir sem hefðu rýrt lífsgæði hennar geysilega mikið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 8. maí 2021
Gerendameðvirkni
Ég hata meðvirkni.
Það getur verið erfitt hvort sem er að þegja eða segja en allt byggist það á að samfélagið sé sæmilega heilbrigt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 5. maí 2021
6 milljarða hagnaður hjá Arion
Ég er með kenningu um þennan góða hagnað hjá bankanum. Ég er sjálf viðskiptavinur hans og hef sannreynt að innlánsvextir eru niðri í gólfinu á sama tíma og hann rukkar myndarlega fyrir útlánsvexti. Allir bankar á fákeppnismarkaði græða í því umhverfi.
Af hverju fáum við ekki samkeppni í peningalífinu? Og ekki segja mér að stofna banka, fólk með viðskiptavit og fyrirtæki í maganum ætti að gera það.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 3. maí 2021
Sakir - engar sakir
Ég er alltaf síðust til að frétta slúðrið. Nú ber Sölvi Tryggvason af sér sakir sem ég hef aldrei heyrt bornar á hann. Páll Óskar sýndi myndir af sér um daginn og skilaði skömminni. Þá höfðu þær myndir víst verið á floti í eitt og hálft ár og ég hafði ekki séð þær. Svo man ég eftir viðskiptaráðherra eitt árið sem sagðist ekki vera spilafíkill eins og menn væru að hvísla um en ekkert hafði ég heyrt.
Hvaða miðla er ég ekki að lesa eða hlusta á?! ... Nei, ég ætla ekki að leita þá uppi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)