Mánudagur, 18. nóvember 2019
Fjórða iðnbyltingin, sjálfvirknivæðing, gervigreind
Þvílík hamingja! Hraðframfarir! Stytting vinnuvikunnar!
Ég tengi mig við þessa frétt til að halda henni til haga. Ég hef verið í því teymi sem hefur þróað hinn gervigreinda talgreini með því að prófa hann og nota frá degi til dags undanfarið. Þegar við byrjuðum fyrir alvöru fyrir ári héldum við að greinarmerkjasetning yrði í skötulíki og að greinaskil yrðu ófáanleg með öllu. Hvort tveggja hefur reynst rangt, þökk sé harðsnúnum forriturum og vísindamönnum í Háskólanum í Reykjavík. Og okkur í ræðuútgáfunni sem höfum verið í húrrahrópunum, hvatningarliðinu og notendahópnum.
Kostnaður hefur verið hóflegur, tímasparnaður er mælanlegur og mikill, villutíðni um 10% (reyndar veit ég ekki hversu margar villur á að telja þegar talgreinirinn skrifar ... þjóðar. Sjóður ... þegar hann á að skrifa þjóðarsjóður).
Afleiðingin: Styttra ferli. Minni vöðvabólga. Nákvæmari texti þegar frá líður. Minni kostnaður fyrir skattborgara. Næstum örugglega styttri vinnudagur (almennar tækniframfarir).
Hver tapar? Enginn. Allir vinna. Og hamingja mín ætlar upp úr rjáfrinu.
Svo er okkar eigin Siri í farvatninu hjá Miðeind. Máltæknin lifi!
![]() |
Talgreinir skrifar ræður alþingismanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 17. nóvember 2019
Gummi, bróðir minn
Einhverjir bloggvinir mínir muna kannski eftir færslum um bróður minn sem stal af mér og foreldrum okkar peningum. Hann hefur nú haft tvo mánuði ótruflaða af mér til að grípa til þeirra aðgerða að endurgreiða eða semja um skuldirnar. Hann hefur ekki gert það. Einhver Facebook-vinur hans (hann blokkaði mig) segir að hann sé á Indlandi og að hann hafi keypt sér jeppa (ekki endilega tengt). Ég hef aðallega verið þakklát fyrir tveggja mánaða hvíld frá hugsunum um hann en nú fer að koma að uppgjöri dánarbús pabba og þá hríslast um mig ónotakenndin.
Ég veit að þetta er mjög algengt, fáránlega algengt, sennilega í annarri hverri fjölskyldu, en sársaukinn þegar maður uppgötvar að einhver nákominn manni er óvandaður græðgispési er samt persónulegur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 16. nóvember 2019
Uber
Nú er ég að verða svo ógurlega mikill ferðamaður að ég sótti mér Uber-appið í vikunni og virkjaði í fyrsta skipti. En Uber er ekki í boði í Reykjavík. Af hverju ekki? (Tek fram til öryggis að ég ætlaði ekki að panta mér bíl núna, var bara að sannreyna.)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 15. nóvember 2019
Can you ever forgive me?
Það er alltaf alveg stórkostlega skemmtilegt að sjá áhugaverðar bíómyndir og ekki spillir þegar maður hefur alveg misst af allri kynningu og lætur koma sér á óvart. Ég sá Can you ever forgive me? í flugvél (takk, Icelandair) og Melissa McCarthy var óþekkjanleg með öllu. En ég kannaðist heldur ekkert við rithöfundinn Lee Israel ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 31. október 2019
EasyJet
Ef maður bókar flug með EasyJet og skráir flugfreyjutösku má maður ekki hafa með sér lítinn bakpoka (án þess að borga aukalega), bara kvenveski. Af hverju sagði mér þetta enginn?
Ef maður getur troðið bakpokanum ofan í töskuna sína má maður hins vegar innrita flugfreyjutöskuna án aukagjalds.
Nú er ég farin að hlakka mikið til að athuga hvaða reglur Egyptair hefur ... en það verður ekki fyrr en eftir fjóra mánuði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 28. október 2019
Mörk einkalífs og vinnu
Þetta er búið að vera að brjótast um í mér en er samt svo einfalt. Ef við erum að vernda einkalíf starfsmanna og leggjumst þess vegna gegn því að starfsfólk blandi vinnunni í einkalífið með því að svara í símann eða lesa vinnupósta heima, ætti þá ekki líka að vera bannað að svara einkasímtölum á vinnutíma, utan hefðbundinna neysluhléa?
