Sunnudagur, 19. mars 2023
Hvenær elskar kona mann og hvenær elskar kona réttan mann? - Játning eftir Ólaf Jóhann
Mikið er ég fegin að hafa verið bent á Goodreads-síðuna þar sem venjulegir lesendur tjá sig um venjulegar bækur, líka á íslensku. Stundum þegar ég er komin vel inn í bækur gái ég hvort einhver hefur skrifað þar bitastæða umsögn. Ég gerði það hins vegar ekki þegar ég las nýjustu bók Ólafs Jóhanns, Játningu, heldur var ég að því núna.
Ég er frekar samviskusamur lesandi og gef höfundum mikinn séns. Það á allan daginn við um stjörnuhöfundinn Ólaf Jóhann sem ég les alltaf af skyldurækni. Ég man enn þegar ég las Níu lykla árið 1993, auðvitað meðvituð um að hann er sonur Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, og ég man enn að mér þóttu allar níu smásögurnar fara vel af stað og hver einasta fannst mér endaslepp.
Samt las ég Snertingu í fyrra sem mér fannst lala mínus með einum góðum tvisti og samt greip ég Játningu á bókasafninu um daginn. Og þá er nú gott að hugga sig við að stundum hittir bók í mark. Ég var alveg viku að byrja enda þurfa flestar bækur aðeins að kynna sig og persónur sínar en síðustu 300 blaðsíðurnar gat ég varla lagt bókina frá mér. Og þegar ég les núna umsagnir annarra á Goodreads er þeim þveröfugt farið, þau hafa verið hrifin af bókum ÓJÓ hingað til en verða fyrir vonbrigðum með þessa.
Sko, Elísabet kynnist Benedikt í Austur-Þýskalandi rétt fyrir fall múrsins, þau verða ástfangin, Benedikt er náttúrubarn í skák og með ýmsa drauga í eftirdragi og þau lenda undir smásjá Stasi. Þær lýsingar þóttu mér hrollvekjandi vegna þess að þrátt fyrir allt búum við við persónufrelsi en ég var einmitt í Vestur-Þýskalandi árið 1987 og gekk auðvitað ekki í gegnum neitt þessu líkt. Við máttum og megum taka ljósmyndir og túlka að vild, tala við hvern sem er, sætum ekki miskunnarlausum kúgunum og erum ekki send í gúlagið fyrir rangar skoðanir. Í þessum hluta bókarinnar datt mér oft Bobby Fischer í hug.
Eða er ég kannski meðvirk? Erum við ófrjáls á Íslandi?
Svo er þáttur Halldórs til þess fallinn að kalla fram tár. Það er erfitt að segja nokkkuð án þess að segja strax of mikið, en elskaði Elísabet hann eða gerði hún það ekki?
Marta er dóttir Elísabetar og knýr atburðarásina af stað í nútímanum þegar hún finnur gamlar myndir frá Þýskalandsárunum. Þá er Elísabet stödd í vinnuferð á Ítalíu og óstöðug í tímanum eins og við mörg, alltaf að skoða símann til að kanna viðbrögð og bíða svara.
Þegar ég er búin að fara svona yfir mín helstu hughrif get ég alveg tekið undir með einhverjum að endarnir eru ekki allir hnýttir, en engri sögu lýkur til fulls nema með dauða. Þroskasögu Elísabetar lýkur ekki á bls. 390 og hvort tilfinningaríku myndirnar fara á sýninguna eða ekki er aukaatriði í sögunni sjálfri. Ég veit ekki hvað höfundur hugsaði í þeim efnum - enda er það þannig að þegar höfundur hefur sleppt hendinni af bókinni sinni geta allir lesendur túlkað eftir eigin höfði. Eins er með svona ritdóma ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 16. mars 2023
Líf á RÚV (Life á BBC)
Á sunnudagskvöldum er nú í línulegri dagskrá bresk sjónvarpsþáttaröð um fjórar fjölskyldur í fjögurra íbúða húsi. Mér finnst allar sögurnar áhugaverðar (kannski ponsulítið ýktar samt) en sagan af konunni sem varð sjötug í fyrsta þættinum og áttaði sig á að hún hafði síðustu 50 árin lifað öðru lífi en hún hafði ætlað sér höfðar hvað mest til mín. Hvað varð um galgopann Gail sem var extróvert í hljómsveit en varð ráðsett og ábyrg húsmóðir með eiginmann, tvö börn, reglulegar máltíðir og tandurhreint eldhús? Vill sjötug kona snúa við blaðinu þegar hún sér að hamingjan sem einkenndi allt fjölskyldulífið var e.t.v. byggð á gaslýsingu (tek fram að þetta orð er ekki notað) eiginmannsins sem öllum fannst fyndinn og umhyggjusamur?
