Þriðjudagur, 30. janúar 2018
Hver er þessi maður?
Eina ástæðan fyrir því að ég skil eitthvað í þessari frétt er að ég veit fyrir um hvað málið snýst. Þekki samt ekki þennan Ingvar og veit lítið um Sólveigu líka. Þar fyrir utan eru óþarflega margar ásláttarvillur.
Gylfi er ótrúlega óforskammaður. Fordæmalaust?? Og hvað með það??? Hefur meint verkalýðsbarátta skilað láglaunafólki einhverju? Af hverju lepur fólk dauðann úr skel í forríku landi?
Mikið innilega vona ég að kjósendur Eflingar skoði framboðin vel og nýti sér svo atkvæðið sitt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 15. janúar 2018
Himnaríki og helvíti
Sá þriggja tíma sýningu í Borgarleikhúsinu og leiddist aldrei. Frábært leikaralið, vel hönnuð sviðsmynd og svo auðvitað hin magnaða saga Jóns Kalmans Stefánssonar. Við sátum á 2. bekk sem var helsti gallinn, sérstaklega hjá mér sem sá hnakka mannsins á 1. bekk fullvel nema ég æki mér í sætinu, en á móti sá ég þegar B. kólnaði illilega á sviðinu. Ég sver það, hann króknaði fyrir augunum á mér.
Farið bara.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 7. janúar 2018
Faðirinn í Kassanum
Stóri bróðir minn fór að sjá Föðurinn í leikhúsinu og var yfir sig hrifinn. Gott ef hann gaf honum ekki 10 af 10 þannig að ég var dálítið efins. Samt fór ég og varð líka yfir mig hrifin. Ég er þegar búin að blaðra í nokkra af hverju en ef mínir fimm dyggu lesendur eiga eftir að sjá sýninguna vil ég ekki spilla upplifuninni. Læt þó eftir mér að segja að mér fannst sýningin eftir hlé betri sem ég held að helgist af því að ég þekki ekki vel sjúkdóminn alzheimer ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 7. janúar 2018
RÚV vs einkareknir fjölmiðlar
Er ekki undarlegt að einn fjölmiðill, þótt góður sé og ég hlusta mikið á, fái árlega marga milljarða á fjárlögum OG sé á auglýsingamarkaði? Ég veit að heilbrigð samkeppni á erfitt uppdráttar á Íslandi vegna fámennis en ég efast um að látið hafi verið reyna á. Nú stíg ég sjálfsagt í spínatið af því að ég veit ekki um laun allra, viðhaldskostnað allra tækja, rekstrarkostnað húsnæðis o.s.frv. en ef fjölmiðlun á að vera frjáls, þ.m.t. blaðaútgáfa, verða miðlarnir að sitja við sama borð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 6. janúar 2018
Kirkjan vs heilbrigðiskerfið
Hefur kirkjan sem stofnun einhvern tímann talað um að hún hafi ekki nægt fé til að reka sig, halda við húsum og borga þjónunum laun?
Hefur Landspítalinn sem stofnun einhvern tímann talað um að hann hefði ekki nægt rekstrarfé?
Við vitum svörin.
Hversu margir þurfandi hafa ekki fengið þjónustu hjá kirkjunni?
Hversu margir þurfandi hafa þurft að bíða lengi eftir þjónustu lækna eða annars hjúkrunarfólks?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 1. janúar 2018
6,5 milljarðar
Á bls. 256 í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2018 sýnist mér liðurinn trúmál fá 6,5 milljarða og leyfi mér að giska á að obbinn fari til þjóðkirkjunnar sem biskupinn stýrir víst af stöku ráðleysi. Er ekki kominn tími til að taka til?
Getum við ekki verið sammála um það?
Eða var því kannski breytt daginn fyrir áramót?
Mánudagur, 25. desember 2017
Læf of Pæ
Nei, sagan hefur verið þýdd sem Sagan af Pí, m.a.s. á vef Ríkisútvarpsins. Þess vegna finnst mér ótækt að þulur ríkissjónvarpsins hafi kynnt myndina sem Life of Pi og þar að auki sagt að hún hafi hlotið fjögur verðlaun. Hvort tveggja skar í eyrun. Hefði hún getað hlotið eitt, tvö eða þrjú verðlaun? Nei, verðlaun er fleirtöluorð.