Ég skil hugsunina um kulnun þegar álag er mikið á öllum vígstöðvum og er hlynnt varfærni en erum við ekki á leið út í miklar öfgar? Ég er venjulegur launþegi í skemmtilegri vinnu sem er eins og klæðskerasaumuð handa mér, minni menntun og mínum faglega áhuga. Ég veit að ekki eru allir svona heppnir. Ég bæði les vinnupósta eftir að vinnutíma lýkur og svara einkasímtölum á vinnutíma en nota að öðru leyti vinnutímann til að sinna vinnunni. Sveigjanleikinn verður að virka í báðar áttir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 26. október 2019
Fyrstur í öðru sæti?
Rúnar Örn Ágústsson kláraði tímaþraut karla á heimsmeistaramótinu í tímaþraut í gær, fyrstur Íslendinga, en daginn áður hafði Ágústa Edda Björnsdóttir leikið það sama eftir í kvennaflokki.
Er það hægt? Er hægt að vera fyrstur í mark við að vera annar? Leiðinlegt fyrir Rúnar að verða þekktur fyrir að vera fyrstur númer tvö eða hvernig í veröldinni á maður að skilja þessa frétt?
Eins og aðrir virkir Facebook-notendur og almennir lesendur hef ég séð umræðu um nafnleysi kvenna á myndum þar sem þær eru í forgrunni en ekki nafngreindar. Þetta ristir dýpra eins og sést í fréttinni af hinum glaða Rúnari sem varð fyrstur Íslendinga til að afreka það sem kona hafði gert deginum áður.
Þetta minnir mig á daginn sem ég keyrði (laust) á bíl sem var á undan mér yfir á ljósum af því að bíllinn sem ég var á var ekki fremstur. Skiljið þið það? Ég var svo makalaust óheppin að vera ekki fremsti bíll í röðinni. Málið er bara að ég skildi það strax og stuðararnir nudduðust saman. Já, það að ég var ekki fremsti bíll á ljósunum. (Ég endurtek svona oft ef ske kynni að íþróttafréttakarlmaður skyldi rekast inn á síðuna. (Íþróttafréttamaður sem þekkir ekki muninn á 1. og 2. sæti.)) Það eru sirka 30 ár síðan, ég var nýlega komin með bílpróf og lá voðalega mikið á.
Konur afreka. Konur geta. Konur kunna. Ekki allar, ekki allt, ekki frekar en allir karlar, en ekki síður en karlar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 24. október 2019
Þangað vill fé sem fé er fyrir
Ég hélt að textinn í fyrirsögninni væri málsháttur úr Íslendingasögunum en svo er víst ekki. Ég finn þessa tilvitnun í einni minningargrein og hún er öfugmæli þannig að hún passar enn betur en ég ætlaði mér.
Ég er ekki öllum stundum að hugsa um bróður minn sem fékk lánaðan hjá mér haug af peningum árið 2008 eða 2009 og ætlar ekki að endurgreiða mér þótt hann geti það núna en mér varð hugsað til hans í gærkvöldi þegar ég var gestkomandi í húsi þar sem var sjónvarp. Já, nei, ekki alveg svona einfalt, auðvitað eru alls staðar sjónvörp en við þetta sjónvarp var Apple TV og aðgengi að Netflix. Ókei, já, ég veit að það er frekar algengt. Ég eignaðist líka Apple TV fyrir nokkrum árum og GAF þessum bróður mínum það af einhverri vangá og ég gaf honum líka Garmin-hlaupaúr af því að ég fékk tvö í stórafmælisgjöf ... og ég vorkenndi honum alltaf svo óskaplega mikið fyrir að eiga aldrei pening og geta aldrei keypt sér úr og svona.