Svo er Anna eða Belle (Annabelle) sem kennir pílates en elur önn fyrir geðveikri systur sinni og situr uppi með systurdóttur sína og nokkra eigin drýsildjöfla í höfðinu.
Uppi er ungi ekkillinn sem missti konuna sína fyrir mánuði og er eins og draugur upp úr draug.
Loks er hin nýbakaða móðir, Hanna, sem ætlar að giftast manninum sem kom inn í líf hennar eftir að hún varð ólétt. Gail hin sjötuga speglar sig í hlutskipti Hönnu og öfugt vegna þess að sagan á það til að endurtaka sig. Þegar maður er á þrítugsaldri býr maður yfir kjarkinum en hefur ekki yfirsýnina. Þegar maður er sjötugur sér maður yfir sviðið en þorir kannski ekki að gera það sem þarf.
Eða hvað?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 10. mars 2023
10 ára samningi hafnað
Ég gerði mig seka um að velta ekki mikið fyrir mér langtímasamningnum sem forystumenn sjómanna gerðu fyrir þeirra hönd um daginn. Þó man ég eftir að ég spurði vin minn í Samtökum atvinnulífsins hvort ekki væri fyrirvari í samningnum, svona uppsagnarákvæði. Hann hélt að það hlyti líklega að vera. Til að varpa ekki rýrð á neinn tek ég fram að hann er ekki í neinni samninganefnd.
Og nú er samningnum hafnað mjög afgerandi. Hver túlkar með sínu nefi en mig grunar að margir hugsi með sér að launþegar séu að þjappa sér saman vegna þess að launþegarnir eru þeir sem búa til verðmætin og telja sig eiga meira tilkall til stærri hlutar í þeim en atvinnuÞEGUM þóknast að láta hrjóta fram af gnægtaborði sínu.
Tek líka fram að ég hef ekkert gluggað í samningana sjálfa, hef bara lesið fréttir af samningunum og nú sannast enn á ný að fréttaflutningur er í skötulíki. Fréttamenn eru kranar enda er þeim vafalaust ætlað að framleiða ógrynni af fréttum á hverjum degi en ekki vinna úr upplýsingum og gögnum.
Vitið þið hvaða fréttamenn eru í laun? Ég þori að hengja mig upp á að þau eru skammarlega lág.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 9. mars 2023
Erlendir hótelstarfsmenn
Ég var að skoða launaseðil útlensks starfsmanns á hóteli, reyndar frá árinu 2019. Ef hann hefði þá unnið allan mánuðinn á dýrari tíma, sem sagt með 45% álagi, hefði hann samt ekki náð 500.000 króna heildarlaunum.
Skiljið þið þetta? Launasetningin er þannig að fólk á Eflingartaxta - og þótt það væri VR-taxti - NÆGIR EKKI TIL AÐ FÓLK FRAMFLEYTI SÉR. Ég held að miðlunartillagan sem sátt náðist um, guðsblessunarlega svo sem, sé bara stundarfriður.
Samkvæmt samningum - sem greitt er eftir - er fólk raunverulega með skít úr hnefa í mánaðarlaun. Ég skil ekki að þeir sem bjóða þessi laun sofi vært á næturnar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 7. mars 2023
Verkastúlka á síðustu öld
Það var að rifjast upp fyrir mér að þegar ég var 18 eða 19 ára vann ég eitt sumar hjá Nóa-Síríus við að pakka síríuslengjum og öðru súkkulaði í neytendapakkningar við færiband. Mér fannst sumarið stórskemmtilegt og vinnan bara alveg ljómandi enda nýkomin á vinnumarkað þannig lagað. En annað tvennt er mér líka minnisstætt, annars vegar að fyrirtækinu þóknaðist að borga mér eftir unglingataxta sem var ekki til og það ætlaði svo að hlunnfara mig um orlofsdaga sem ég ávann mér á fjórum mánuðum.