Og hananú.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 20. desember 2017
Einkavæðum þjóðkirkjuna
Ég trúi meira á álfa og tröll en hinn eina sanna spekúlant á himnum og allra minnst trúi ég á kirkjujarðir sem ríkið á enn að vera að borga kirkjunni leigu af. Og ég viðurkenni að ég trúi alls ekki að biskupinn verðskuldi hækkun umfram hjúkrunarfræðinga.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 10. desember 2017
Hver á ,,réttan íslenskan rithátt"?
Ég er ekki fyrst til að hafa orð á þessu, ég veit, en mér er fyrirmunað að skilja hvers vegna íslenskar orðabækur eru ekki aðgengilegar öllum á netinu. Nú er ég með svokallaðan gestaaðgang að Snöru sem er ágæt orðabók en ef ég ætla að opna hana í öðrum vafra en ég setti hana upp á telst það nýr aðgangur og mér er boðið að kaupa svona aðgang:
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 7. desember 2017
Gjalddagi -- merking
Fyrr á árinu varð ég fyrir tjóni sem tryggingafélagið borgaði að hluta en ég þurfti að borga að hluta. Gott og vel. Í gær, 6. desember, opnaði ég heimabankann og sá reikning frá tryggingafélaginu með GJALDDAGA 16. nóvember og EINDAGA 16. desember. Reikningurinn var mögulega kominn í heimabankann um mánaðamótin en sannarlega ekki 16., 17., 18. eða 19. nóvember.
Ég hringdi í tryggingafélagið til að fá botn í skuldina (vatnstjónið varð í apríl og ég hélt að tryggingin hefði dekkað það þannig að skuldin kom mér í opna skjöldu) og stúlkan stóð í þeirri meiningu að gjalddagi væri dagurinn þegar reikningurinn væri gefinn út. Því ber ekki saman við minn skilning sem er sá að gjalddagi sé dagurinn sem maður á að greiða reikninginn án aukakostnaðar en með eindaga fær maður aukafrest með litlum aukakostnaði, stundum engum.
Snara er sammála mér.
gjald·dagi
-a, -ar KK viðsk./hagfr. | sá dagur þegar gjald verður kræft, síðasti dagur til greiðslu skuldar án dráttarvaxta e.þ.h. |
ein·dagi
-a, -ar KK | gjalddagi |
| síðasti dagur sem hægt er að greiða skuld án þess að á hana falli dráttarvextir eða annar kostnaður |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 3. desember 2017
Sundhöll Reykjavíkur -- 2017
Ég var lengi búin að hlakka til að fá útisundlaug í hverfið og dreif mig áðan í skoðunarferð. Fyrsta mat: Skemmtileg, falleg og frábær viðbót við það sem við höfðum. Alltof lítil samt. Aðeins fjórar sundbrautir og grunni endinn er svo grunnur að maður þarf að passa sig. Heiti potturinn ílangur eins og í Nauthólsvík og sætin góð (maður er ekki á fleygiferð eins og í sjópottinum í Laugardalnum) en helst til stutt á milli hliðanna. Ég teygði aðeins úr mér og gaf umsvifalaust ókunnugum manni undir fótinn.
En kannski þjónar hún fyrst og fremst sem busllaug með sólbaðsaðstöðu því að laugin mun umfaðma sólina á sólardögum og ég er alveg sátt við það.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 23. nóvember 2017
Helgi í Góu
Hann stendur fyrir síðunni Okkar sjóðir. Óbilandi áhugamaður um bætt kjör aldraðra og ekki vegna þess að hann er sjálfur kominn á efri ár. Við erum með aragrúa illa rekinna lífeyrissjóða sem hafa steingleymt hlutverki sínu.
Ég skora á lífeyrissjóðina að fjárfesta í byggingu mannsæmandi húsnæðis fyrir aldraða sem uppfyllir sanngjarnar kröfur um þægindi og einkalíf.
Sterk auglýsing og meðmæli með því að leyfa fólki að fylgjast að til loka.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 20. nóvember 2017
Robert Mugabe er orðinn 93!
Ég veit, ég er ekki með nýjar fréttir. Þær eru frekar frá 1924. En hvernig í veröldinni stendur á því að háaldraður maður neitar að hætta afskiptum af stjórn lands þótt stór hluti landsmanna vilji það? ÓRG er þó ekki nema 74 og Angela Merkel 63 ...