Dæs, hvað ég var mikill vitleysingur. Þangað vill fé sem fé er fyrir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 19. október 2019
Forgengileiki lífsins
Auðvitað eru margir búnir að uppgötva að lífið er tilgangslaust. Við fæðumst og deyjum og svo er bara spurning um hversu gaman við getum haft þar á milli. En nú eru mamma mín og pabbi dáin með stuttu millibili, gamalt fólk en kjölfestan mín í lífinu, og þótt þau hafi samt ekki verið þungamiðjan í öllu sem ég gerði á fullorðinsárunum finn ég svo sterkt að þeim gengnum að lífið er óendanlega forgengilegt. Enginn var tengdari þeim en við systkinin en samt eru þau komin í þoku. Ég sakna þeirra mikið og fæ af og til skelfilegar gráthviður, líka stundum þegar ég hugsa um að þau hefðu getað gert meira sér til skemmtunar. Lífið heldur samt áfram án þeirra, hégómlegt og tímabundið en sem betur fer oft skemmtilegt svo ég endi ekki færsluna í tómu svartnætti.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 18. október 2019
Ef maður flytti til útlanda ...
Ef maður flytti til útlanda og kæmi ekki heim til Íslands í þrjú ár ... hvers skyldi maður sakna mest fyrir utan fólkið sitt? Sundlauganna, sagði maður. Sjósundsins? spyr ég. Birtunnar kannski í október? Hreina loftsins? Heimurinn er orðinn svo lítill, eða stór eftir atvikum, með tilkomu netsins að allar fréttir berast jafn hratt til Kambódíu og Súgandafjarðar. Ég held samt að ég myndi sakna kunningjanna því að ég myndi alltaf halda sambandi við vinina. En það yrði náttúrlega flóknara í Simbabve en í Kaupmannahöfn.
Já, það er laustengslanetið og spjöllin á götuhornunum sem ég sæi fjara út.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 16. október 2019
samromur.is
Ég mætti á mjög gefandi morgunmálþing um íslenskuna í morgun. Nokkrar stofnanir héldu það, þar á meðal Almannarómur sem er sjálfseignarstofnun sem mun hafa umsjón með smíði máltæknilausna en svo skemmtilega vill til að máltækni er áhugamál mitt til margra ára(tuga).
Erindin voru fjölmörg, öll stutt og flest upplýsandi. Ég hef hnóhnikað mér í kringum það málefni í nokkur ár þannig að ekki allt kom mér á óvart en ég var sannarlega ekki búin að átta mig á að svona víða væri svona margt komið vel áleiðis, t.d. í bönkunum.
Og svo er búið að opna Samróm og við erum öll hvött til að gefa raddsýni. Við ætlum ekki að glata íslenskunni, við ætlum bara að þróast saman.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 12. október 2019
Eliud Kipchoge 1:59:40
Það var svo margt geggjað við að sjá Keníamanninn Eliud Kipchoge hlaupa heilt maraþon undir tveimur klukkutímum í morgun. Hann var afslappaður, hann var glaður og hann var hvetjandi. Við þurfum ekki öll að slá met í íþróttum og ekki að vinna allan heiminn, bara bæta okkur sjálf og setja okkur raunhæf markmið sem við vinnum síðan að.
Það fundust mér vera skilaboðin frá Eliud og ég fer öll glaðari út í daginn.
En hann hljóp nokkra kílómetra í skólann þegar hann var krakki og á tímum loftslagskvíða er hollt að minnast eigin vélarafls þótt maður ætli ekki að setja heimsmet í hlaupum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 11. október 2019
Strætó fer til Keflavíkur
Mér skilst að Strætó bs. sé ekki með aðstöðu eins og flugrúturnar en miðað við áætlun fer strætó fyrir helmingi lægri fjárhæð (og með aðeins fleiri krókum) í flugstöðina. Mér finnst bara svo skrýtið að ég hafi þurft að uppgötva það með netleit. En bráðum mun ég láta reyna á!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 30. september 2019
Stytting vinnuvikunnar
Ég hef mjög mikinn áhuga á að stytta vinnuvikuna og dreifa verkefnum jafnar meðal fólks. Ástæðan fyrir því að vinnudagurinn er 8 klukkutímar er einfaldlega sú að einhver náungi ákvað að þriðjungur sólarhringsins væri eðlilegur í vinnu, þriðjungur í hvíld og þriðjungur í félagslíf og skemmtanir. Þá var vinnudagurinn 10 eða 12 tímar og hann vantaði viðskipti á kránni sem voru í skötulíki hjá mönnum sem rétt höfðu sig heim til að leggjast í bælið. Ef hann sagði það ekki hefði hann getað sagt það, en væntanlega mundi hann ekki eftir ólaunuðum störfum nema maður ætti að elda, þrífa og kenna börnum til vikunnar bara um helgar.