Þegar ég áttaði mig á þessu fór ég á skrifstofu forstjórans og fór fram á leiðréttingu sem ég fékk ekki. Þá hafði ég samband við stéttarfélagið sem knúði fram leiðréttingu. Hún náði til jafnaldra minna sem höfðu fengið greitt eftir sama taxta.
Ég fékk leiðréttingu greidda með ávísun sem ég tók ljósrit af og átti lengi. Ég á hana kannski enn en veit þá ekki hvar hún er. Ég man að þegar búið var að draga af launatengd gjöld og þess háttar stóðu eftir 918 krónur enda erum við að tala um níunda áratuginn.
Ég held að of mörg stór fyrirtæki muni alltaf reyna að hlunnfara andvaralaust starfsfólk sitt.
Ég þarf væntanlega ekki að taka fram að mér bauðst hvorki jólavinna í konfektinu né páskaeggjavinna næsta vetur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 6. mars 2023
Byggjum 35.000 íbúðir
Það sem Ólafur Margeirsson sagði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 3. mars 2023
Strætó frá Reykjavík til Keflavíkur
Ég tók einu sinni strætó frá Klambratúni til Keflavíkur. Ég gat það bara af því að ég fór á björtum degi, hafði tíma til að rúnta um smábæina og hafði einbeittan vilja til að finna staðinn til að fara út úr strætó í Keflavík.
Eina ástæðan fyrir þessari lélegu þjónustu er að ekki má styggja einkafyrirtækin tvö sem okurselja farið með rútunum. Það er mín skoðun en ekkert annað stenst skoðun.
Spillingin er víða.
Og ég held að við látum þetta viðgangast af því að sem þjóð erum við bullandi meðvirk, ég líka en ég reyni stundum að rísa upp á afturlappirnar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 26. febrúar 2023
Juliet, naked
Í gærkvöldi horfði ég á bíómynd sem ég held að mér muni finnast stórkostleg þegar frá líður. Hún var bara sýnd á RÚV, er frá 2018 og ég hafði ekkert heyrt um hana.
Hún er um konu sem tók ákvörðun sem ung kona og 15 árum síðar sér hún eftir henni. Oftast sér maður eftir því sem maður gerði ekki, síður því sem maður gerði, er það ekki? Henni fannst hún hafa flotið áfram í lífinu frekar en að taka af skarið. Við getum mörg tekið þetta til okkar.
Þetta er mynd sem sameinar vellíðan, sársauka, vonir og framtíð. Ég leit ekki af henni meðan hún rúllaði á skjánum og það get ég sjaldan sagt nú orðið. Hins vegar skil ég ekki titilinn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 25. febrúar 2023
Pallborðið á Vísi
Ég ætla að segja það sem ég hef verið að hugsa. visir.is, sem sagt einkafjölmiðill, stendur sig miklu betur en ríkisfjölmiðillinn í að upplýsa mig um gang mála í kjaradeilunni sem skekur, tjah, allt mitt líf þótt ég eigi persónulega nánast ekkert undir. Helstu áhrifin eru að ég gæti mögulega ekki komist á gönguskíðanámskeið til Siglufjarðar um næstu helgi.
En visir.is stóð sem sagt fyrir klukkutímalangri umræðu við deilendur í kjaraviðræðum Eflingar og SA sem ég horfði á undir kvöld í gær. Ég gat varla slitið mig frá þættinum enda var hann ríkulega myndskreyttur. Mitt mat er að bæði Sólveig og Halldór séu á síðustu bensíndropunum og innilega til í að fara að lenda málinu. Og þá er líklega rétt að ég haldi því hér til haga að ef ég væri hvort þeirra sem er hefði ég gefist upp fyrir viku. Þess vegna er ég ekki í kjaraviðræðum og enginn myndi velja mig til þeirrar forystu. Og ég get líka bætt því við að fyrir hönd leiðsögumanna hóf ég einu sinni kjaraviðræður við SAF/SA (2002) og það var við þvílíkt ofurefli að etja að ég þakkaði mínum sæla þegar formannsárinu mínu lauk og ég gat dregið mig í hlé. Forkólfar atvinnurekenda eru með her manns á fullum launum við að mæta litlum stéttarfélögum sem eru rekin af sjálfboðaliðum - ekkert fékk ég a.m.k. borgað - og þau sem eru ekki hreinlega meðvirk og haldin Stokkhólmsheilkenninu gefast bara upp fyrr en síðar og þiggja þá hungurlús sem að þeim er rétt. Kjör leiðsögumanna eru ekki í neinu samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til þessa andlits ferðaþjónustunnar.