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 19. nóvember 2017
Hraðferð á Skagann
Ég á foreldra í sömu stöðu og Þórhalla Karlsdóttir er í. Pabbi er 96 ára, skýr í kollinum og með flest líffæri í góðu lagi en farinn að tapa heyrn, er með lélega húð og valtur á fótunum. Hann fór á Landspítalann í ágúst af því að hann datt illa, þaðan á Landakot og er nú á Vífilsstöðum, búinn að vera í tæpa viku. Hann er með umsókn um dvöl á elliheimili sem guð veit (ef yfirleitt) hvenær hann kemst á.
Mamma datt illa á hnakkann 28. október og hefur síðan verið á Landspítalanum.
Þeirra heitasta ósk er að fá að vera saman á elliheimili. Okkar systkinanna heitasta ósk er að uppfylla þeirra heitustu ósk en þangað til mamma datt var okkur sagt að það væri enginn möguleiki að hún fengi vistunarmat.
Mér finnst þetta ómannúðlegt. Það hefur ekki með stjórnarmyndun að gera núna eða hina um daginn, ekki síðustu stjórn, ekki þarsíðustu, ekki landlækni per se -- en auðvitað snýst það um ákvörðun einhverra að borga svo illa fyrir umönnun aldraðra að ekki fæst nógu margt fólk og tollir svo ekki það sem þó starfar á spítölum. Flest það hjúkrunarfólk sem hefur sinnt þeim síðan í sumar er gott fólk, snúningalipurt og peppandi. En nú eldumst við óðfluga og það verður að manna hjúkrunarheimili og það verður líka að fjölga þeim.
Mér finnst blóðugt að fólk á tíræðisaldri sé aðskilið vegna ellisjúkleika sinna. Getum við ekki öll verið sammála um að það ætti ekki að vera flókið að leyfa gömlu fólki að eiga áhyggjulaust ævikvöld?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 26. október 2017
50% atvinnuleysi?
Ég var að horfa á kosningaþátt Stöðvar 2, stórkostlegt sjónvarpsefni. Ein hugsun sem ég tek með mér inn í kvöldið er sú um fjórðu iðnbyltinguna. Ef störf úreldast vegna þess að tækninni fleygir fram -- hefur fleygt fram -- er þá ekki upplagt að vinnudagurinn verði fjórir tímar; vinnuvikan 20 tímar hvernig sem þeim er deilt á dagana? Hverjar eru grunnþarfirnar? Að hafa mat og til þess þurfum við framleiðslu. Að hafa húsnæði og til þess þurfum við alls kyns þekkingu, sem sagt kennara og menntun. Hvað annað? Samgöngur? Ég meina til að lifa af. Fjölmiðla og aðra afþreyingu? Tjah, nei, varla til að lifa af. Menningu? Til að sjá tilgang með lífinu. Grill?
Ef við þurfum fyrst og fremst mat, föt, þak yfir höfuðið og að losna við sorp, já, og farga því, þurfum við kannski bara að vinna að meðaltali 20 tíma á viku. Er það alveg skelfileg tilhugsun?
Ég hef mína framfærslu af prófarkalestri og kennslu. Ef stemning verður fyrir því á næstu 20 árum, sem ég efast um að ég upplifi sjálf, að hætta að varðveita tungumálið og láta slag standa verð ég að finna mér annan vettvang. En ef engin störf verða fyrir helming þjóðarinnar, verða þá engar tekjur heldur? Ef helmingurinn framleiðir nóg og kann nóg ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 23. október 2017
Forgangur
Ég er dálítið erfiður kjósandi. Nú sé ég fjórðu iðnbyltinguna nálgast og nú finnst mér mjög brýnt að efla menntun, einkum er varðar nýsköpun og frjóa hugsun. Ég hef alla mína fullorðinsævi haft framfærslu mína af prófarkalestri, kennslu og leiðsögn. Ef þessi störf úreldast vil ég vinna við eitthvað annað og kannski er ég ekki rétta manneskjan til að hanna nýju störfin. Einhver annar er góður í því en ég kannski betri í hinu.
Það er áreiðanlega klausa um þetta í öllum stefnuskránum. Hvaða flokkur eða einstaklingur er hins vegar líklegastur til að fylgja því eftir?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 20. október 2017
Vika til stefnu
Ég var að horfa á þátt Gísla Marteins þar sem yfirvofandi kosningar komu við sögu. Ungir viðmælendur Berglindar festival ætla að kjósa í alþingiskosningunum 28. október en vildu gjarnan vita hvað frambjóðendur væru til í að gera fyrir ungt fólk, t.d. í húsnæðismálum.