En gott og vel, svona hugsaði þetta einhver árið 1817 (ég finn bara ekki hver það var) og við erum enn að bíta úr nálinni með það. Kjarasamningaviðræður skilst mér að strandi núna helst á því að starfsmenn vilja styttingu vinnuvikunnar og viðsemjendur vilja a) styttingu kaffi- og/eða matartíma b) engan aukakostnað.
Ókei, ef við gefum okkur að vinnutími fólks nýtist almennt vel er óhjákvæmilegt að það kosti að hleypa fólki fyrr af vinnustaðnum. Það á tvímælalaust við um sólarhringsvaktir. Það þarf hins vegar ekki að stytta hverja vakt um 9 mínútur og vera með marga lausa enda. Það er hægt að fækka vöktunum og svo væri hægt að fjölga millivöktum þegar álagið er mest. Margt af því sem er gert á hjúkrunarheimilum krefst hvorki líkamlegs styrks né hjúkrunarþekkingar heldur útsjónarsemi, félagslyndis og glaðværðar. Aðstandenum stendur auðvitað nærri að spjalla við sitt fólk og fara með í ísbíltúra en ná því ekki daglega og ekki marga klukkutíma í einu. Þá væri gott að hafa áhugasamt fólk að störfum.
En ég viðurkenni að ég er farin út fyrir efnið. Segum að vinnuvikan væri núna 40 tímar að lögum. Hún er það. Segjum að vinnuárið væri 1.740 klukkutímar á vinnustað (44 vikur x 40 tímar). Gæti verið að einhverjum fyndist fengur í því að stytta vinnuárið niður í 1.640 tíma og taka skorpur, annað hvort út frá sjálfum sér eða vinnustaðnum?
Já, þetta er snúið en ég veit ekki betur en að her manns sitji nú yfir útreikningum fyrir alls konar stéttir. Sjálfri finnst mér brýnt að stytta vinnuárið OG nýta virkan vinnutíma fólks vel. En verður hægt að kreista skutlið út ef íþrótta- og annað tómstundastarf barna fer fram á skilgreindum vinnutíma?
Hitt áhugamálið mitt sem er nátengt þessu varðar sjálfvirknivæðinguna. Mitt starf getur vel vélvæðst að hluta og ef ég missi vinnuna mæti ég því með æðruleysi. Ef hins vegar vélar geta leyst flest störf hlýtur fyrst og fremst að losna um tíma fólks. Af hverju ætti ekki vinnuvikan að geta orðið einn dagur ef það nægir til að gera allt sem fólk gerir núna?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 28. september 2019
Hjólum stolið
Hjólum virðist vera stolið í atvinnuskyni. Og hvað getur sá gert sem verður fyrir barðinu á slíkum þjófnaði? Ég er ekki búin að lesa öll persónuverndarlögin frá 2018 en miðað við reynslu Valda í Hjólakrafti er réttur þjófsins meiri en þess sem stolið er frá. Valdi er sem betur fer með öflugt tengslanet og bæði hjólin sem var stolið frá honum fyrir 10 dögum hafa fundist og eru komin aftur heim í Hjólakraft.
Bróðurdóttir mín varð fyrir svipuðu í vikunni, á að vísu ekki myndir og hefur engin tök á að endurheimta hjólið nema einhver athugull sjái það eða sé boðið það til kaups. Djöfulsins.
Við þurfum greinilega öll að taka að okkur að vera hið vökula auga löggæslunnar og eitt skrefið er að kaupa ekki notað hjól af einhverjum sem við höldum að eigi það kannski ekki.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 26. september 2019
Meðvirkni á vinnustað
Í morgun fór ég í svakalegt ferðalag upp á Höfða til að hlusta á fyrirlestur um meðvirkni í stjórnun sem Íslandspóstur bauð upp á á vegum Stjórnvísi. Matsalurinn var smekkfullur af áhugasömum tilheyrendum og má skilja það þannig að meðvirkni brenni á fólki.
Meðvirkni á vinnustað er m.a. þegar stjórnandi sér að starfsmaður svíkst um en gerir ekkert í því, jafnar ekki álagið milli starfsmanna og tekur ekki eftir þegar starfsmaður er alveg að keyra út í vegg. Það er áskorun að taka á neikvæðri hegðun og líka að koma auga á jákvæða hegðun og umbuna fólki eftir því sem ástæða er til.