Og ég held að obbinn af þeim 90% stéttarfélaga sem framkvæmdastjóri SA hreykir sér í sífellu af að hafa samið við hringinn í kringum landið ráði ekki við lögfræðingastóðið sem SA búa yfir. Viðsemjendurnir eiga bara fullt í fangi með að sinna vinnunni og mæta svo til samninga í fátæklegum frítíma sínum.
Engu að síður held ég að þessir tveir turnar, Efling og Samtök atvinnulífsins, muni lenda samningi fyrir 2. mars með fulltingi setts sáttasemjara og e.t.v. miðlunartillögu sem sé ekki snýtt úr nösum Samtaka atvinnulífsins.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 23. febrúar 2023
35% hækkun í Skipholti
Í september kostuðu Maarud-kartöfluflögurnar á myndinni 349 krónur. Ég fékk leiðindadálæti á þeim og borðaði þótt ég hefði ekki gott af því. Af mörgum veikleikum mínum er veikleiki gagnvart kartöflum vandræðalega mikill. Ég tók svo eftir því að pokinn hækkaði í 379, eftir áramót fór hann upp í 409 og núna 479 krónur. Kannski millilenti hann í 429, en hann hefur alltént hækkað um 130 krónur síðan í september, tæplega 35%.
Ég get ítrekað að ég ætti að sniðganga þessar kaloríur en sumt fólk má alveg við þeim. En má það við 35% hækkun verðlags?
Þið gætuð örugglega bent á mörg önnur dæmi sem þið hafið tekið eftir. Er hægt að bjóða okkur upp á þetta til lengdar? Heyri ég einhvern tala um 35% hækkun á laun?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 22. febrúar 2023
Tjónið af yfirgangi auðvaldsins
„Við erum alveg örugglega ekki að tala um tugmilljónir, við erum örugglega að tala um nokkur hundruð milljónir sem við erum komin í nú þegar því stórir hópar eru nú þegar búnir að afpanta,“ segir Elías.
Þetta er haft eftir settum ferðamálastjóra.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég hnýt um það að ferðaþjónustan telur sig tapa gríðarlega en hefði ekki grætt gríðarlega í óbreyttu ástandi.
Er einhver búinn að reikna út meint tjón af því að hækka laun þeirra sem smyrja hjól atvinnulífsins og bera saman við meint tjón af verkbanni og öðrum tjónvöldum Samtaka atvinnulífsins?
Mér finnst auðmýkjandi að bera það bull á borð fyrir hugsandi fólk að láglaunastéttirnar séu vandinn. Það fólk sem gerir það hefur orðið sér til skammar og opinberað vanmátt sinn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 21. febrúar 2023
Var Vilhjálmi og Ragnari lofað að semja ekki út fyrir meintan ramma?
Ég hef heyrt að hvorki Starfsgreinasambandið né VR hafi gert kröfu um að önnur verkalýðsfélög gætu ekki samið á sínum forsendum við Samtök atvinnulífsins. Það er samt mantran sem framkvæmdastjóri SA fer með. Mikið væri nú gott ef viðmælendur framkvæmdastjórans spyrðu aðeins betur út í þetta. Merkilega margir þáttagerðarmenn hafa verið duglegir að stoppa eintalið hans en ekki nógu margir fréttamenn.