Það er samt viðbúið að margt ungt fólk kjósi ekki sem er grátlegt. Ég hef lengi verið mér meðvituð um að atkvæðisrétturinn er ekki sjálfgefinn en í gær fór ég aukinheldur á frábæran fyrirlestur á vegum Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum, fyrirlestur sem vinkona mín samdi reyndar og flutti, um réttinn til að kjósa. Fyrir 100 árum fékk fólk ekki að kjósa ef það var skuldsett. Það gat jafnvel haft atkvæðisrétt en misst hann ef það fór á sveitina. Ein átakanleg saga var af konu sem var mætt á kjörstað en var ekki á kjörskrá og var því gerð afturreka.
Ef fólk þáði fátækrastyrk gat það ekki kosið og það var að hluta til undir yfirvaldinu komið hvernig styrkþegi var metinn. Og yfirvaldið var gjarnan frambjóðandi.
KJÓSUM. Veljum þann lista sem við trúum mest á.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 17. október 2017
#metoo #höfumhátt
Fyrir nokkrum árum var ég leiðsögumaður með lítinn þýskumælandi hóp. Í annarri gistingunni vorum við bílstjórinn látin vera saman í smáhýsi. Við fengum samt hvort sitt herbergið. Ég hef samúð með ferðaþjónustunni þannig að ég lét gott heita. Bílstjórinn virtist í lagi, ekkert aðlaðandi en fínn bílstjóri, duglegur að tala við túristana og svona, en undir háttumál, þegar ég lá í rúminu mínu í mínu herbergi og var að lesa mér til fyrir næsta dag kallaði hann innan úr stofunni að ég læsi of mikið og kom svo inn, strauk handarbakinu við kinnina á mér og sagðist gjarnan vilja liggja með mér.
...
Ég, alveg bullandi meðvirk, vék mér undan og sagði: Nei, takk.
Nei, takk!?
Þegar ég fór að sofa staflaði ég bókum við hurðina því að enginn var lásinn.
Ég hafði enga ástæðu gefið honum til að halda að mér fyndist þetta góð hugmynd. Næstum öll ferðin var eftir. Ég forðaðist bílstjórann eins og ég gat. Mér leið óþægilega og það smitaðist út í ferðina.
Þegar ferðin var búin skilaði hann mér heim og ég hálfhljóp í burtu en samt spurði hann: Fæ ég ekki einn koss í kveðjuskyni?
...
Ég hef ekkert oft lent í þessu. Flestir bílstjórar sem ég hef keyrt með eru frábærir og faglegir samstarfsmenn. Ég man m.a.s. sjaldnast eftir þessu atviki en, fokk, hvað þessi maður kunni ekki mannasiði. Og ferðaskrifstofunni var alveg sama. Ég man ekki lengur hvað bílstjórinn heitir en ég gleymi ekki hver réð mig í þessa ferð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 15. október 2017
Hattur ofan
Ekkert er mér hugleiknara núna en að fá fram skýr kosningaúrslit 28. október nk. Fólk sem velst til þingmennsku þarf að vera skýrt í hugsun og tali, hafa metnað fyrir hönd þjóðarinnar og vilja til að vinna vel í þágu okkar, almennings. Vissulega má gera ráð fyrir að í hópi frambjóðenda séu svartir sauðir en heilt yfir trúi ég því að fólk hafi heiðarlegan ásetning og ég verð að taka undir með einum eða tveimur í kringum mig sem hafa hrósað fólki sem gefur kost á sér til samfélagsstarfa þar sem úrlausnarefni eru oft flókin og tímafrek.
Ég veit mætavel að veist hefur verið að fólki sem hefur lagt sig allt fram um að vinna í þágu stóra hópsins en ég vona að við vöndum valið eftir tæpan hálfan mánuð og fáum bestu úrslitin -- skýr úrslit og starfhæfa ríkisstjórn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 1. október 2017
Ekki gleyma því að kjósa 28. október
Nú er mánuður til kosninga. Ég heyri í kringum mig að fólki finnist ekki taka því að kjósa. Hroðalega dapurlegt. Hins vegar tekur fleira fólk þátt í skoðanakönnunum sem er ánægjulegt. Vonandi þýðir það að fólki finnist skipta máli að taka þátt í kosningum, nýta atkvæðisréttinn.
Mig langar bara að orða þetta svona í bili: Ímyndum okkur að ríkisbókhaldið sé heimilisbókhald með 1.000 milljörðum. Hvaða flokkur lofar að nota peningana í málaflokka sem eru þér að skapi og er líklegur til að standa við loforðið?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)