Við eigum flest, sennilega öll, til botnhegðun og topphegðun, sem sagt misgóða daga. Vinnustaður er samfélag eins og samfélagið sjálft og heimilin okkar.
Þegar ég kom út var búið að keyra utan í bílinn minn en hann er 12 ára gömul Mazda sem er aðeins farin að beyglast. Þegar ég var lögð af stað tók ég eftir miða undir rúðuþurrkunni. Mér skilst að það sé alls ekki algilt að fólk sem rispar bíla láti eigendur bílanna vita af því. Gott karma til þessa náunga. Ég var glöð í allan dag.
Gærdagurinn byrjaði líka vel. Þá fór ég á annan fyrirlestur á vegum Stjórnvísi og þótt fyrirlesarinn segði fullt af sjálfsögðum hlutum gerði hann það á skemmtilegan hátt og ég fór út stútfull af brýningu í að aðskilja vinnu og einkalíf. Sá fyrirlestur var á heppilegri stað þannig að ég gat hjólað þangað að heiman og svo í vinnuna.
Og veðrið spillti engu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 22. september 2019
Ég ... er sjúklega heppin með heilsuna
Ég held áfram að opna inn í kviku á mér. Ég hef það gott, ég er lukkunnar pamfíll. Ég er í skemmtilegri vinnu og fæ borgað fyrir að gera það sem mér finnst skemmtilegast af öllu, að grúska í texta, setja mig inn í máltækni, hitta fólk, tala við fólk og hlusta á fólk.
Mér er eiginlegt að fara vel með og þess vegna hef ég aldrei á ævi minni verið blönk. Ég naut foreldrahúsa meðan ég var í námi sem er ómetanlegt en ég vann líka með náminu. Það var lítið mál en félagslífið galt aðeins fyrir það.
Ég hef aldrei misst úr í skóla eða vinnu vegna kvíða eða þunglyndis sem ég heyri að sé algengt. Á 18 árum á sama vinnustað hef ég misst úr 10 daga vegna eigin veikinda. Ég er sjúklega heppin með heilsuna og þakka oft fyrir það.
Ég á marga góða vinnufélaga og skemmtilega vini. Ég á áhugamál sem ég næ að sinna og njóta.
Ég átti kærleiksríka foreldra sem dóu á þessu ári og því síðasta og þótt þau séu farin á ég áfram góðar minningar um þau, dýrmætt fólk sem vildi mér alltaf það besta.
Ég er heppin. Hins vegar á ég bróður sem hefur komið illa fram við mig og aðra í fjölskyldunni og þessi misserin rænir það mig svolítilli orku að reyna að hindra hann í að beinlínis hafa af mér og systkinum mínum peninga. Það er miklu algengara en ég hafði áttað mig á. Eðlilega vill margt fólk ekki opna inn í kvikuna á sér. Það er sársaukafullt og það verður alltaf einhver hópur sem finnst hinn opinskái vera að röfla, vorkenna sér, snapa athygli eða einfaldlega fara með rangt mál. Það er áhættan sem maður tekur.
Þegar ég skrifa færslurnar sem ég hef skrifað nokkrar í sumar er ég með 100% athygli á málinu en þess utan lifi ég bara lífinu.
Ég hef ekki undan miklu að kvarta en ég vinn alveg fyrir mínu góða lífi, sit ekki með hendur í skauti og bíð eftir að tækifærin og ævintýrin komi af sjálfu sér. Ekki einu sinni réttlætið. En mjög margt fólk býr við miklu krappari kjör þannig að mér finnst stundum að ég geti ekki leyft mér að standa upp og verja mig. En þá væri ég meðvirk ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21. september 2019
Hættum að urða og hættum að bruðla
Eftir hlaupaæfingu í morgun fórum við nokkrar í Sundhöllina og töluðum okkur heitar í pottinum um loftslagsvandann. Ein var með mjög dramatíska tillögu. Hún sagði að flugmiði þyrfti að fara upp í 500.000 kr. þannig að ferðalag til útlanda yrði bara mjög stór hluti af útgjöldum heimilisins.