Það væri gott að fá þetta á hreint. Myndu SGS og VR bregðast illa við ef verkafólk Eflingar fengi meira en það sem SGS og VR hafa samið um? Og ég spyr aftur: Af hverju erum við með mörg stéttarfélög ef þau eiga öll að elta það félag sem semur fyrst?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 20. febrúar 2023
Óöldin
Ég þyrfti að setja sjálfa mig í fréttabann en ég held áfram að kvelja mig mörgum sinnum á dag. Hrokinn sem lekur af auðvaldinu er svo yfirgengilegur að mig verkjar í hjartað og sálina og er ég þó frekar laus við væmni allajafna.
Hvernig er hægt að vera með 4,3 milljónir á mánuði og leyfa sér að koma í viðtal með uppgerðarmærðarsvip og þykjast hafa samúð með Eflingarfólki sem fái ekki úr mjóslegnum vinnudeilusjóði? Sá mærðarlegi hefur meira vald en flestir til að breyta rétt gagnvart þessum hópi sem hann gerir sér upp samúð gagnvart.
Ég trúi því að margir hóteleigendur og bensínsalar vilji borga starfsfólkinu sínu mannsæmandi laun og þess vegna trúi ég ekki að stóri hópurinn greiði atkvæði með verkbanni.
Ætlið þið annars að segja mér að næsta skref sé lög á verkfall? Ég tek út fyrir svo mikið sem að skrifa þetta og ég neita að trúa því fyrr en í fulla hnefana.
Ég man verkfallið 1984. Þá fór húsvörðurinn í menntaskólanum í verkfall, ekki kennarar heldur bara einn lykilmaður í húsinu, og mig minnir að mjólkin hafi líka farið í verkfall. Þá var hún líklega enn seld í sérstökum mjólkurbúðum og gott ef hún var ekki í þríhyrndum umbúðum.
Það er viðurkenndur réttur fólks að berjast fyrir bættum kjörum sínum og sýna fram á mikilvægi starfsins sem það gegnir. Og þið vitið hvaða fólk tæki eftir því ef framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins færi í verkfall. Börnin hans sem hann myndi horfa aðeins oftar á Hvolpasveitina með. Ekki sála á vinnumarkaði eða sála í leit að þjónustu. ENGINN myndi sakna hans nema kannski fólkið við kaffivélina í Borgartúninu.
Afsakið að ég skuli vaða í persónuna en baráttan gegn sanngirni hefur bara verið persónugerð af honum sjálfum þannig að það er erfitt að aðskilja nefið og augun. Þið vitið: Náið er nef augum.
Ég væri innilega til í að víkja helstu persónum af sviðinu og láta málefnin takast á. Er sanngjarnt að fólk sé matvinnungar?
Svari hver fyrir sig.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 20. febrúar 2023
Verkbann?
Atvinnurekendur fara á límingunum yfir verkfalli láglaunafólks vegna þess að það lami atvinnulífið og hagkerfið en boða svo verkbann til að senda lægst launaða fólkið heim alveg tekjulaust.
Í stað þess að rétta þeim sem hóstar snýtubréf á nú að reka framan í hann olíuborinn tvist.
Til öryggis tek ég fram að ég hef það sjálf gott, er í vinnu sem ég valdi sjálf og get haft mitt líf eftir mínu höfði. Við vitum öll að það á ekki við um fólk sem þarf að slíta sér út alla daga til að smyrja hjól SA.
Í yfirlýsingu SA segir m.a.:
Samtök atvinnulífsins geta ekki teygt sig lengra í átt til Eflingar án þess að kollvarpa þeim kjarasamningum sem hafa verið gerðir við öll önnur stéttarfélög á almennum vinnumarkaði en að baki þeim standa tæplega 90% starfsfólks á almennum vinnumarkaði.
Ef Efling má ekki gera kröfur fyrir sitt félagsfólk, af hverju er þá ekki bara eitt stéttarfélag í landinu?
En huggunin er að Viðskiptablaðið ætlar greinilega að taka slaginn með hjúkrunarfræðingum þegar samningar þeirra losna:
Olíubílstjórarnir eru með hærri laun en til dæmis hjúkrunarfræðingar, sem þó starfa undir miklu meira álagi, geta þurft að þola saksókn fyrir mistök í starfi og eru með margra ára háskólamenntun á bakinu. Það er ekkert sem réttlætir að olíubílstjórar hækki umfram þær gríðarlegu hækkanir sem annað launafólk hefur samið um undanfarið og verkfall þeirra er einfaldlega siðlaust.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 16. febrúar 2023
Neyðarástand?
Eru yfirmenn á hótelum ekki í lagi? Þau tala um neyðarástand og formaður SAF um heimagerðar hamfarir. Missti þetta góða fólk af fréttum af jarðskjálftanum í Tyrklandi?
Eða tala þau um neyðarástand þegar ekki verður hægt að greiða út milljarða í arð? Er það neyðarástandið í þeirra orðabókum?
Það sýður á mér.
Ég hef alveg samúð með ferðamönnum sem grípa í tómt og fá ekki það sem þau töldu sig hafa keypt en það heyr enginn dauðastríð út af því.
Hálaunamenn - hættið að misbjóða okkur.
Tek fram til öryggis að ég hef það fínt, er ekki á skítakaupi, er í vinnu sem ég valdi mér sjálf, er með sveigjanlegan vinnutíma og borga hellingsskatt á hverju ári.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 14. febrúar 2023
Tæmast búðirnar?
Ég er auðvitað lúxusdýr sem get leyft mér að hafa litlar áhyggjur af mínu persónulega lífi þrátt fyrir yfirstandandi og yfirvofandi verkföll, en er hótun um að matvöruverslanir tæmist ekki ótrúlega góð áskorun fyrir mörg okkar að grafa ofan í frystikistuna og tæma skápana?
Hins vegar er ég sannfærð, og meira en það, um að búið verði að semja um helgina.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 13. febrúar 2023
Eldsneytisþurrð
Ég er eiginhagsmunaseggur eins og við flest. Ég gisti ekki á hótelunum í Reykjavík og ég seldi bílinn minn um helgina enda hafði ég ekki hreyft hann í rúma tvo mánuði, frá því að ég lét skoða hann síðast. Ég fer allra minna ferða hjólandi og gangandi nema þegar ég stöku sinnum fæ far með öðrum.
Yfirvofandi bensínþurrð káfar því ekkert upp á mig. Ég skil að barnafólk sem þarf að fara langar leiðir til að koma börnunum sínum í skóla og aðrar langar leiðir til að komast í vinnu og verslanir kippi sér upp við yfirvofandi skort en mikið væri nú gaman að fólk í þeirri stöðu - og allt fólk - íhugaði mikilvægi þeirra starfsmanna sem sjá okkur fyrir grunnþörfunum. Ef samfélagið fer á hliðina í nokkra daga þegar hótelþernur og olíubílstjórar leggja niður störf en enginn tæki eftir því þótt framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins færi til Kanada og kæmi heim eftir fjóra mánuði ... þarf ég að segja meira?
Ég veit ekki öll laun allra en það er grundvallaratriði að bera saman grunnlaun stétta og einstaklinga, ekki heildarlaun með ómanneskjulegri yfirvinnu, langdvölum frá heimili og hættulegu starfi. Og kannski ég skjóti því hér inn að búið er semja við leiðsögumenn um smáaura:
Niðurstaðan er á þann veg að já sögðu 42, eða 67,74 %, nei sögðu 19, eða 30,65%, og einn tók ekki afstöðu eða 1,61%. Niðurstaðan er því skýr. Kjarasamningurinn hefur verið samþykkur.
42 leiðsögumenn samþykktu samninginn fyrir hönd allra þeirra sem þiggja laun eftir honum og ég get sagt að laun eru greidd eftir samningnum. Sárafáir leiðsögumenn eru yfirborgaðir eða voru það a.m.k. meðan ég var í stéttinni. Samt eigum við að vera altalandi, líka með öll fagorð, á erlendu tungumáli, sérfróð um allt sem fólk gæti langað að vita, við eigum að skemmta, hugga og helst alltaf að vera til taks í hringferðunum. Leiðsögmenn fara vissulega upp í milljón á mánuði með stöðugri viðveru og taka sér síðan einhverja daga í að hvíla sig og safna kröftum eftir törnina. En að vísu er engin lífsógn fólgin í syfjuðum leiðsögumanni, ólíkt vansvefta bílstjóra.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 8. febrúar 2023
Tjón af verkfallsaðgerðum - SA
Fréttaflaumurinn er svo stríður að ég finn ekki fréttina af því þegar framkvæmdastjóri SA sagðist myndu gera kröfu um að Efling myndi bæta tjón sem hlytist af verkföllum.