Það þarf að verðleggja kolefnisfótsporið, þar er ég sammála, en ég veit ekki hversu hátt. Og ef við gerum öll eitthvað, kaupum færri föt, minna plast, minni umbúðir, minna kjöt fer það þá ekki að skipta máli? Banna örstuttar ferðir til útlanda?
Ég hef haft áhyggjur af þessum vanda eins lengi og ég man eftir mér. Þess vegna hef ég prísað mig sæla að geta hjólað og gengið í vinnu, keypt notuð föt og lengi vel vildi ég aldrei vera styttra í útlöndum en einn mánuð.
En þið vitið alveg hverjir munu reka upp ramakvein ef neyslan verður skorin niður af umhverfisástæðum. Það eru þeir sem ganga fyrir neysluhyggjunni, framleiðendur að drasli og seljendur draslsins.
Lifi nytjamarkaðir! Verslum minna og verum meira.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 20. september 2019
Bergmálshellir Gumma
Bróðir minn, svokallaður, er stoltur af að hafa stolið af mér peningum og foreldrum okkar. Ég heyri stundum af honum sögur og hvernig hann hælist um af dugnaði sínum við að hlunnfara fólk. Á sama tíma auglýsir hann eftir heiðvirðu og góðhjörtuðu fólki. Ég er sá einfeldningur að halda að dropinn holi steininn og þess vegna er ég ekki búin að gefast upp á að endurheimta lánið.
Ég lánaði honum 7 milljónir fyrir 11 árum. Veit einhver hvernig ég get endurheimt pening sem banki fékk handveð fyrir í bankainneign minni og skuldfærði svo einfaldlega? Ég var nýbúin að selja íbúð og átti peninginn í bankabók. Gummi sagði að þetta væri bara formsatriði og greiðvikna litla systirin trúði honum. Svo hrundi bankakerfið, bróðir minn stóð ekki í skilum og ég fraus.
Ég lánaði honum pening en gaf ekki.
Eftir það keypti hann hús í Heiðmörk fyrir lítinn pening, lagaði aðeins til og leigir nú út meðan hann býr sem garðyrkjumaður á Sólheimum. Sjálfsagt má kalla hann sniðugan í peningamálum en þegar maður stelur 7 milljónum af systur sinni og 10,5 af foreldrum sínum (sem pappírar eru til fyrir) er auðvitað hægt að leika greifa um stund. Fyrir utan þessa skuld sem við systkinin erum með reikninga fyrir veit ég um a.m.k. einn RAV-bíl sem hann hafði af mömmu og pabba og ég hef rökstuddan grun um að hann hafi fengið ellilaun mömmu í mörg ár. Hún hafði alltaf áhyggjur af að óvirki alkóhólistinn yrði virkur. Siðblindur fíkill er eitraður kokteill.
Nú eru bæði mamma og pabbi dáin og hann sinnti útför þeirra í engu. Þegar pabbi var jarðaður 5. september sl. mætti hann ekki í kistulagninguna og rétt svo í jarðarförina. Við bjóðum honum að taka þátt í að velja legstein og hann ansar okkur ekki. Hann er of upptekinn við að spila út kærleiksspilum á Sólheimum.
Dægurmál | Breytt 12.1.2020 kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. september 2019
Mynd og gjörð fer ekki saman
Bróðir minn sem ætlar að stela af mér 7 milljónum sem ég lánaði honum í góðri trú kýs að dreifa svona fagurgala á Facebook. Hann er hvorki blýanturinn sem skrifar hamingju nokkurs sem stendur mér nærri né strokleðrið sem eyðir sorginni. Síst af öllu kom hann vel fram við pabba.
Ég hef aldrei verið blönk en ég hef heldur aldrei eytt um efni fram og aldrei eytt annarra manna peningum. Þess vegna var ég aflögufær þegar hann var illa staddur 2008 en peningurinn sem ég lánaði honum var aldrei hugsaður sem gjöf. Ég skil ekki hvernig hann og lögmaðurinn hans geta verið svona slakir í bæði reikningi og siðferði.
Ég er ekki beisk en ég ætla aldrei að hlífa honum við bullinu úr sjálfum sér. Og óheiðarleikanum. Ég vona innilega að aðrir misstígi sig ekki og greiði götu hans. Ég hef enga ástæðu til að halda að hann skili því sem honum er lánað.
Dægurmál | Breytt 25.9.2019 kl. 20:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)