Tjón vegna þess að láglaunafólkið vinnur ekki vinnuna.
Af hverju ætti það að verða mikið tjón?
Aldrei hef ég heyrt forkólfa atvinnulífsins tala um þann mikla gróða sem hlýst af störfum láglaunafólks.
Hvernig ætti að verða mikið tjón nema vegna þess að störfin eru mikilvæg og verðmæt?
Ef þið þekkið einhverja blaðamenn megið þið gjarnan biðja þau um að spyrja gagnrýninna spurninga. Það er of lítið um gagnrýna fréttamennsku.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 7. febrúar 2023
Arfur barnabarnanna?
Fyrir ekki svo löngu sagðist kunningjakona mín vera félagsmaður í EAB, félaginu Eyðum arfi barnanna, sem fundar aldrei og hefur engin félagsgjöld. Þau hjónin eru rúmlega sextug og eru farin að huga að starfslokum og ætla svo að flækjast um og hafa gaman og reikna svo með að þegar þau falla frá erfi börnin íbúðina sem þau eiga skuldlausa.
Svo hlustaði ég á viðtal við mann sem leggur til að við arfleiðum barnabörnin frekar en börnin. Ég hlustaði ekki nógu mikið á smáa letrið en geri ráð fyrir að hann sé að hugsa um lagalegu hliðina og e.t.v. erfðafjárskatt sem sé þá greiddur í annað hvert skipti, svo að segja. Þarna er auðvitað gengið út frá því að fólk eigi börn og barnabörn og að góður samgangur sé á milli hlutaðeigandi. Svo er nú líka sagt að maður þekki fólk ekki fyrr en maður hefur skipt með því arfi.
Mín hugmynd er að aflögufært fólk liðsinni börnum sínum og/eða barnabörnum alla ævi. Mér finnst samt að allt fólk eigi að þurfa að hafa svolítið fyrir hlutunum. Ég held að við kunnum ekki nógu vel að meta það sem við fáum fyrirhafnarlaust upp í hendurnar.
En aðallega finnst mér að fólk eigi að njóta eigin erfiðis eins og það kýs helst og reyna að hafa gaman af lífinu þangað til því lýkur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 4. febrúar 2023
Er köttur bara köttur eða er köttur kannski Köttur?
Barn má ekki heita Kisa þótt barn megi heita Högni. Börn mega hins vegar heita Xavier, Æja, Klaría og Hyrrokkin. Öll ný nöfn eru óvenjuleg og skrýtin fyrsta kastið. Vinkona mín á dóttur sem hefur seinna eiginnafnið Þöll. Hún er fædd 1994. Þegar hún var í leikskóla þótti nafnið mjög skrýtið sem ég held að engum finnist í dag. Elsta dæmið sem ég finn í Íslendingabók er frá 1955. Systir leikskólastúlkunnar kom heim úr sínum leikskóla alveg forviða einn daginn og sagði: Mamma, veistu hvað? Það var strákur að byrja í leikskólanum og hann heitir BJARNI.
Nöfn eru ókunnugleg á einhverjum tímapunkti. Nöfnin Ljótur og Ljótunn vísa til birtu (ljós) en í dag heita þrír því nafni og ég finn eina sem heitir Ljótunn og það er seinna nafnið hennar.
Mér skilst að nafnið mitt sé afbökun á nafninu (Charles) Lindbergh flugkappa. Miðað við timarit.is var fyrsta stúkan (ekki stúlkan) nefnd Berglindin 1912, kvenfélags er getið 1926 en fyrsta stúlkan eitthvað síðar, jafnvel 1940, þótt Lindbergh hafi þreytt langflugið sitt 1927.
Í Íslenzkri fyndni frá 1940 er sagan sögð svona og hljómar mjög kunnuglega:
Eitthvað get ég ímyndað mér að það hafi farið fyrir brjóstið á einhverjum, þetta skrýtna nafn sem átti enga hefð - frekar en nöfn eiga þangað til hefðin hefur skapast!
Einhvern tímann verður Kisa leyfð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)